Andvari - 01.10.1959, Side 12
122
SVEINN VÍKINGUR
ANDVARI
þeim felast margháttaðar endurbætur á elclri löggjöf, senr hér er elcki rúm
til að rekja.
Þess er rétt að geta hér, að í biskupstíð herra Sigurgeirs voru byggð
rúmlega 30 íbúðarhús handa prestum og yfirleitt bæði stærri og vandaðri en
áður liafði tíðkazt. Ennfremur var stórhækkað framlag til endurbóta á eldri
íbúðarhúsum presta og mörg þeirra gerð upp að verulegu leyti.
Hér má og nefna lögin um kirkjubyggingasjóð, enda þótt þau væru ekki
endanlega afgreidd fyrr en nokkrum mánuðum eftir lát hans (1. nr. 43, 14.
apríl 1954). Bæði átti hann frumkvæðið að þeim lögum og hafði í raun og
veru tryggt samþykki þeirra áður en hann féll frá. Með þessum lögum er
stoínaður lánasjóður til kirkjubygginga, og leggur ríkið sjóðnum árlega 500
þúsund krónur á ári næstu 40 árin, eða alls 20 milljónir króna. Úr sjóðnum
eru veitt vaxtalaus lán til langs tíma, bæði til kirkjubygginga og aðgerða á
eldri kirkjum. Hefur þegar að þessu orðið hinn mesti styrkur, enda kirkju-
byggingar mjög farið í vöxt, síðan sjóðurinn tók til starfa.
Loks er að geta þess, að Sigurgeir biskup lét sér jafnan mjög annt um
að bæta hag og kjör prestanna. Má þakka honum að verulegu leyti þær kjara-
bætur, sem prestar fengu, bæði áður en launalögin 1945 voru sett, þá réttingu
á launum presta, sem í þeim lögum fólst, og ennfremur launahækkanir presta
á núgildandi launalögum, en að þeim átti Prestafélag Islands og að sjálfsögðu
nokkurn hlut. Hann gekk og fram í því af miklum áhuga, að hvetja presta
og hjálpa þeim til að geta eignazt bifreiðir til ferðalaga um prestaköll sín, og
hafa nú mjög margir prestar slík tæki.
En jafnframt því að bæta aðstöðu prestanna, gerði hann og til þeirra
kröfur urn það að rækja störf sín með alúð og áhuga. Sjálfur hafði hann á
prestsárum sínum á ísafirði verið brennandi af áhuga, og svo skyldurækinn
í starfi, að af bar, og lét sér ekkert þar óviðkomandi, er vera mætti söfnuð-
unurn til uppbyggingar og heilla. Þeim, sem vita vildu gleggri skil á því starfi,
vísa eg á að lesa minningargrein um hann eftir eitt af sóknarbörnum hans,
Elías J. Pálsson kaupmann á ísafirði. Birtist hún í tímaritinu Lindin 1957.
Þar má og glöggt finna þann hlýja hug, sem sóknarfólkið bar til hans.
Herra Sigurgeiri biskupi var það snemma ljóst, að breyta þyrfti á ýmsa
lund starfsháttum kirkjunnar og prestanna í samræmi við breytta tíma. Taldi
hann einkum þörf á því, að meira yrði gert fyrir æskuna en áður og að reynt
yrði að efla sambandið á milli skóla og kirkju. Hvatti hann prestana til þess
að halda barnaguðsþjónustur og stofna kristileg æskulýðsfélög. Þetta bar og
verulegan árangur. Barnaguðsþjónustum fjölgaði mjög og allvíða gengust prest-
arnir fyrir stofnun æskulýðsfélaga. Nokkrir þeirra hófu að gefa út safnaðar-