Samvinnan - 01.12.1965, Blaðsíða 18
Bretar flytja inn aöra hverja máltíð
Rætt við Guðjón B. Ólafsson um viðskipti SÍS
á stærsta matvörumarkaði vera Idar
16 Eastcheap, þar sem Lundúnaskrifstofa SfS er til húsa.
í götunni Eastcheap í
City of London, kjarna risa-
borgar þessarar sem er
svo forn að í einstaka hús-
grunni má enn finna minjar
brunans sem varð er Bódí-
sea drottning reyndi að
svæla rómverska pakkið af
höndum þjóðar sinnar, þar
er staðsett ein af söluskrif-
stofum SÍS. Útum glugga
framkvæmdastjórans hillir
undir Tower Bridge yf-
ir einskonar mánalandslag
af strompum og þakhryggj-
um og á einstaka svölum við
bakhús hefur kannski verið
hengdur út þvottur. í þessari
útvarðarstöð íslenzkra sam-
vinnumanna starfa sex
manneskjur, brezkar og ís-
lenzkar undir stjórn tæplega
þrítugs Vestfirðings, Guð-
jóns B. Ólafssonar. Hann
tók við stjórn skrifstofunnar
fyrir rúmu ári, en hafði áð-
ur um árabil starfað hjá Út-
flutningsdeild SÍS. Blaða-
maður Samvinnunnar hitti
Guðjón fyrir skömmu að
máli og spurði hann nokk-
urra spurninga varðandi
starf hans þarna á einum
önnum kafnasta markaði
veraldar.
— Saga skrifstofunnar
hér í Lundúnum er ekki
löng, sagði Guðjón. Engu að
síður er hún sú næstelzta af
skrifstofum Sambandsins
erlendis, stofnuð fyrir fjöru-
tíu og fimm árum og þá
staðsett í Leith. Kaupmanna-
hafnarskrifstofan ein er
eldri. Þessi gangur málanna
var næsta eðlilegur, því þá
fóru viðskipti og samgöngur
íslendinga við útlönd að
mestu fram í gegnum þessar
tvær borgir. Snemma árs
1962 var skrifstofan svo flutt
til Lundúna, enda liggur sú
borg prýðilega við mörkuð-
um okkar. Fiskurinn okkar
er ýmist seldur hér eða í
Hull og Grimsby. Allar land-
búnaðarafurðir okkar eru
seldar í Lundúnum. Þá liggja
Lundúnir vel við Frakklandi
og írlandi, sem við höfum
töluverð viðskipti við, og öll
okkar bankaviðskipti eru
hér.
— Hverjir voru fram-
kvæmdastjórar skrifstof-
unnar á undan þér?
— Guðmundur Vilhjálms-
son var þeirra fyrstur og
gegndi starfinu í áratug. Þá
tók við Sigursteinn Magnús-
son er veitti skrifstofunni
forstöðu til ársins 1959. Sig-
ursteinn býr enn í Edínborg
og er þar ræðismaður ís-
lands. — Fyrirrennari minn
í starfinu var svo Sigurður
Markússon, sem nú er fram-
kvæmdastjóri skrifstofu SÍS
í Hamborg.
— í hverju er starfsemi
skrifstofunnar einkum fólg-
in, í stórum dráttum?
— í sölu á íslenzkum af-
urðum og innkaupum á ým-
iskonar vörum fyrir Inn-
flutningsdeild SÍS. Söluvör-
ur okkar eru einkum land-
búnaðar- og sjávarafurðir og
auk þess dálítið af iðnaðar-
vörum frá Iðnaðardeild SÍS.
— Og hvar eru helztu
markaðssvæðin?
— Bretland er það helzta,
eins og ég vék að áðan. Þar
seljum við mestan hluta
sjávarafurðanna og allar
landbúnaðarafurðirnar. Auk
þess seljum við talsvert af
fiski til Frakklands, Ítalíu
og Spánar og dálítið af síld-
ar- og fiskimjöli til írlands.
Við kaupum líka að mestu
leyti inn í Bretlandi, en líka
lítilsháttar í Belgíu. Er þar
einkum um að ræða járn og
girðingarefni.
— Hver er viðskiptaveltan
hjá ykkur?
— Hún nam um 214 millj-
ónum króna síðastliðið ár,
var um 206 milljónir árið
áður.
— Það er að sjálfsögðu
mikið atriði fyrir Samband-
ið að hafa skrifstofu á slík-
um stað?
— Það fer ekki milli mála.
Bretland er langstærsti
markaður fyrir landbún-
aðarafurðir, sem til er í
heiminum, ef frá eru
skildar kornvörur. Það læt-
ur nærri að landsfólkið
þurfi að flytja inn aðra
hverja máltíð, sem það
borðar. Meira en helmingur
af öllu lambakjöti, smjöri,
ostum og mjólkurdufti, sem
flutt er milli landa í heim-
inum, fer á Bretlandsmark-
að. Bretar flytja 9000 tonn
smjörs inn á viku hverri,
12.000 tonn af ostum á mán-
uði og 21 milljón skrokka
lambakjöts árlega. Til sam-
anburðar má geta þess, að
árið 1964 fluttum við út 500
tonn af smjöri, 600 tonn af
ostum og um 100.000 lamba-
kjötsskrokka.
— Og hverjir eru helztu
viðskiptavinir Breta, hvað
þessar vörur snertir?
— Nýsjálendingar eru þar
efstir á blaði. Þeir selja
Bretum um helming allra
osta, sem þeir flytja inn,
hátt í helming alls smj örs og
um 191/2 milljón lambakjöts-
18 SAMVINNAN