Spegillinn - 01.01.1954, Síða 8
2
5PEGILLINN
Á þ rí víddarári
Þrívídd er Tímans tákn, og hví skyldi þá eigi
takast dð slíkt vora öpunarhœfni sýni
og á komandi ári vappi á þrívíddarvegi
virðuleg þjóíS, klœdd nælon og híalíni.
Margt mun að sjálfsögðu ske á því skaparans ári,
af skýjum hinn pólitíski himinn er rokkinn
og stjórnin lifir, hangandi á einu hári
hrœðslunni að þrívídd komist í þjóðvarnarflokkinn.
En jafnvel það hár er hœpið að duga megi
Hannibal veifar nú kosningabandalags sverði
og ske mœtti að Hermann þrívíddarþjóðfylking eygi
er þrekmenni aftur að forsœtisráðherra gerði?
Draupnisútgáfu- Valdimar vaxið þá hefur
viðbúið Eysteinn missi af sér stjórnarhattinn,
þrívíðar „Brœkur biskupsins“ út hann gefur
og býður fram „Konu manns“ upp í söluskattinn.
Víkkar enn Kana veldi á landsins hornum
varla dS þrívídd nœgi því til að lýsa,
í sólaruppkomuátt, sem á dögum fornum
Einar þverœingsnafni mun þjóð sinni vísa
í flugvallarblokkunum þykir ei þrívíddar gœta
sem þrautpíndir útigangsklárar þar nefndarmenn húka
en þar mun á nœstunni norðlensku mannviti að mœta
og meyjar í þvílíkar nefndir er sjálfsagt að brúka.
En Ólafur forsœtiss enn flytur hljómmiklar rœður
um allt, sem hann mun, og er löngu búinn að gera
úr þrívíðu koki hann þrumar: — Nú heyrið þið brœður!
(Þarna mun Ólafi finnast ég smátœkur vera).
Og ennþá mun Freymóðs þokki hjá þunnklœddum hœkka
— ÞaS er núi hart, ef í Spegilinn aldrei hann lítur —
A skaparans listaverk, þegar að fötum þær fœkka
feimnu listamanns þrívíddarhornauga gýtur
Um bœjarstjórnir er hœpið að allt sé á hreinu
og hvdS œtlar Lýðveldisflokkurinn sálugi aö gera?
Ef jónasar þrír eru gleyptir af illhveli einu
eflaust þrívíð sú skepna hlýtur að vera.
í áfengismálum er ég raunsœismaður,
að augum mér líða hópar þrívíddarstjarna,
samþykktum stútentafunda fylgi ég glaður
og fullveldiskröfum okkar Heimdallarbarna.
Síðast er eitt, sem ekki er þó með að spauga
hvað œtli þeim muni með skatiafrumvarpið líða,
en þrívídd þeir skapa œttu því nálarauga
hvar úlfaldar margir klyfjaðir standa og bíða.
Grímur.
TÍMINN
fræðir oss á því fyrir nokkru, að Áki, fyrrum ráðherra, hafi nú sagt
sig úr flokknum með langa nafninu, en segi samt, að stefnan sé góð,
og ræður blaðið af þeim ummælum, að sólufélagið muni vera lítt þol-
andi. Vitanlega hafa ýmsir rennt grun í, að sálufélagið sé kannske
ekki sem allra bezt, en hitt kemur mörgum á óvart, að það skuli samt
ekki vera fullgott fyrir Áka.
BIRTINGUR
heitir nýtt tímarit, sem farið er að koma út. Því miður hefur oss eigi
enn unnizt tími til að kynna oss efni ritsins, enda höndlar það um bók-
menntir og listir, svo að sennilega er enginn skaði skeður, en nafnið
finnst oss geta heyrt undir ólöglega verzlunarhætti, og gæti helzt gefið
til kynna, að þetta væri einskonar skólprenna frá LÖGBIRTINGI og
ætti að birta þær auglýsingar, sem það gamla og virðulega blað getur
ekki almennilega verið þekkt fyrir.
Ritstjóri: Páll Skúlason.
Teiknari: Halldór Pétursson
Ritstjórn og afgreiðsla: Smáragötu 14, Reykja*
vík — Sími 2702»
Argangurinn er 12 blöð — yfir 200 blaSsíSur, efni. —
AskriftarverS kr. 60,00 — erlendis kr. 70,00; greiSist
fyrirfram -— Aritun: SPEGILLINN, Pósthólf 594 —
Reykjavík — BlaSiS er prenta.8 í Isafoldarprentsmi8ju h.f.