Fréttablaðið - 14.09.2009, Síða 33

Fréttablaðið - 14.09.2009, Síða 33
MÁNUDAGUR 14. september 2009 17 sport@frettabladid.is VISA-bikar karla Fram-KR 1-0 1-0 Joseph Tillen (78.). Keflavík-Breiðablik 2-3 0-1 Elfar Freyr Helgason (8.), 0-2 Kristinn Jónsson (13.), 1-2 Guðjón Árni Antoníusson (22.), 2-2 Símun Eiler Samuelsen (26.), 2-3 Guðmundur Pétursson, víti (66.). Pepsi-deild karla FH-ÍBV 5-0 1-0 Matthías Vilhjálmsson (24.), 2-0 Atli Viðar Björnsson (28.), 3-0 Atli Guðnason (57.), 4-0 Björn Daníel Sverrisson (75.), 5-0 Atli Viðar Björnsson (84.) Valur-Stjarnan 3-3 0-1 Birgir Hrafn Birgisson (3.), 1-1 Helgi Sigurðs- son (9.), 2-1 Arnar Sveinn Geirsson (24.), 2-2 Þorvaldur Árnason (58.), 2-3 Þorvaldur Árnason (59.), 3-3 Sigurbjörn Hreiðarsson, víti (88.) Fylkir-Þróttur 2-0 1-0 Albert Brynjar Ingason (54.), 2-0 Pape Mamadou Faye (67.). STAÐAN Í DEILDINNI FH 20 15 2 3 54-20 47 KR 19 12 3 4 44-26 39 Fylkir 20 12 3 5 37-23 39 Fram 19 8 4 7 34-29 28 Breiðablik 19 8 4 7 33-31 28 Keflavík 19 6 8 5 29-34 25 Stjarnan 20 7 4 9 41-36 25 Valur 20 7 4 9 24-36 22 Grindavík 19 6 4 9 33-37 22 ÍBV 20 6 4 10 21-36 22 Fjölnir 19 3 5 11 25-41 14 Þróttur 20 3 3 14 20-46 12 1. deild karla Haukar-Selfoss 3-2 ÍA-HK 0-0 Haukar tryggðu sig upp í Pepsi-deildina með þessum sigri og fara þangað með Selfossi. HK varð að vinna ÍA til að eiga áfram möguleika. Enska úrvalsdeildin BLACKBURN-WOLVES 3-1 1-0 El Hadji Diouf (18.), 2-0 Roberts (56.), 3-0 David Dunn (63.), 3-1 Stefan Maierhofer (87.). LIVERPOOL-BURNLEY 4-0 1-0 Yossi Benayoun (26.), 2-0 Dirk Kuyt (40.), 3-0 Yossi Benayoun (60.), 4-0 Yossi Benayoun (81.). MANCHESTER CITY-ARSENAL 4-2 1-0 Micah Richards (19.), 1-1 Robin van Persie (61.), 2-1 Craig Bellamy (73.), 3-1 Emmanuel Adebayor (79.), 4-1 Shaun Wright-Phillips (83.), 4-2 Tomas¡ Rosicky (87.). PORTSMOUTH-BOLTON 2-3 0-1 Tamir Cohen (13.), 1-1 Younes Kaboul (25.), 1-2 Matthew Taylor (41.), 2-2 Kevin Boateng (64.), 2-3 Gary Cahill (89.). STOKE CITY-CHELSEA 1-2 1-0 Abdoulaye Diagne-Faye (31.), 1-1 Didier Drogba (47.), 1-2 Florent Malouda (93.). SUNDERLAND-HULL CITY 4-1 1-0 Darren Bent (13.), 1-1 Kamil Zayatte (42.), 2-1 Andy Reid (49.), 3-1 Darren Bent (64.), 4-1 Sjálfsmark (76.). TOTTENHAM - MANCHESTER UNITED 1-3 1-0 Jermain Defoe (0.), 1-1 Ryan Giggs (24.), 1-2 Anderson (40.), 1-3 Wayne Rooney (77.). WIGAN ATHLETIC - WEST HAM UNITED 1-0 1-0 Hugo Rodallega (54.) BIRMINGHAM - ASTON VILLA 0-1 0-1 Gabriel Agbonlahor (84.). FULHAM-EVERTON 2-1 0-1 Tim Cahill (32.), 1-1 Paul Konchesky (56.), 2-1 Damien Duff (78.). STAÐA EFSTU LIÐA Chelsea 5 5 0 0 12-3 15 Man. United 5 4 0 1 11-3 12 Man. City 4 4 0 0 8-2 12 Tottenham 5 4 0 1 12-7 12 Liverpool 5 3 0 2 13-7 9 Aston Villa 4 3 0 1 6-3 9 Sunderland 5 3 0 2 8-6 9 Stoke City 5 2 1 2 4-6 7 Arsenal 4 2 0 2 13-8 6 Fulham 4 2 0 2 3-5 6 Wigan Athletic 5 2 0 3 4-8 6 Burnley 5 2 0 3 2-9 6 West Ham 4 1 1 2 3-3 4 ÚRSLIT LEIKJA FÓTBOLTI Pape Mamadou Faye fylgdi eftir frábærri frammi- stöðu og þremur mörkum í tveim- ur sigrum 19 ára landsliðsins á Skotum með því að opna marka- reikning sinn í Pepsi-deildinni í 2-0 sigri Fylkis á áhugalitlum og föllnum Þrótturum í gær. Pape kom inn á sem varamaður á 64. mínútu og skoraði markið sex mínútum síðar. Pape fagnaði markinu enda eins og óður væri og reif sig úr að ofan við mikinn fögnuð áhorfenda í Árbænum. „Ég varð að rífa mig úr og fagna almennilega. Ég er búinn að bíða svo lengi eftir þessu marki að ég varð að gera það. Ég vissi að það myndi kosta mig mitt þriðja gula spjald í sumar en það var ekki annað hægt en að fagna þessu með stæl,“ sagði Pape, sem viðurkenndi að marka- leysið hefði kostað hann margar andvökunætur. - aó, óój Fylkir vann 2-0 sigur á Þrótti: Pape skoraði FYRSTA MARKIÐ Pape Mamadou Faye fagnaði markinu vel. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Það var mikið skorað í ensku úrvalsdeildinni um helg- ina þar sem sigurgöngur Chelsea og Manchester City héldu áfram en meistararnir í Manchester United enduðu sigurgöngu Tot- tenham. Chelsea og Manchester United er í efstu tveimur sætun- um eftir að hafa bæði lent undir í sínum leikjum. Emmanuel Adebayor lét sína gömlu félaga í Arsenal finna fyrir því í 4-2 sigri Manchester City en framkoma hans í þessum leik mun hafa eftirmál. Þegar Ade- bayor skoraði, hans fjórða mark í fjórum leikjum, hljóp hann allan völlinn til þess að fagna fyrir framan stuðningsmenn Arsenal. Adebayor baðst strax afsökun- ar eftir leikinn en aganefnd enska knattspyrnusambandsins mun taka þetta fyrir sem og að skoða það þegar hann traðkaði á andliti Robins van Persie, sem sagði að Adebayor hefði gert það viljandi. - óój Emmanuel Adebayor í sviðsljósinu í sigri á Arsenal: Á leiðinni í leikbann HEITAR TILFINNINGAR Emmanuel Adebayor fagnar hér marki sínu fyrir framan stuðningsmenn Arsenal. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Stjörnumenn voru aðeins tveimur mínútum frá því að vinna fyrsta útisigur sinn síðan í 2. umferð og fyrsta deildarsigur sinn síðan 23. júlí þegar þeir gerðu 3-3 jafntefli við Val. Sigurbjörn Hreiðarsson tryggði Valsmönnum stig af vítapunkt- inum annan leikinn í röð en víta- spyrnudómurinn var ódýr og alveg úr takti við það sem var leyft í þessum fjöruga leik. Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, var skiljanlega sár yfir vítaspyrnudómnum sem kostaði liðið fyrsta útisigurinn síðan liðið vann Þróttara 14. maí. „Hann vildi meina að þetta hefði verið gróft tog en ég sá það aldrei. Malli fann ekki fyrir því þannig að ég veit ekki hvað svona mönnum gengur til. Gunnar Jarl er annars frábær dómari sem hefur komið með flotta línu inn í úrvalsdeildina. Ég hrósa honum fyrir það en þetta var ekki sann- gjarnt,“ sagði Bjarni. Þess má geta að þetta var sjötta vítið sem er dæmt á Stjörnuna í Pepsi-deildinni í sumar en liðið hefur hins vegar enn ekki fengið vítaspyrnu. - óój Stjörnumenn voru svekktir: Enn eitt vítið SÁR OG SVEKKTUR Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FORMÚLA 1 Rubens Barrichello minnkaði forskot félaga síns í Brawn-liðinu, Jenson Button, niður í fjórtán stig með því að vinna Monza-kappaksturinn í Ítalíu í gær. Button var kominn með 26 stiga forskot á tímabili en hann lenti í 2. sæti í gær. Finninn Kimi Raikkönen á Ferr- ari komst síðan á verðlaunapall á heimavelli Ferrari. - óój Formúla eitt á Monza í gær: Brawn-liðið vann tvöfalt FJÓRTÁN STIG Rubens Barrichello sækir á Button. NORDICPHOTOS/GETTY FH slátraði ÍBV 5-0 í Kaplakrikanum í gær og ljóst er að ef KR-ingar misstíga sig gegn Breiðabliki á miðvikudaginn verður Hafn- arfjarðarliðið Íslandsmeistari þetta sumarið. Leikmenn FH ætla þó ekki að fjölmenna á Kópavogsvöll þar sem þeir verða á æfingu á sama tíma. „Eftir fyrsta markið var þetta aldrei spurn- ing,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir stórsigurinn í gær. „Maður kannaðist aðeins við FH í þessum leik, einnar snert- ingar fótbolti og góð hreyfing á mönnum. Þá héldum við hreinu annan leikinn í röð svo þetta er allt í áttina.“ Íslandsmeistaratitillinn er handan við hornið en Heimir segir að ekki verði byrj- að að fagna fyrr en liðið sé komið með nóg af stigum. „Þú þarft að treysta á sjálfan þig í þessu og næst er erfiður leikur við Val. Við ætlum að undirbúa okkur vel fyrir þann leik og það þýðir ekkert að spá í neitt annað,“ sagði Heimir. „Við verðum með æfingu á miðvikudaginn svo við munum ekkert horfa á þennan leik hjá KR.“ Tryggvi Guðmundsson segir að leikmenn séu vel minnugir þess sem gerðist í fyrra þegar Keflvíkingar voru í svipaðri stöðu fyrir lokasprettinn. „Þetta var góður sigur í dag en það er nóg eftir,“ sagði Tryggvi eftir leikinn. Það er mikill getumunur milli FH og ÍBV og hann kom bersýnilega í ljós í gær. „Við gáfum okkur alla í þetta í fyrri hálfleik en gáfum vel eftir í þeim síðari. Spilamennskan í fyrri hálfleik var ekki alvitlaus. Seinni hálfleikurinn var hins vegar einstefna og maður sá hausinn á strákunum fara neðar og neðar. Þú spilar ekki með hausinn í bringunni á móti FH-ingum á þeirra heimavelli, það er alveg ljóst,“ sagði Heimir Hall- grímsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn í gær. HEIMIR GUÐJÓNSSON OG HANS MENN: GETA ORÐIÐ ÍSLANDSMEISTARAR Á ÆFINGU Á MIÐVIKUDAGINN Þú þarft að treysta á sjálfan þig í þessu FIMM MÖRK FH-ingar fagna hér öðru marki Atla Viðars Björnssonar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Það verða Breiðablik og Fram sem spila til úrslita í VISA- bikar karla en undanúrslitaleikirn- ir fóru fram á Laugardalsvellinum um helgina. KR og Keflavík hafa verið meiri bikarlið undanfarin ár en nú fá ný lið að reyna sig í stærsta leik sum- arsins. Blikar hafa aldrei unnið bikarinn en Framarar hafa ekki unnið hann í tuttugu ár. Tækifæri til að breyta sögunni Breiðablik lagði Keflavík 3-2 í undanúrslitum VISA-bikars karla í gær á Laugardalsvelli. Breiðablik er komið í úrslit bikarsins í annað sinn í sögu félagsins og fyrsta sinn síðan liðið tapaði 1-0 gegn Víkingum 1971. Blikar hófu leikinn af miklum krafti og voru komnir í 2-0 eftir aðeins þrettán mínútna leik en Keflavík jafnaði metin með mörk- um á 22. og 26. mínútu. Eftir þessa miklu veislu róaðist leikurinn og minna var um færi en Breiða- blik knúði fram sigur með marki úr umdeildri vítaspyrnu á 66. mínútu. „Þetta er góður áfangi og gefur okkur tækifæri til að vera með til að breyta sögunni. Ef við hefðum ekki unnið þennan leik værum við á sama stað og í fyrra og hitti- fyrra. Með því að komast í úrslita- leikinn eigum við möguleika á að komast alla leið og nú er málið að sætta sig ekki bara við það að kom- ast í úrslitaleik heldur vera gírug- ur í það að taka dollu,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn. Framarar unnu bikarmeistarana Framarar tryggðu sér sæti í bikar- úrslitaleiknum með því að vinna 1- 0 sigur á bikarmeisturum KR-inga á laugardaginn. Leikaðferð Framara gekk full- komlega upp, þeir lágu aftar- lega, voru þolinmóðir og beittu síðan hættulegum skyndisóknum. Sigurmarkið kom úr einni slíkri tólf mínútum fyrir leikslok þegar varamaðurinn Joseph Tillen slapp í gegn og skoraði laglegt mark. „Það er frábær tilfinning að skora sigurmark síns liðs og koma liðinu í bikarúrslitaleikinn. Þetta var kannski ekki skemmtilegur fótboltaleikur en það skiptir ekki máli því við erum komnir í úrslita- leikinn og vonandi getum við nú unnið bikarinn. Þetta var frábær frammistaða á móti einu besta liðinu í deildinni,“ sagði Joseph Tillen, hetja Framara í leiknum. Hann þakkaði Jóni Guðna Fjólu- syni fyrir frábæra sendingu. „Jón Guðni lagði líka upp markið mitt á móti Keflavík og ég vissi að hann gæti gefið þessa sendingu. Ég tók bara hlaupið og þetta var frábær bolti frá honum inn fyrir bakvörð- inn. Ég átti bara eftir að klára færið og sem betur fer tókst það,“ sagði Joseph. KR-ingar voru miklu meira með boltann en sóknarleikur liðsins var bitlítill og þrátt fyrir að KR-liðið stjórnaði leiknum nánast allan leikinn þá áttu Framarar nánast öll hættulegustu færin. Fram hélt með þessum sigri sigurgöngu sinni áfram í undan- úrslitum bikarsins en Framarar hafa unnið alla 14 undanúrslita- leiki sína frá árinu 1971. - gmi, ooj@frettabladid.is Breiðablik og Fram í úrslit Blikar komust í úrslitaleikinn í fyrsta sinn í 38 ár og Framarar slógu út bikar- meistara KR þegar undanúrslit VISA-bikar karla fóru fram um helgina. GÓÐ INNKOMA Joseph Tillen (númer 29) kom inn á sem varamaður og skor- aði sigurmark Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LOKSINS Stuðningsmenn Blika fögnuðu vel í leikslok enda Breiðablik búið að tapa í undanúrslitunum síðustu tvö ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON > Sigur í fyrsta leik Eiðs Smára Mónakó vann 2-0 sigur á Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni í gær en þetta var fyrsti leikur Eiðs Smára með Mónakó-liðinu. Eiður Smári lék fyrstu 87 mínúturnar í leiknum en honum var skipt útaf eftir að Kóreumaðurinn Chu-Young Park kom liðinu 1-0 yfir á 86. mínútu. Það var síðan Brasilíumaðurinn Nené sem skoraði seinna markið þremur mínútum síðar. Eiður Smári fékk ágæt skotfæri í fyrri hálfleik en átti þá misheppnað skot rétt framhjá. Hann var annars ekki mikið í boltanum í leiknum og hefur oft spilað betur.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.