Samvinnan - 01.08.1964, Blaðsíða 32
PLASTVATNSRÖR
Síðan 1959 hefur VINNUHEIMILID Á REYKJALUNDI framleitt plastpípur af þeim flokki gerviefna, sem
nefnist POLYETHELYN. Notkun þess fer vaxandi frá ári til árs og varla er sú vatnsveita lögð nú hér á
landi, að ekki sé notuð þessi gerð af vatnsveitupípum, enda hafa plastpípur alla kosti fram yfir járn-
pípur til þessarar notkunar.
Samanlagt hefur VINNUHEIMILID framleitt og selt hundruð km af rörum úr plasti. Mestu kostir þeirra
felast í eftirfarandi atriðum.
ÞYNGDIN er tæplega 1/8 af því sem jafnvíðar járnpipur vega. ÞaS sparar flutningskostnað og erfiði.
LAGNING er auðveld því að rörin eru svo sveigjanleg Sé steinn í rásinni má beygja fram hjá honum og
auðvelt er að sveigja um horn. í gljúpan jarðveg. sem ekki er grýttur, má draga plastpípur með kílplóg.
RENNSLI vatns í plastpípum er mjög ört ,því að þau eru vel slétt innan, viðnám því lítið, og í þau sezt
hvorki hrúður né ryð svo að þau þrengjast ekki með aldrinum eins og vatnspípur úr járni. Straummótstaða
og þrýstingstap er því jafnan minna en í pípum úr öðru efni.
VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI
ENDING plaströra er góð þvi að þau þola
hnjask, högg og þrýstlng að innan sem utan.
Þau springa ekki þótt vatn frjósl í þeim. Þau
tærast ekki þótt um þau leiki ýmis þau
efni og efnablöndur, sem þau kunna að koma
í snertingu við. þar sem veitur eru lagðar, og
veitur liggja.
LENGD geta menn fengið eftir óskum, allt
að 300 metra heila og tengingalausa. Ekki þarf
fagmenn til að leggja plastpípur. Tengistykki
af öllu tagi seljum vér einnig, svo sem minnk-
anir, stækkanir, greinirör, tengi í tvö jafnvíð
rör og tengi milli málms og plasts.
KOSTIR plaströra eru fleiri. Má tll þeirra telja
að plast veldur engum efnabreytingúm í vatnl
og breytir því hvorki bragði þess né lykt. Úr
þeim losnar aldrei neitt, sem mengar vatnið
á neinn hátt. Plastpípur eru góðir einangrarar
og fylgja því hægt hitabreytingum. Þær upp
fylla vel allar kröfur um hreinlæti og heil-
brigði.
Aðalskrifstofa að Reykjalundi, sími um Brúarland.
Skrifstofa í Reykjavík Bræðraborgarstíg 9, sími 22150.
32 SAMVINNAN