Samvinnan - 01.12.1965, Side 21
HEIMILISÞATTUR
4 msk. ávaxtasafi
Safi úr i/2 sítrónu
4 blöð matarlím
2 dl. rjómi
Þeytið eggin með sykrinum þar til
þau eru létt og ijós. Leggið matarlím-
ið í bleyti, bræðið það yfir gufu og
kælið með ávaxtasafanum. Blandið
því síðan út í eggin og hrærið í þar
til byrjað er að þykkna. Bætið rjóm-
anum í og hellið yfir kökurnar á
sama hátt og áður er nefnt.
f staðinn fyrir krem er gott að hafa
rjómaís. (Sjá uppskrift í síðasta jóla-
blaði). ísinn er þá látinn yfir kökurn-
ar rétt áður en hann er borinn fram.
Skreytt á sama hátt.
JÓLAGÓÐGÆTI
Á meðfylgjandi mynd eru pipar-
myntur, fljúgandi diskar, hraun, og
konfekt af mismunandi gerðum. (Sjá
uppskriftir).
Piparmyntur
1 þeytt eggjahvíta
500 g. flórsykur
V2 tsk. piparmyntuolía
Sáldrið flórsykurinn og vætið í hon-
um með eggjahvítu og piparmyntu-
olíu. Hnoðið. Mótið lengjur úr deig-
inu og síðan litlar flatar kúlur. í
hverja kúlu er síðan látin rúsína sem
áður er iijúpuð með súkkulaði. Einn-
ig er ágætt að hjúpa piparmyntumol-
ana með súkkulaði.
Fljúgandi diskar
Mótið piparmynturnar eins og áður
er nefnt, setjið síðan hvern mola á
milli tveggja súkkulaðiplatna, t. d.
kattatungna.
Hraun
125 g. kókossmjör eða jurtafeiti
65 g. flórsykur
50 g. kakaó
65 g. hrís, kornflakes, hnetur eða
möndlur
1—2 msk. rúsínur
Bræðið feitina við hægan hita og
blandið síðan öllu saman. Verði deig-
ið of þurrt, þarf að bæta meiri feiti
við. Smyrjið smjörpappír með olíu
(matarolíu) og setjið deigið með te-
skeið í jafna toppa, sem eru látnir
storkna og síðan geymdir í lokuðu
íláti á köldum stað. Borðað sem sæl-
gæti eða í staðinn fyrir smákökur
með kaffi.
Að ofan: Jólagóðgæti. Til vinstri: Kex með
áleggi-
Konfekt
Möndludeig er auðvelt að búa til, en senni-
lega borgar sig að kaupa það tilbúið, því að það
má drýgja með allt að helmingi flórsykurs og
væta með eggjahvítu og ýmiskonar bragðefn-
um.
í stað möndludeigs er ihægt að nota þykkan
jafning þ. e. 1. dl. hveiti og 1 dl. rjómabland soð-
ið saman og kælt. Hnoðað hæfilega þykkt með
flórsykri og bragðbætt á sama íiátt og áður er
nefnt. Deiginu er síðan skipt í jafn marga hluta
og tegundirnar eiga að vera.
Steinninn er tekinn úr bleyttri sveskju eða
döðlu og möndludeig sett í staðinn, hjúpað með
súkkulaði.
Gráfíkjur eða aprikósur eru skornar í smáa
bita og hnoðað saman við möndludeigið, mótað í
ferkantaða bita, hjúpað og skreytt með þeim
ávöxtum sem í eru.
Framhald á bls. 38.
SAMVINNAN 21