Andvari - 01.10.1959, Side 73
ANDVARI
IIINRIK VIII. OG ÍSLAND
183
Dana, en sé miður vinsamlegur í garð
Hamborgara.08) Hinrik mátti illa við því
að skipa Danakonungi í hóp andstæðinga
sinna, en Hansamenn gat hann fremur
neitt til undanhalds með því að hafa í
hótunum við þýzka Lundúnakontórinn.
Stálgarðsmenn voru nú einnig orðnir
uggandi um sinn hag. Þeir rituðu borgar-
ráði Lýbiku og báðu það að sjá til þess,
að Hamborg og Brimum yrði vikið úr
Hansasambandinu, ef þessar borgir sætt-
ust ekki við Englandskonung. Að öðrum
kosti telja þeir eyðingu Hansakontórsins
í Lundúnum blasa við. Þeir skrifuðu
einnig Hamborgurum rækilegt bréf og
röktu allar þær ógnir, sem að sér steðj-
uðu, og báðu þá að ástunda friðsetud
við Englendinga á íslandi og refsa sek-
um mönnum, því að ella yrði Hansa-
kontórinn fyrir hræðilegu tjóni. Þeir
segja m. a., að Hansamönnum muni
óskaðlegt að liggja í sömu höfn og Eng-
lendingar á Islandi, af því að þeir síðar-
nefndu dragi að mestu sjálfir þann fisk,
sem þeir flytji úr landi.09) Með þessari
röksemdafærslu vilja Englendingar ef-
laust fá Hansamenn til þess að blanda
sér ekki í deilur, sem að mestu levri
voru sprottnar af enskum fiskveiðum við
ísland, en þær hafa verið Englendingum
ólíkt mikilvægari en verzlun þeirra við
Islendinga.
Með þessum bréfagerðum lauk þessu
máli árið 1532, en þann 15. jan. 1533
er sendifulltrúi Hinriks VIII., Thomas
Lee, kominn til Hamborgar á leið til
samninga við Danakonung og fulltrúa
Hamborgara og Brimara. Þá varð uppi
fótur og fit hjá ráðinu í Idamborg, því
að ráðherrarnir skynjuðu sér til nokk-
urrar skelfingar, að þá skorti mjög
menntun til viðræðna við hinn konung-
lega legáta. Dr. Lee lá latnesk tunga
mjög létt á vörum, en bæði latína og
enska voru Hamborgurum allframandi,
þótt þeir ættu sæmilega lærðum mönn-
um á að skipa eins og Hermanni Röver
ráÖsritara. Eftir skamma dvöl í Hamborg
hélt Dr. Lee til hallarinnar Gottorp í
Slésvík til fundar við Friðrik konung,
cn Hamborgarar sendu hraðboða út af
örkinni til nærliggjandi borga og báðu
þær að ljá sér sína lærðustu menn í
nokkrar vikur til samninga við hálærðan
fulltrúa Hinriks VIII. I Rostock var einn
slíkan mann að finna, Dr. Johannes
Oldendorp, sem um þessar mundir var
einn snjallasti lögspekingur Þjóðverja.
Dr. Lee kom aftur til Hamborgar frá
fundi við Danakonung þann 29., og var
Oldendorp þá fyrir í borginni og var
ráðunautur Hamborgara við þá sanm-
inga, sem í hönd fóru.70)
Þann 30. jan. hófst samningafundur í
Hamborg, og er það skemmst af honum
að segja, að þar náðist ekkert samkomu-
lag um aðaldeilumálin. Ilamborgarar
neituðu öllum sökum, og báru einkurn
fram fyrir hönd manna sinna, að Eng-
lendingarnir, sem féllu á Islandi sumarið
1532, hefðu verið dæmdir óbótamenn af
íslenzkum dómstól undir forsæti biskupa
og lögmanna, en Dr. Lee krafðist refs-
ingar sekra manna og £ 3909.10.8 eða
39095 þýzkra marka í skaÖabætur.71)
Þegar útséð var um þetta mál, mun
Dr. Lee hafa lagt fyrir fundinn drög að
reglugerð um íslandssiglingar. Hún er
lögð frarn 7. febrúar, en gengið endan-
lega frá henni þann 10. s. m., og nefn-
ist hún þá: Formulae quaedam ad con-
servandam in Islandia Pacern omnium
negotium sic obiter concepte, ut suo tem-
pore tum a Superioribus Magistratibus,
tum a subditis ad quamcumque emen-
dationem legitime ratificentur". (Reglu-
gerð til þess að varðveita frið milli allra
höndlunarmanna á Islandi sett með þeim
fyrirvara, að hún hljóti síÖar endurbæt-
ur og löglega staðfestingu æðstu yfir-