Samvinnan


Samvinnan - 01.12.1965, Page 24

Samvinnan - 01.12.1965, Page 24
MINJASAFNIÐ Á AKUREYRI Þegar ekið er til Akureyrar frá flugvelli, eða úr Þingeyj- arsýslu og Eyjafjarðardölum, vekja athygli trjágarðar mikl- ir og fagrir á íslenzkan mæli- kvarða. Ber þar hæst Gróðr- arstöð Ræktunarfélags Norð- urlands og litlu norðar er trjá- lundur sá, er óx upp í skjóli kirkjunnar gömlu, sem þar stóð. Þessir trjálundir báðir eru upphaf merkilegrar vakn- ingar, sem fór um landið um aldamótin síðustu og eru móð- ir og faðir fjölmargra annarra trjágarða á Akureyri og um byggðir Norðurlands. Vöku- mennirnir voru Páll Briem amtmaður og Sigurður Sigurðs- son, síðar búnaðarmálastjóri og liðsmenn og félagar þeirra. Að miklu leyti hulið af hin- um nyrðri trjálundi er hvítt og fagurt hús, sem stendur allhátt i brekkunni upp af „Fjörunni." Þar er komið fyrir Minjasafni Norðurlands, sem fyrir fáum árum var opnað al- menningi til sýnis. Eins og önnur merk mál og stofnanir á Minjasafnið á Ak- ureyri sína sögu, sem Sam- vinnunni þykir rétt að kynna lesendum sínum að þessu sinni. Heimsótti tíðindamaður rits- ins safnið og fékk fúslega þær upplýsingar, sem um var beðið hjá samlagsstjóra og formanni byggðasafnsnefndar, Jónasi Kristjánssyni og safnverðinum Þórði Friðbjarnarsyni bygg- ingameistara. Þórður er Skag- firðingur að ætt, fæddur að Keldum í Sléttuhlíð 15. sept. 1909. Hann réðist sem vörður að Minjasafninu á Akureyri 15. maí 1962, en næstu ár á undan hafði hann einkum staðið fyr- ir byggingum félagsiieimila í Eyjafirði og Ólafsfirði. Hans fyrsta verk í þágu safnsins var að fara stutta ferð til Norðurlanda, einkum til Noregs, til þess að kynna sér hliðstæð söfn, fyrirkomulag þeirra og uppsetningu. í þeirri ferð naut hann einkum fyrir- greiðslu og leiðbeininga Far- tein Valen-Sandstad, forstjóra hins fræga byggðasafns í Lille- hammer. Um sama leyti hafði Minjasafnið fest kaup á húsi því, sem fyrr er nefnt og síðar verður meira frá sagt. Eftir heimkomuna hóf Þórður nauð- synlegar breytingar og við- gerðir á húsinu og síðan skrá- setningu muna, sem nokkuð var á veg komin áður, og að koma þeim fyrir í herbergjum hússins. Áður var búið að safna og skrásetja n. 1. 700 muni. Þetta sama sumar, hinn 29. ágúst 1962 átti Akureyrarbær aldarafmæli. Hafði þeim mun- um, sem þá voru til, verið komið fyrir til bráðabirgða og höfð sýning á þeim í tilefni almælisins í eina viku. Hins vegar var safnið opnað 17. júní 1963. Oft munu áhugamenn á Ak- ureyri og í Eyjafirði hafa rætt um það sín á meðal, hversu rík þörf væri að varðveita gömul hús og gamla muni og minjar, sem safnlegt gildi hafa, en lengi vel voru framkvæmd- ir litlar. Það sem fyrst kemur opinberlega fram um málið svo vitað sé, var á aðalfundi Mjólkursamlags KEA hinn 8. apríl 1949, en þá gerðu þeir Eiður Guðmundsson á Þúfna- völlum og Þórarinn Kr. Eldjárn á Tjörn safnmálið að umtals- efni og samþykkti fundurinn tillögu frá Þórarni um það, að eyfirskir bændur stofni til minjasafns um mjólkuriðnað Efsta mynd: Brauðmót, notað til þess að breiða út á flatbrauð. Á brauðmótin er skorið með spegilskrift, sem þá kemur rétt á brauðið. Texti: Allra augu vona til þín drottinn. I miðið: Hand- kvörn úr íslenzkum steini, mun minni en venjulegar kvarnir og nefnd kaffikvörn. Neðst: Tágakarfa, íslenzkt dvergsmíði. Á síðu 25: Efri hluti af útskornum skáp úr Hrafnagilskirkju og síðar Akureyrarkirkju, með ártalinu 1672. 24 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.