Fréttablaðið - 10.09.2009, Síða 32

Fréttablaðið - 10.09.2009, Síða 32
 10. SEPTEMBER 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● tómstundir Fólk hugar að sjálfu sér, leitar inn á við og byggir sig upp í kreppunni, til dæmis með því að fara í hot-jóga sem er nýjasta æðið hjá líkamsræktar- iðkendum. „Hot-jóga var þróað af manni sem heitir Bikram Choudhury en það byggist á hatha-jóga. Bikram þessi slasaðist alvarlega á hnjám og átti ekki að geta gengið aftur en þjálfari hans og jógakennari í Indlandi beitti þá þessari aðferð að nota hitann við æfingarnar. Þannig náði Bikram fullum bata því hitinn gerir það að verkum að iðkun líkamans verður dýpri,“ segir Jóhanna Karlsdóttir, jóga- kennari í Sporthúsinu. Hún fór til Taílands fyrir nokkrum árum sem ferðamaður, prófaði og heill- aðist af þessari tegund jóga þar sem æfingarnar eru gerðar í mikl- um hita, eða 37-40° C. „Ég ákvað síðan tveimur árum seinna að fara til Taílands og læra þessi fræði og síðan hef ég verið að kynna þetta kerfi fyrir Íslendingum og kenna og viðtökurnar hafa vægast sagt verið góðar.“ Hot-jóga tekur jafnt á öllum vöðvaflokkum líkamans, það er sérstaklega hannað til þess að styrkja hrygginn því hann er þungamiðja líkamans. „Hitinn er svo mikilvægur vegna þess að hann gerir það að verkum að allur líkaminn hitnar upp, fólk kemst dýpra inn í stöðurnar, vöðvarn- ir verða mýkri og það minnkar hættu á meiðslum. Það er óhætt að segja að það leki af fólki svit- inn en um leið losar líkaminn og húðin sig við ýmis úrgangsefni og verður mýkri. Í stöðunum eru einnig liðamótin sveigð og beygð svo að þau opnast betur og orku- flæðið um líkamann batnar,“ segir Jóhanna. En hvað gerir hot-jóga fyrir sálar lífið? „Fólk þarf að ein- beita sér það mikið að líkaman- um í tímum að það róar sálina og hreinsar hana jafnvel. Við endum svo á stuttri slökun sem á að virka enn betur til að róa hugann. Hot- jóga er því ekki síður gott fyrir sál en líkama. Það fylgir því mikil vellíðunartilfinning.“ EFTIRSPURN FRAMAR VONUM Gunnhildur I. Þráinsdóttir, um- sjónarmaður námskeiða í Sport- húsinu, segir að þau hafi ekki búist við jafn mikilli eftirspurn í hot-jóga og raunin hafi verið. „Þetta er alveg geysilega vinsælt en um 200 manns stunda þetta hér og við erum enn að bæta við námskeiðum því eftir- spurnin er svo mikil. Við erum eina líkamsræktarstöðin sem hefur sér- hannað sal með innbyggðu hita- kerfi fyrir þessa tegund jóga og Jó- hanna er eini menntaði kennarinn á Íslandi í hot-jóga. Hvert námskeið stendur í 6 vikur og við bjóðum upp á 60 mínútna tíma tvisvar í viku, og 90 mínútna tíma tvisvar eða þrisvar í viku.“ Hot-jóga skal stundað í 37 til 40° C heitum sal Jóhanna Karlsdóttir jógakennari fór alla leið til Taílands til þess að læra hot-jóga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Prjónarnir tifa ótt og títt í höndum Steinþóru Þor- steinsdóttur, listakonu í Hafnarfirði, og nú hefur hún ákveðið að gefa fleirum hlutdeild í ánægjunni sem prjónaskapnum fylgir og efna til grunnnám- skeiða í honum. Þátttakendur mæta heima hjá henni að Furuvöllum 32 í Hafnarfirði á fimmtudagskvöld- um en hún segir hugsanlegt að hún bæti þriðjudags- kvöldunum við. „Ég hef alla tíð prjónað mikið en á dóttur sem er þrítug og hún og hennar vinkonur kunna ekki að prjóna svo ég bauðst til að kenna þeim. Svo spurð- ist það út og vatt upp á sig. Áhuginn á prjónaskap er mikill núna því það er svo margt smart í gangi.“ Steinþóra reiknar með að þátttakendur komi með prjóna og garn og mælir ekki síst með lopa. Sjálf á hún ýmsar uppskriftir en segir hvern og einn velja það sem hann langar til að prjóna. „Ég kem þeim af stað og útskýri uppskriftir og skammstafanir. Sumir vita ekki hvað slétt og brugðið þýðir. Þekkja ekki tungumálið,“ segir hún. Fyrsti tíminn fer í að fitja upp og svo koll af kolli. „Ég reyni að setja þetta þannig upp að í fjórða tím- anum sé hægt að klára peysuna eða hvað sem á prjónum er. Legg líka áherslu á að fólk geti alltaf leitað til mín þó það sé ekki á námskeiðum, að við höldumst í hendur.“ Steinþóra rekur Gallerí Steinku þar sem hún selur eigin framleiðslu sem er af ýmsum toga, svo sem skartgripir og munir úr skinni, roði, leir og gleri. - gun Fitjað upp í fyrsta tíma Steinþóra leggur áherslu á að nemendur ljúki því sem á prjónum er meðan á námskeiðinu stendur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það eru alltaf einhverjir sem láta sig dreyma um að læra að fljúga. Hjá Flugskóla Íslands er meðal annars hægt að láta þann draum ræt- ast en fyrstu skrefin í því ferli eru að bóka kynnisflug. Ef manni líkar flugið er næsta skref að tala við afgreiðslu flugdeildarinnar hjá skól- anum sem úthlutar nemendum kennara. Eftir að hafa tekið nokkra tíma með kennara og náð ágætri hæfni fer nemandi einn í æfingaflug. Verklega kennslan fer fram á Reykjavíkurflugvelli en til að bóka kynnisflug er best að hafa samband í síma 514-9400 eða flightdesk@flugskoli.is - jma Dreymt um flugið Miðstöð um símenntun í Reykjavík RITARA- OG SKRIFSTOFUSTJÓRANÁM BÓK113 Bókfærsla TÖN141 Power Point og Publisher LÍB101 Líkamsbeiting og vinnustellingar. SAM103 Samskipti á vinnustað og við viðskiptavini, samtalstækni SIÐ102 Siðfræði SKY101 Skyndihjálp UTÖN103 Ritvinnsla, excel og tölvupóstur STJ101 Stjórnun UMH101 Umhverfisfræði www.framvegis.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.