Spegillinn - 01.12.1927, Blaðsíða 14

Spegillinn - 01.12.1927, Blaðsíða 14
106 SPBGILLINN íþróttir. Besta hátíðarsælgætið er Töffee Je Luxe Here is the Assortment! 1. Chocalate Toffee de Luxe 2. Malted Toffeede Luxe 3. Brazil Nut To fee ds Luxe 4. Chocolate Nougat 5. T-.ffee de Luxs 6. Egj nd Cream Toffee de Luxe 7. Chcco’ate Monte’imart 8. Narserylaad Toffee de Luxe 9. Banana Toffee de Luxe 10. Butter Scotch 11. Chocolate Coconut Toffee de Luxe 12. Old Engliih Toffee d; Luxe 13. Coffee T ffee de Luxe 14. Pineapph Toffee de Luxe 15. Mint Butter Scotch 16. Chocolate Neapolitans johnmackinto:h & SONS, LTD, Toffee Town, Ha.'ifax. An Assortment such as you never dreamed of, and the finest value for money ever offered Nfackin fosh’s Assortment de Luxe All Confectioners sell it. Try it this very day! NOTE. ALl the varieties can be bought seþarately at their usual þrices— the ASSORTMENT is sold at t 'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniii iiir'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin Fæst alstaðar. iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiii í 12. tbl. íþróttablaðsins þ. á., bls. 120, stendur svo, þar sem talað er um met það, sem Skarphjeðinn setti, er hann stökk yfir Markarfljót, sem íþróttamenn eru að nálgast, og hlýtur því vegalengdin að hafa fundist í dókúmentum Skarphjeðins: „Ætti vel við, að einhver stökkmanna vorra freistaði að stökkva yfir Flosagjá fyr- ir 1930“. Vjer gleyptum þessa mann- úðlegu uppástungu og sendum þegar fimleikameistara vorn austur að gjá til að dæma um staðhætti, og telur hann sig muni stökkva það með glans og er nú að æfa sig daglega í fimleikasal Spegilsins, en fram- kvæmdarstjórn mun brátt halda tom- bólu til þess að safna í iðgjald fyrir þá afardýru líftryggingu, sem þetta hefir í för með sjer, því á fundi, sem stjórn Spegilsins hjelt í þessu tilefni með forstjórum lífsábyrgðarfjelaga hjer í bæ, neituðu þeir að tryggja fyrir minna iðgjald en 95%, nema því aðeins að æfingar fimleikameistarans færu daglega fram og í fimleika- salnum væri útbúin 10 metra djúp gröf, sem væri 5,81 meter á breidd og öll fóðruð með k a p o k, bæði botn og hliðar, eins og haft er á vitfirr- ingaspítölum; skyldi meistarinn stökkva, að þeim ásjáandi, 7 sinnum yfir gröfina, og varð þá að samkomu- lagi, að iðgjald, er aðalstökk yfir Flosagjá færi fram, skuli vera 81% og er nú ákveðið, að fimleikameist- ari vor stökkvi yfir gjána á gamlárs- dag 1929 kl. 12 á hádegi, og eru all- ir íþróttamenn velkomnir að horfa á. Markarfljótsmet Skarphjeðins mun vera, eftir bestu heimildum, 5,80537 meti'ar. Gröfin er nú fullgjör og fóðr- uð í fimleikasalnum og meistarinn æfir sig daglega og byrjar kl. 9,58 á hverjum morgni, en ennþá verður að draga hann upp í ,,hegra“ vorum eftir hvert stökk, en framfarir eru góðar og hefur hann þegar stokkið 1,13 metra. Líklega verðum vjer að halda basar með sumrinu til þess að borga hina miklu yfirvinnu hegrameist- ara vors, meðan á æfingum þessum stendur. Flosagjárnefnd Spegilsins.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.