Fréttablaðið - 10.09.2009, Page 58
42 10. september 2009 FIMMTUDAGUR
Undankeppni HM 2010
1. Riðill
Malta-Svíþjóð 0-1
- Azzoparpi, sjálfsmark.
Albanía-Danmörk 1-1
Erjon Bogdani - Nicklas Bendtner
Ungverjaland-Portúgal 0-1
- Pepe
STAÐAN
1. Danmörk 8 5 3 0 15-4 18
2. Svíþjóð 8 4 3 1 9-3 15
3. Portúgal 8 3 4 1 10-5 13
4. Ungverjaland 8 4 1 3 9-5 13
5. Albanía 9 1 4 4 5-9 7
6. Malta 9 0 1 8 0-22 1
2. Riðill
Ísrael-Lúxemborg 7-0
Lettland-Sviss 2-2
Moldavía-Grikkland 1-1
STAÐAN
1. Sviss 8 5 2 1 15-8 17
2. Grikkland 8 4 2 2 13-7 14
3. Lettland 8 4 2 2 13-8 14
4. Ísrael 8 3 3 2 17-9 12
5. Lúxemborg 8 1 2 5 3-20 5
6. Moldavía 8 0 3 5 3-12 3
3. Riðill
Tékkland-San Marínó 7-0
Milan Baros 4, Vaclav Sverkos 2, Tomas Necid.
Norður-Írland-Slóvakía 0-2
Slóvenía-Pólland 3-0
STAÐAN
1. Slóvakía 8 6 1 1 21-8 19
2. Slóvenía 8 4 2 2 13-4 14
3. N-Írland 9 4 2 3 13-9 14
4. Tékkland 8 3 3 2 15-6 12
5. Pólland 8 3 2 3 19-11 11
6. San Marínó 9 0 0 9 1-44 0
4. Riðill
Liechtenstein-Finnland 1-1
Þýskaland-Aserbaídsjan 4-0
Miroslav Klose 2, Michael Ballack, Lukas
Podolski.
Wales-Rússland 1-3
James Collins - Igor Semshov, Sergei Ignshevich,
Roman Pavlyuchenko.
STAÐAN
1. Þýskaland 8 7 1 0 24-4 22
2. Rússland 8 7 0 1 18-4 21
3. Finnland 8 4 2 2 11-12 14
4. Wales 8 3 0 5 6-10 9
5. Liectenstein 8 0 2 6 2-19 2
6. Aserbaídsjan 8 0 1 7 1-13 1
5. Riðill
Armenía-Belgía 2-1
Bosnía-Tyrkland 1-1
Spánn-Eistland 3-0
Fabregas, Cazorla, Mata.
STAÐAN
1. Spánn 8 8 0 0 21-2 24
2. Bosnía-Herz. 8 5 1 2 21-8 16
3. Tyrkland 8 3 3 2 11-8 12
4. Belgía 8 2 1 5 11-18 7
5. Eistland 8 1 2 5 7-22 5
6. Armenía 8 1 1 6 5-18 4
6. Riðill
Hvíta-Rússland-Úkraína 0-0
Andorra-Kasakstan 1-3
England-Króatía 1-5
Frank Lampard 2, Steven Gerrard 2, Rooney -
Eduardo.
STAÐAN
1. England 8 8 0 0 31-5 24
2. Króatía 9 5 2 2 17-12 17
3. Úkraína 8 4 3 1 14-6 15
4. H-Rússland 8 3 1 4 15-11 10
5. Kasakstan 8 2 0 6 10-23 6
6. Andorra 9 0 0 9 3-33 0
7. Riðill
Færeyjar-Litháen 2-1
Rúmenía-Austuríki 1-1
Serbía-Frakkland 1-1
Nenad Milijas - Thierry Henry.
Rautt spjald: Hugo Lloris (Frakklandi).
STAÐAN
1. Serbía 8 6 1 1 16-5 19
2. Frakkland 8 4 3 1 10-8 15
3. Austurríki 8 3 2 3 11-11 11
4. Litháen 8 3 0 5 7-8 9
5. Rúmenía 8 2 3 3 9-12 9
6. Færeyjar 8 1 1 6 4-12 4
8. Riðill
Svartfjallaland-Kýpur 1-1
Ítalía-Búlgaría 2-0
Fabio Grosso, Vincenzo Iaquinta.
STAÐAN
1. Ítalía 8 6 2 0 13-3 20
2. Írland 8 4 4 0 10-6 16
3. Búlgaría 8 2 5 1 10-7 11
4. Kýpur 8 1 3 4 8-12 6
5. Svartfjallal. 8 0 5 3 7-13 5
6. Georgía 8 0 3 5 4-11 3
9. Riðill
Noregur-Makedónía 2-1
Thorstein Helstad, John Arne Riise - Boban
Grncarov.
Skotland-Holland 0-1
Eljero Elia.
LOKASTAÐAN
1. Holland 8 8 0 0 17-2 24
2. Noregur 8 2 4 2 9-7 10
3. Skotland 8 3 1 4 6-11 10
4. Makedónía 8 2 1 5 5-11 7
5. Ísland 8 1 2 5 7-13 5
ÚRSLIT
Laugardalsvöllur. Áhorf.: 4.726
Ísland Georgía
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 10-5 (6-2)
Varin skot Gunnleifur 1 – Mamaladze 4
Horn 6-2
Aukaspyrnur fengnar 7-16
Rangstöður 1-4
1-0 Garðar Jóhannsson (13.)
2-0 Ólafur Ingi Skúlason (17.)
2-1 Vladimir Dvalishvili (33.)
3-1 Veigar Páll Gunnarsson (55.)
3-1
Matteo Treffoloni (7)
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður...................................................................................................6
Ekki reyndi mikið á hann í leiknum og hann gat lítið gert í markinu.
Grétar Rafn Steinsson, hægri bakvörður (fyrirliði).............................................................................7
Átti frábæran leik fyrsta hálftímann en þurfti því miður að fara þá af velli vegna meiðsla. Lagði upp fyrsta
mark leiksins fyrir Garðar og var mjög virkur í sóknarleiknum.
Bjarni Ólafur Eiríksson, vinstri bakvörður.............................................................................................5
Skilaði sínu skylduverki en ekki mikið meira en það. Tók lítinn sem engan þátt í sóknarleiknum. Honum
var svo skipt út af í hálfleik.
Kristján Örn Sigurðsson, miðvörður.......................................................................................................6
Var klaufi í marki Georgíu í fyrri hálfleik þegar hann átti að hreinsa fyrirgjöf Georgíumanna frá markinu.
Virtist þar að auki ekki jafn öflugur og í síðustu landsleikjum. Skánaði þó til muna í síðari hálfleik.
Indriði Sigurðsson, miðvörður..................................................................................................................7
Átti fínan leik í sinni uppáhaldsstöðu á vellinum. Komst vel frá sínu og hélt sinni stöðu nokkuð vel.
Stefán Gíslason, varnartengiliður...........................................................................................................6
Missti mann inn fyrir sig þegar Georgía skoraði markið og átti margar slakar sendingar í fyrri hálfleik.
Var þó mun skárri í þeim síðari.
Helgi Valur Daníelsson, varnartengiliður..............................................................................................5
Gerði lítið sem miðjumaður í fyrri hálfleik og komst enn minna í snertingu við boltann í þeim síðari
þegar hann lék sem hægri bakvörður.
Ólafur Ingi Skúlason, sóknartengiliður.................................................................................................6
Skoraði sitt fyrsta landsliðsmark og hefði átt að bæta fleirum við en hann fékk tvö úrvalsfæri
til þess. Átti ágætan leik á miðjunni.
Veigar Páll Gunnarsson, hægri kantmaður...........................................................................................7
Einn besti leikmaður íslenska liðsins, þá sér í lagi í fyrri hálfleik þegar hann lagði upp mark Garðars á
einkar laglegan máta. Dró þó af honum eftir því sem á leið.
Emil Hallfreðsson, vinstri kantmaður....................................................................................................5
Miklu meira hefði mátt frá honum, sérstaklega í sóknarleik íslenska liðsins. Gerði þó engin stór
mistök.
Garðar Jóhannsson, framherji..................................................................................................................7
Mjög duglegur og uppskar flott mark. Var stundum einmana í sókninni en var þó duglegur að hlaupa til
baka og sækja boltann. Fínn leikur hjá honum.
Varamenn:
Birkir Már Sævarsson.................................................................................................................................5
Kom inn á fyrir Grétar Rafn á 36. mínútu. Það dró talsvert úr sóknarþunga íslenska liðsins þegar Birkir
kom inn fyrir Grétar. Hann komst lítið í takt við leikinn.
Pálmi Rafn Pálmason.................................................................................................................................6
Kom inn á á 46. mínútu fyrir Bjarna Ólaf. Átti fínan leik á miðjunni og var nokkuð virkur í sóknarleiknum.
Atli Viðar Björnsson....................................................................................................................................-
Kom inn á á 75. mínútu fyrir Garðar.
Björgólfur Takefusa.....................................................................................................................................-
Kom inn á á 84. mínútu fyrir Emil.
Davíð Þór Viðarsson....................................................................................................................................-
Kom inn á á 84. mínútu fyrir Stefán.
Baldur Sigurðsson.......................................................................................................................................-
Kom inn á á 84. mínútu fyrir Ólaf Inga.
FRAMMISTAÐA LEIKMANNA
SENDU SMS SKEYTIÐ ESL FD4
Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ
GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
Vinningar eru: Bíómiðar · Tölvuleikir
Fullt af Pepsi · DVD og margt fleira!
D A U Ð I N N G E Y M D I Þ A Ð B E S T A F Y R I R 3D
F R U M S Ý N D 1 1 . S E P T E M B E R
10. HVERVINNUR!
Vinningar afhentir í ELKO Lindum.149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb
FÓTBOLTI Ísland vann í gær 3-1 sigur
á Georgíu í vináttulandsleik á Laug-
ardalsvelli. Bæði lið mættu mikið
breytt frá síðustu leikjum sínum
en það virtist koma lítið að sök hjá
íslenska liðinu að þessu sinni.
Íslendingar byrjuðu vel og
léku glimrandi fína knattspyrnu
fyrstu 25 mínútur leiksins. Garðar
Jóhannsson og Ólafur Ingi Skúla-
son opnuðu báðir markareikning-
inn sinn fyrir íslenska landsliðið
með flottum mörkum. Ólafur Ingi
fékk svo reyndar stuttu síðar gott
færi til að skora sitt annað mark en
skallaði þá yfir markið.
Íslensku leikmennirnir héldu
boltanum vel á þessum kafla og
léku einfalda en árangursríka
knattspyrnu. Þeir voru duglegir
að sækja upp kantana og sköpuðu
ágæt færi.
En eins og hendi væri veif-
að skiptu íslensku leikmennirnir
algerlega um ham og fóru hrein-
lega að spila illa. Georgía uppskar
ódýrt mark sem hefði auðveld-
lega verið hægt að forða og ógn-
aði þar að auki nokkrum sinnum í
kjölfarið.
Síðari hálfleikur var ágætur.
Ísland byrjaði af miklum krafti
og átti nokkur skot að marki. Það
var svo eftir um tíu mínútna leik
að Ísland fékk víti eftir að varnar-
maður Georgíu handlék knöttinn
innan teigs. Veigar Páll skoraði af
öryggi úr vítinu.
Ísland hélt rónni eftir þetta og
hleypti gestunum aldrei nálægt
sér. Besta færið til að auka
forystuna fengu þeir Ólafur Ingi
og Kristján Örn undir lok leiksins
en allt kom fyrir ekki.
Hector Cuper, landsliðsþjálf-
ari Georgíu, stillti greinilega upp
varaliði sínu í gærkvöld og hefur
íslenska liðið oft mátt glíma við
mun erfiðari andstæðing en það
gerði í gær. Þó skal ekki tekið af
þeim íslensku að þeir komust vel
frá sínu.
„Ég er feykilega ánægður með
sigurinn og það sem ég sá hjá leik-
mönnum,“ sagði Ólafur Jóhannes-
son landsliðsþjálfari. „Við fórum
vel yfir það sem var að í hálfleik
og ég var heilt yfir nokkuð sátt-
ur við frammistöðu okkar. Við
höfum verið í síðustu leikjum að
halda boltanum betur og vil ég
meina að það sé eitthvað sem við
verðum að gera til að bæta okkar
árangur. Þessi leikur og leikurinn
gegn Noregi um helgina fannst
mér sýna vel að leikmenn geta
vel spilað þannig knattspyrnu
enda gera þeir það reglulega með
sínum liðum víða um Evrópu. Af
hverju þá ekki með landsliðinu?“
Næsti leikur Íslands verður
heimaleikur gegn Suður-Afríku
eftir tæpan mánuð. Samningur
Ólafs rennur út um áramótin en
hann veit ekki hvort gengið verð-
ur frá nýjum fyrir næsta leik.
„Ég mun eflaust stoppa við hér í
KSÍ og spjalla við menn en ég veit
ekki hversu fljótt þetta ferli mun
ganga fyrir sig. Eftir næsta leik
verður dregið í riðla í næstu und-
ankeppni og þá mun ég örugglega
byrja á að undirbúa liðið fyrir
hana,“ sagði hann og hló.
eirikur@frettabladid.is
Nú nýttu Íslendingar færin
Ísland vann í gær 3-1 sigur á slöku varaliði Georgíu. Íslenska liðið var að stór-
um hluta skipað reynslulitlum leikmönnum sem flestir sýndu þó að þeir ættu
erindi í liðið. Landsliðsþjálfarinn var afar sáttur við frammistöðu sinna manna.
GRIPU TÆKIFÆRIÐ Garðbæingarnir Garðar Jóhannsson og Veigar Páll Gunnarsson
sjást hér fagna marki þess fyrrnefnda ásamt Helga Val Daníelssyni. Garðar og Veigar
Páll skoruðu sitt markið hvor í 3-1 sigrinum gegn Georgíu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Garðar Jóhannsson var
sáttur við sinn leik gegn Georgíu
en hann skoraði sitt fyrsta lands-
liðsmark í leiknum.
„Ég hefði nú getað skorað
annað en ég er þokkalega sáttur.
Það hefði getað gengið betur en
líka gengið verr,“ sagði Garðar.
„Við byrjuðum miklu betur, en
svo var eins og menn væru hætt-
ir í smá stund. Í seinni hálfleik
settum við aftur í gang. Þetta
var ekki besta landslið sem við
höfum mætt en það þarf að vinna
þessa leiki líka.“ - egm
Garðar Jóhannsson:
Þarf að vinna
þessa leiki líka
GARÐAR Skoraði fyrsta mark Íslands í
leiknum í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI „Ég hef ekki spilað
marga leiki með landsliðinu sem
hafsent en ég fann mig vel,“ sagði
Indriði Sigurðsson eftir leikinn.
„Þetta er auðvitað mín óskastaða
en ég hef skilning á því að við
eigum marga góða hafsenta og ef
þörf er á mér í bakverði þá spila
ég þar.“
Varðandi styrkleika georg-
íska liðsins sagði Indriði: „Þú
ert ekki sterkari en andstæð-
ingurinn leyfir. Við höfum oft
lent í ströggli í svona leikjum en
kláruðum þetta í dag og það er
jákvætt þó að þið blaðamenn vilj-
ið oft snúa þessu upp í eitthvað
neikvætt.“
Indriði telur að íslenska lands-
liðið sé á réttri leið. „Það er samt
synd hvað þetta er að koma seint
en síðustu leikir hafa verið fínir.
Við byrjuðum leikinn í kvöld
mjög vel en slökuðum svo aðeins
á og hleyptum þeim aðeins inn í
leikinn,“ sagði Indriði. - egm
Indriði Sigurðsson:
Erum klárlega
á réttri leið