Spegillinn - 01.01.1954, Síða 9
SPEGILLINN
3
ÞEGAR GULLFOSS
kom hingað til höfuðbórgarinnar, næst fyrir jól, hafði það boð verið
látið út ganga, að þar væri innanborðs jólasveinn og hann ekki af lak-
ara taginu, sem myndi gefa börnum höfuðstaðarins gotterí og jafnvel
leika einhverjar lístir. Auðvitað flykktust börnin niður á hafnarbakka
í stríðum straumum, og heimtuðu jólasveininn fram, en þó fyrst og
fremst gotteríið, en hvorugt sýndi sig. Loks var það ráð tekið, til þess
að sefa lýðinn, að láta telpukrakka koma fram, og fékk ekki einusinni
tíma til að setja á sig skeggið. Einhver loforð voru líka gefin í þá átt,
að gotteríið kæmi seinna, en eigi er vitað um efndir. Einkennilegast var,
að enginn virðist vilja gangast við upptökunum að þessu tiltæki, en
sagt er, að börn höfuðstaðarins ætli ekki að rífa sig ofsnemma upp, ef
skipið skyldi koma hér í höfn þann 1. april næstkomandi.
ALMÆLT TÍÐINDI
Fyrri hluti janúarmánaðar ár hvert er einkennilegur
tími — hvað sem veðrinu kann að líða, og það er sjaldan
sérlega merkilegt enda væri Þjóðvarnarflokkurinn þá óðar
búinn að sækja það í sig. Þá er eins og mannkindin sé
ómálga á annað en gleðilega nýárið, sem endist fram eftir
mánuðinum og allt fram í febrúar hjá þeim, sem lengst
eru að jafna sig, og sumir bæta gráu ofan á svart með
því að þakka fyrir gamla árið, jafnvel eitthvað slangur
af gömlum árum, sumum kannske hundgömlum. Ef þetta
væri ekki eins óumflýjanlegt og raun er á, væri það vægast
sagt dálítið svekkjandi.
Því er það, að við erum yfirleitt þakklátir fyrir jafnvel
minnstu tilbreytingu. Þó ekki sé nema það, að forseta
vorum berist bréf frá Júlíönu, þar sem hún þakkar fyrir
hjálpina, og þetta bréf er forsetinn svo vænn að láta lesa
upp í útvarpinu, okkur almenningnum til skemmtunar, en
öðru máli er að gegna um Freymóð, sem fullyrt er, að
liafi, í sama Hollandspósti, fengið bréf frá Sjaron Brús,
með þakklæti fyrir síðast. Tii þess að verða þess aðnjót-
andi þarf maður að minnsta kosti að taka nokkur stig, og
þau eru nú kannske ekki tekin á einum degi og allra sízt
rétt eftir nýárið.
Ég sé, að ég hef smitazt af útvarpinu og haft erlendu
fréttirnar á undan, svo að bezt er þá að liespa þær af. I
Þjóðviljanum les ég, mér til mikillar sálubótar og fróunar,
að austur í Sovéttinu eru þeir smámsaman að þokast í átt-
ina til vestrænnar menningar, m. a. er það opinbera farið
að halda jólatrésskemmtanir fyrir börn öreigana, og telja
sálfræðingar, að valdamenn hafi fengið hugmyndina dag-
inn, sem Beria var hengdur, þá hafi einliverjum þeirra
dottið í hug, að liann liefði einhverntíma séð myndir af
jólatx-jám með allskonar fígúrum hangandi í, gxæip því liug-
myndina á lofti og taldi sjálfan sig fyrir lienni, en blessuð
börnin nutu góða af og það er aðalatriðið.