Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1959, Page 30

Andvari - 01.10.1959, Page 30
140 JAKOB THORARENSEN ANDVARI að lialla sér að framhýsum. Á fáeinum hæjum höfðu þó eldakonur burtsofnað yfir hlóðarpottum, — sjáanlega hvarvetna verið unnið meðan dagur entist. Utan dyra var á flestum bæjum ólíkt meira líf og fjör, stóðið hvíaði og óskapaðist á grundum og grashreiðum og sá ekki á því sútir; mikill leikur var líka í lömbum, sem hoppuðu og skoppuðu í alfrelsi síns einstæða óvitaskapar. Á ltinn hóginn bauluðu kýr mæðulega, undruðust sinnuleysi mjalta- kvenna og vöfruðu síðum júgrum heim að fjósdyrum á venjulegum mjalta- tímum og fóru þar eftir sínum óskeikulu eðlisklukkum, en sneru svo út á töðuvellina aftur, er enginn sinnti þeim að neinu. Hundar voru og daufir í bragði og niðurdregnir, virtust þeir söknuði slegnir og margir þeirra auk þess í nokkrum vandræðum með að draga frarn lífið, sama gilti um ketti, sem sáust raunar ekki nema sárfáir. Af Héraði hélt ferðalangurinn niður til fjarðanna og komst eftir fáförnum koppagötum til Mjóafjarðnr, en þar var sama sagan og annars staðar, allt var dautt og burtu horfið. Þegar betur var að gætt virtist þó á kotbæ einum senr reykjareimur úr strompi, — ef það var þá eigi missýning. Hann lét hestinn tölta í áttina, en þegar kom í hlaðið var bærinn harðlæstur. Hann tók þá að berja að dyrum og barði lengi þrjú högg á þrjú högg ofan, en án árangurs langar stundir, loks þóttist liann ]ió heyra eins og þrusk, sem hent gat til að lífsmark væri inni fyrir. ,,Hver er útir'1 var senn kallað þægilegri kvenrödd innan þeirra læstu dyra. „Það er maður," anzaði hann. „Lifandi maður," var spurt. „Jú, jú, svo er, — lifandi er ég.“ „Er mér óhætt að treysta því?“ „Ja-há, það er þér óhætt, — ég er lifandi, það skaltu sanna." „Og heitir hvað?“ „Sighvatur." Þá opnaði stúlkan og kvaðst hún heita Sesselja. „Maður er manns gaman," sagði hann. „Svo má víst segja," anzaði hún. — „Þvílíkt ástand sem hér er orðið." „Eru ekki fleiri á lífi hér um slóðirr" sagði hann. „Ekki mér vitanlega ein einasta manneskja hér í Mjóafirði önnur en ég,“ gegndi stúlkan. „En það var sagt að þeir væru ögn að hjarna við hér suður undan. Eins heyrðist að í Hjaltastaðaþinghánni væri hfsvon um suma.“ „Óekkí, það hygg ég því miður orðum aukið," sagði hann. ,,Ég kem einmitt ofan af Héraði og get vottað það, að í Hjaltastaðaþinghánni mun engin lifandi sála, né heldur í nokkurri annarri sveit þar efra.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.