Andvari - 01.10.1959, Page 13
ANDVABI
DR. SIGURGEIR SIGURÐSSON BISKUP
123
blöð. Hann gekkst fyrir því, að prestar heimsæktu skóla og flyttu þar erindi
og fór sjálfur í nokkrar slíkar fyrirlestraferðir í skólana. Hann varð og fyrstur
manna til þess að hvetja presta til þess að nota kvikmyndir í þjónustu
kirkjunnar og kristindómsfræðslunnar. Gekkst hann fyrir því, að kirkjuráð
keypti handhæga sýningarvél ásamt nokkrum kvikmyndum og lánaði þetta
þeim prestum, er þess óskuðu. Má telja líklegt, að kvikmyndir og skugga-
myndir verði í náinni framtíð veigamikill þáttur í starfi kirkjunnar fyrir æsku-
lýðinn. Hefur svo verið víða erlendis um alllangt skeið. Enn er að geta þess
nýmælis, er biskupinn kom á almennum bænadegi í kirkjum landsins og
valdi til þess 5. sunnudag eftir páska. Hafa þær guðsþjónustur jafnan verið
vel sóttar og þessi tilbreytni fallið þjóðinni vel í geð.
Með vaxandi starfi fylgdu vaxandi umsvif og störf við embættið. Sjóðir
í vörzlu þess ukust ört og starfið varð margþættara. Af þessum sökum var
ráðinn sérstakur biskupsritari árið 1942, er jafnframt var skrifstofustjóri biskups
og hafði hann liina daglegu afgreiðslu og fjárreiður embættisins á hendi. Og
smátt og srnátt fékk skrifstofan bætt og stækkuð húsakynni.
Islenzka kirkjan hefur löngurn verið einangruð og tiltölulega lítil sam-
skipti liaft við aðrar kirkjudeildir, nema þá helzt á Norðurlöndum. Biskupi
var það ljóst, að þessa einangrun þurfti að rjúfa. Konni þar ýmsar leiðir til
greina. Gerðist íslenzka kirkjan á lians dögum aðili að Heimssambandi lútherskra
kirkna (Lutheran World Federation), Alkirkjuráðinu (The World Council of
Churches) og Kirknasambandi Norðurlanda (Nordisk Ökumenisk Institut).
Ennfremur var hann í samtökum höfuðbiskupa Norðurlanda og sótti fundi
þeirra oftar en einu sinni.
Alh þetta varð að sjálfsögðu til þess að efla gagnkvæma kynning á milli
íslenzku kirkjunnar og höfuðleiðtoga annarra lútherskra kirkna um víða veröld
og knýta vináttubönd þar í millum til heilla og blessunar. Þetta varð og
til þess, að ýmsir prestar fengu tækifæri til þess að sækja fjölmenn kirkju-
þing erlendis og kynnast kirkjulegu starfi, áhugamálum og vandamálum, sem
efst voru á baugi hverju sinni. Þessi auknu samskipti við erlendar kirkjur
hafa og stuðlað að því að greiða guðfræðinemum og ungum prestum leiðir til
lramhaldsnáms erlendis. Hafa og utanfarir presta til nárns og kynningar mjög
farið í vöxt í biskupstíð hans. Jafnframt fóru og heimsóknir erlendra kirkju-
leiðtoga og presta mjög vaxandi á þessum árum.
Eigi verður svo skilizt við þennan þátt í starfi Sigurgeirs biskups, að eigi
sé minnzt á starf hans að því að treysta bróðurböndin á milli Islendinga vestan
hafs og austan og samband systurkirknanna íslenzku báðum mcgin hafs. Hann
var fulltrúi Islands á 25. þingi Þjóðræknisfélags íslendinga í Vesturheimi