Fréttablaðið - 10.09.2009, Page 8
8 10. september 2009 FIMMTUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Hugmyndir hagfræð-
ingsins Josephs Stiglitz, um að hús-
næðislán skuli tengd launum frem-
ur en vísitölu neysluverðs, yllu því
að meira samræmi yrði í þróun
greiðslugetu og greiðslubyrði, yrðu
þær framkvæmdar. Einnig leiddi
sú tenging til minni sveiflna.
Það kann þó að vera „skamm-
góður vermir fyrir lántakendur
að viðmiði verðtryggðra lána verði
breytt á þennan hátt,“ segir í pistli
greiningardeildar Íslandsbanka.
Þar eru reifuð sjónarmið Stiglitz,
úr blaðinu í gær. Hagfræðingurinn
sagði þar að íslensk húsnæðislán
hefðu verið gallaðar vörur, sem
tryggðu lánveitandann en gerðu út
af við lántakandann. Meðal lausna
væri fyrrgreind tenging við laun
og lenging lána til áratuga, fyrir
þá sem ekki geta borgað.
Þessar hugmyndir geta haft í för
með sér mikla ókosti, segir grein-
ingardeildin.
Jón Bjarki Bentsson, hagfræð-
ingur hjá Íslandsbanka, segir að
orð Stiglitz hljómi eins og hann
hafi ekki gert sér fullkomlega
grein fyrir því hvernig íbúðalána-
kerfið hér virkar.
„Flestir eru lítið að borga niður
höfuðstólinn. Þótt svoleiðis lán sé
lengt lækkar greiðslubyrðin sára-
lítið, jafnvel þótt farið sé úr fjöru-
tíu ára láni og í sjötíu,“ segir Jón
Bjarki.
Honum þætti eðlilegra að auka
áherslu á óverðtryggð lán. „Ef
ekki er hægt að gera það eins og í
löndunum í kringum okkur er það
til marks um að íslenska krónan sé
vandmeðfarnari en gjaldmiðlar í
nágrannalöndunum,“ segir hann.
Í pistli greiningardeildar er bent
á að breytingar á launavísitölu
fylgi almennri hagsveiflu betur en
verðbólgan, sem hafi „tilhneigingu
til að hækka snarpt í kjölfar falls
krónu á samdráttartímum, og auka
þar með við erfiðleika skuldara á
samdráttartímum“. Fyrirkomu-
lag Stiglitz gæti því stutt betur við
hagstjórnina en ríkjandi skipan.
Sé litið til lengri tíma megi hins
vegar sjá að launavísitala hefur
hækkað um 29 prósent umfram
vísitölu neysluverðs síðan 1991,
þrátt fyrir neikvæða kaupmáttar-
þróun undanfarið. Höfuðstóll
þeirra og greiðslubyrði hefði því
hækkað hraðar en ella í launateng-
ingu.
Jón Bjarki fellst þó á að það, að
ekki sé gert ráð fyrir því að laun
kunni að lækka þegar verðbólga
aukist, sé vissulega „stóri gallinn
við kerfið“. klemens@frettabladid.is
20% AFLSLÁTTUR
AF ÖLLUM FISKI OG FISKRÉTTUM
tilboðið
gildir í dag
KANADA, AP Tæplega sextugur
Kanadamaður, Roger Walsh, var
dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir
að aka niður konu í hjólastól.
Walsh var blindfullur og ók
skömmu síðar út í skurð þar sem
hann var svo handtekinn. Þetta
var í nítjánda sinn sem hann
hlýtur dóm fyrir að aka undir
áhrifum áfengis.
Dómari í Quebec sagði Walsh
greinilega óforbetranlegan og
miklar líkur á að hann brjóti af
sér í framtíðinni.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu
Kanada sem lífstíðardómur
er kveðinn upp vegna ölvunar-
aksturs. - gb
Drykkjumaður í Kanada:
Ævilangt fang-
elsi fyrir akstur
KÓLUMBÍA Alls hafa 27 baráttu-
menn fyrir réttindum verkafólks
verið myrtir í Kólumbíu frá ára-
mótum. Tveir voru myrtir í síð-
ustu viku, að því er fram kemur
á vef ASÍ. Verkalýðshreyfingin í
Kólumbíu og hin alþjóðlega hafa
ítrekað beðið kólumbísk stjórn-
völd um að stöðva blóðbaðið, segir
á vef ASÍ.
Annar þeirra sem myrtir voru í
síðustu viku starfaði fyrir alþjóða-
fyrirtækið Nestlé. Skömmu áður
en hann var skotinn til bana hafði
verkalýðsfélag hans sett fram
kröfur á hendur fyrirtækinu. - bj
Verkalýðsfólk myrt í Kólumbíu:
Alls 27 myrtir
frá áramótum
ATVINNUMÁL Bæjarstjórn Akraness
samþykkti á fundi sínum á þriðju-
dag áskorun til ríkisstjórnarinnar
um að rekstur Sementsverksmiðj-
unnar á staðnum verði tryggður til
framtíðar. Skessuhorn segir frá.
Í samþykktinni kemur fram að
rekstur verksmiðjunnar sé mikil-
vægur hlekkur í atvinnustarfsemi
á Íslandi. Allt að 150 manns á
Akranesi byggi afkomu sína á
starfsemi verksmiðjunnar og mjög
veigamiklir hagsmunir felist í
gjaldeyrissparnaði með notkun
íslensks hráefnis. Þá skorar bæjar-
stjórn Akraness á þingmenn Norð-
vesturkjördæmis að fylgja ályktun-
inni eftir. - shá
Sementsverksmiðjan:
Stjórnvöld
tryggi rekstur
FRÁ AKRANESI 45 manns vinna í verk-
smiðjunni. FRÉTTABLAÐIÐ/H.KR
JAPAN, AP Yukio Hatoyama, leið-
togi Lýðræðisflokksins í Japan,
hefur boðið tveimur smáflokkum
að ganga með sér í stjórnarsam-
starf, þrátt fyrir ágreining flokk-
anna þriggja um utanríkismál
og veru bandarískra hermanna á
eyjunni Okinawa.
Þau Shizuka Kamei, leiðtogi
Nýja þjóðarflokksins, og Mizuho
Fukushima, leiðtogi Sósíaldemó-
krata, segja stjórnarsáttmálann
góðan. Bæði verða þau ráðherrar
í nýju stjórninni.
Lýðræðisflokkurinn vann yfir-
burðasigur í þingkosningum fyrr
í mánuðinum, og gæti myndað
stjórn án aðildar annarra flokka.
Í næstu viku kýs þingið um nýja
ríkisstjórn. - gb
Stjórnarmyndun í Japan:
Tveir smáflokk-
ar með í stjórn
KAMEI, HATOYAMA OG FUKUSHIMA
Leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tenging við laun er
skammgóður vermir
Hugmyndir Josephs Stiglitz um verðtrygginguna gætu stuðlað að styrkari hag-
stjórn, en hafa einnig mikla ókosti. Eðlilegra væri að auka áherslu á óverðtryggð
lán, ef krónan leyfir. Hann þekki kannski ekki íbúðakerfið fyllilega.
ÍBÚÐIR Í MIÐBÆNUM Lántakendur borga og borga en eignast lítið í húsnæðinu
sínu. Nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stiglitz hefur stungið upp á því að lán verði
tengd launum frekar en neysluverði. Greiningardeild Íslandsbanka mælir ekki
með því. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
■ „Ég hef barist gegn þessari glóru-
lausu verðtryggingu frá því nokkru
fyrir aldamót. [...] Verðtryggingin
verður að fara og við verðum að
búa við lán sem eru sambærileg
því sem gerist á hinum Norður-
löndunum.“ - Jón Magnússon,
fyrrverandi þingmaður.
■ „Það er ekki góð hugmynd að
tengja lán fremur við launavísi-
tölu en neysluverðsvísitölu!! [...]
Ef spár um hagvöxt á næsta ári
ganga eftir snýst þessi þróun aftur
við og þá hefði betur verið heima
setið en af stað farið!“ - Tryggvi
Þór Herbertsson þingmaður.
VIÐBRÖGÐ VIÐ STIGLITZ
Lítið veitt af úthafskarfa
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu
NEAFC (Norðaustur-Atlantshafs-
fiskveiðinefndinni) var búið að
veiða 2.310 tonn af úthafskarfa 7.
septem ber. Þetta eru 22 prósent af
umsömdum sameiginlegum 10.500
tonna kvóta aðildarþjóða NEAFC.
Þrjú íslensk skip hafa fengið leyfi til
þessara veiða og samkvæmt upplýs-
ingum Fiskistofu hafa þau ekki haldið
til veiða.
SJÁVARÚTVEGSMÁL
1 Hve mikið hækkar fram-
færsla námsmanna hjá LÍN?
2 Í hvaða borg í Bandaríkjun-
um eru nú íslenskir dagar?
3 Hvaða ungi íslenski knatt-
spyrnumaður hefur staðið sig
gríðarlega vel með Odense
Boldklub?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46
ÍÞRÓTTIR Íslendingar sigruðu Ísraela
með sjö mörkum gegn engu í leik
U17-liða kvenna á Kópavogsvelli í
gær. Þar af skoraði Þórdís Sigfús-
dóttir tvö mörk, með mínútu milli-
bili. Leikurinn var þáttur í undan-
keppni fyrir Evrópumótið 2011.
Félagið Ísland-Palestína hafði
boðað til kurteislegra mótmæla á
leiknum, til að minna á að „Ísrael
skuli sniðgengið á sviði viðskipta,
menningar- og íþróttaviðburða á
meðan ísraelsk yfirvöld neita að
fara að samþykktum Sameinuðu
þjóðanna“.
Um tíu manns voru að mótmæla
þegar ljósmyndara blaðsins bar að
garði.
Lögreglumenn voru á staðnum
og talað um að óeinkennisklæddir
sérsveitarmenn væru þar einnig.
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
Framsóknar í Kópavogi og vall-
arstjóri Kópavogsvallar, gat ekki
staðfest þetta.
„Þetta er ekki vinnunúmerið
mitt sem þú ert að hringja í, þetta
er einkanúmerið mitt,“ sagði hann
í upphafi samtals. Miklu skipti í
hvort númerið væri hringt.
Spurður seinna í samtalinu
hvort hann gæti staðfest þetta með
sérsveitarmennina sagði hann:
„Nei, enda tala þeir ekkert sér-
staklega við mig. Það er bara opið,
ekki selt inn eða neitt.“ Hann vissi
þó til að lögreglubíl hefði verið
lagt fyrir utan. - kóþ
Fáir mættu til að mótmæla hernámi Ísraela á Kópavogsvelli í gær:
Sjö-núll fyrir Íslendingum
FRÁ MÓTMÆLUNUM Þótt mótmælend-
urnir hafi verið fáir gátu þeir huggað sig
við mikinn sigur gegn Ísraelsmönnum á
Kópavogsvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VEISTU SVARIÐ?