Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1965, Síða 9

Samvinnan - 01.12.1965, Síða 9
um helmingur jarðarbúa, sem nú eru taldir 3,5 milljarðar, þjáist af hungri eða vannær- ingu. Mynd þessa ástands verður enn geigvænlegri, þegar haft er í huga, að íbúum heimsins hefur á undanförnum fimmtán árum fjölgað um helmingi hraðar en á næstu áratugum á undan; er ástæðan til þess einkum sú, að læknavísindin hafa unnið bug á skæðum far- sóttum, sem áður héldu fólks- fjölgun vanþróaðra ríkja mjög í skefjum. Hefur hlutur hinna vanþróuðu ríkja í fólksfjöldan- um því aukizt mjög miðað við þróuðu ríkin. Árið 1938 var á- ætlað, að um 67% mannkyns- ins byggju í vanþróuðum ríkj- um, en nú hefur það hlutfall hækkað upp í 72%. Á sama tíma hefur hlutur vanþróaðra ríkja í matvælaframleiðslu heimsins hinsvegar minnkað úr 43% í 42%. •Eðli vandamálsins Hin þróuðu svæði heims- byggðarinnar, þar sem mat- vælaframleiðslan á mann er mest og hungur lítt eða ekki þekkt, eru einkum Norður- Ameríka, Evrópa og Ókeanía (Ástralía). Aðrir heimshlutar eru enn á hinum ýmsu stig- um vanþróunar, og er ástandið hvað verst í Austurlöndum fjær, þar sem matvælafram- leiðslan á mann er um 50% fyrir neðan heimsmeðaltalið. Þessi mismunur á matvæla- framleiðslu vanþróaðra ríkja og þróaðra, byggist meðal ann- ars á mismunandi landbúnað- arframleiðslu, mismunandi tekjum bænda í hinum ýmsu löndum og mismunandi þétt- býli. í þróuðum ríkjum fá bændur oft tvöfalda uppskeru miðað við uppskeru á jafn- stóru landssvæði í vanþróuðu ríki. Mismunurinn á mjólkur- og kjötframleiðslu á nautgrip er fimm á móti einum, vanþró- uðum ríkjum í óhag. Orsakir lítillar framleiðni í landbúnaði vanþróaðra ríkja eru venjulega augljósar. Mat- vælaframleiðslan byggist oft á fjölmörgum bændum, sem flestir hafa mjög litlar jarðir og afrakstur þeirra nægir oft tæplega til lágmarksframfær- is fjölskyldunnar. Og ofan á þetta bætist, að framleiðslu- geta hins ræktaða lands er venjulega lítil í þeim ríkjum, sem hafa litlar jarðir. Sérstak- lega á þetta þó við í vanþró- uðum ríkjum, þar sem fram- leiðsluaðferðir bændanna eru vanþróaðar og úreltar, og þar sem bændur eiga lítinn eða engan kost á lánsfé til kaupa á nauðsynlegustu rekstrarvör- um, til dænvs áburði. Ofan á þetta bætist víða við vatns- skortur og lélegt áveitukerfi; á öðrum stöðum er úrkoma aft- ur á móti mikil og jarðvegs- binding svo léleg, að vatnið sópar moldinni burtu. Einnig hefur lítið verið gert víðast hvar í vanþróuðum ríkjum til að endurbæta eða halda við frjósemi moldarinnar. Bænd- urnir eru fáfróðir um nýja tækni og framleiðsluhætti og jafnvel tortryggnir gagnvart þeim, sökum fastheldni við Frá dælustöð í Nígeríu. Nolckrum slíkum dælustöðvum verður væntanlega komið upp fyrir hluta þess fjár, sem Herferð gegn hungri safnar á íslandi. Efri myndin er frá Alaotravatni á Madagaskar, en fyrirhugað er að meginhluti þess fjár, er Herferð gegn hungri safnar hér á landi, renni til styrktar fólki því, er býr við þetta vatn og framfærir sér að verulegu leyti með fiskveiðum úr því. — Að neðan: Tvær negrakonur á Fílabeinsströnd við eldamennsku. Hreinlæti og öðrum álika sjálfsögðum atriðum í sambandi við matreiðslu er víða mjög ábótavant í vanþróuðu löndunum, og er húsmæðrafræðslunni, sem Herferð gegn hungri beitir sér fyrir, ekki hvað síst ætlað að bæta úr því. fornar venjur, en tæknilegar leiðbeiningarstofnanir raunar fáar. Lítil framleiðni bænda i van- þróuðu ríkjunum veldur því, að tekjur íbúanna eru lágar og afkoman léleg. Þótt 72% jarð- arbúa búi í vanþróuðum ríkj- um, þá er hlutur þeirra í tekj- um heimsins aðeins 20%. Málið er erfitt viðfangs, en ekki óleysanlegt. Sé fólksfjölg- unin á komandi árum tekin með í reikninginn, þarf að auka matvælaframleiðsluna í vanþróuðum ríkjum um 79% fyrir árið 1975 og um 293% fyrir árið 2000, ef sjá á öllum íbú- um þessara ríkja fyrir nægi- legri fæðu. Telja sérfræðing- ar, að hægt sé að ná þessu takmarki, ef hægt er að auka þjóðartekjur vanþróaðra ríkja um 5% árlega. Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að beita sér af alefli fyrir því, að þessu takmarki verði náð fyrir árið 1970. Leiðin til þess er að auka matvælaframleiðsluna í van- þróuðu ríkjunum sjálfum. End- Framh. á bls. 43. SAMVINNAN 9

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.