Spegillinn - 01.01.1954, Side 12
6
SPEGILLINN
Kæra Gudda raín!
Komdu nú sæl og blessuð og gleðilegt nýjár og takk fyrir
gamla árið.
Nú er ósköp lítið að frétta héðan, nema að bráðum
eiga að verða hér hreppsnefndarkosningar, og karlarnir
hérna í sveitinni eru allir á kafi í kosningaveseni. Það
gengur voða illa að koma saman framboðslistum, af því
að sumir vilja ekki vera á lista með sumum. Þjóðvarnar-
menn (strákurinn Hermannsbóndans er núna formaður
Þjóðvarnarfélagsins, og pabbi kallar hann alltaf undan-
villinginn úr Tímahjörðinni) vilja ekki vera með kommun-
um, vegna Rússa, held ég, liinir flokkarnir vilja ekki vera
með Þjóðvarnarmönnum, og ég held, að það sé líka vegna
Rússa, kommarnir vilja ekki vera með neinum, og enginn
vill vera með þeim, og það er áreiðanlega vegna Rússa.
Svo vilja vinstri Framsóknarmenn ekki vera með hægri
Framsóknarmönnum, og frjálslyndir Isafoldarmenn (það
eru pabbi og tveir aðrir) vilja ekki vera með hægri Isafold-
armönnum, og Tímamenn vilja alls ekki vera með Isa-
foldarmönnum, og Isafoldarmenn ekki með Tímamönnum.
Pabbi er voða argur út í þetta allt og segir, að það líti
helzt út fyrir, að hreppurinn verði stjórnlaus næstu árin,
sem hefur það til sín ágætis, að enginn hefur enn efazt
um sannfræði hennar:
Gamall bóndi hafði gengið með mikið og sítt alskegg í
nokkra áratugi. Einn hvítasunnudag tekur hann sig snögg-
lega til og hvetur rakhníf sinn , sem legið hafði ónotaður,
allan þennan tíma og var orðinn ryðfrakki einn. Síðan
sargar hann af sér skeggið eins og það lagði sig, og finnur
þá m. a. músarhreiður með nokkrum ungum í. Ekki fylgir
það sögunni, að karl hafi orðið neitt hissa á þessu, nema
hvað það var honum ráðgáta, hvernig skepnurnar hefðu
farið að því að lifa þarna. Var honum fljótlega bent á, að
auðvitað hefðu þær lifað á skyrinu og grautnum, sem
fór í skegg karls, þegar hann át.
Hver veit, nema saga þessi geti haft hagnýta þýðingu
fyrir suma skeggjana, en hinum, sem enga músina finna,
getur hún verið svona rétt til gamans.
en mamma segir, að það sé Ijótan að hafa ekki fáeina krata
í sveitinni, það mundi áreiðanlega vera hægt að redda þessu
með krötum, þeir mundu nokk fást í bandalag með hverj-
um sem væri, nema auðvitað kommum, það gerir Rússinn,
segir mamma. Pabbi segir þá, að þótt hann líti nú ekki
sérlega stórt á sig, þá mundi hann þó hugsa sig um tvisvar,
áður en hann tæki höndum saman við kratana,, en mamma
segir, að kratarnir séu einmitt ágætur tengiliður milli Fram-
sóknar og íhalds, einstaklega samvinnufúsir menn, krat-
arnir, hvort heldur um er að ræða hægri eða vinstri sam-
vinnu, segir mamma. Svo komu Hermannsbóndinn og strák-
urinn hans einn daginn, og þeir fóru allir að rífast, en
mamma hló. Hermannsbóndinn sagði, að íhaldið stæði öll-
um góðum málmn fyrir þrifum og berðist fyrir frjálsri
samkeppni og einstaklingsframtaki; en það er samvinnu-
stefnan, sem á að ríkja, sagði Hermannsbóndinn. Strákur-
inn sagði þá, að framsókn væri ekki orðin hót betri en
íhaldið, og nú væri Þjóðvarnarflokkurinn eina von allra
frjálst hugsandi, vinstri manna. Pabbi sagði, að íhaldið
berðist einmitt fyrir því að bæta hag almennings í landinu,
íhaldið vildi umbætur og framkvæmdir, sem miðuðu að því
að auka velsæld fólksins; en framsókn er svo gott sem
kominn í hundana með alla sína samvinnustefnu og er nú
skíthrædd við Þjóðvarnarflokkinn, hvað þá annað, sagði
pabbi. Hermannsbóndinn sagði, að framsókn óttaðist ekki
þetta kommúnistaútibú, sem kallaði sig Þjóðvarnarflokk,
enda mundu engir ærlegir samvinnumenn glæpast á að
kjósa það, en mamma spurði þá, hvort nokkuð nýtt hefði
gerst í ráðunautsmálinu, og þá hló strákurinn og blikkaði
mömmu. Svo var ég send út að Stað til að sækja póstinn,
og þegar ég kom aftur, voru þeir farnir. Pabbi reif strax
upp ísafoldina sína og fór að skoða beljumynd á öftustu
síðunni: Hver andskotinn er þetta, tautaði pabbi, þegar
hann var búinn að lesa það, sem stóð undir myndinni,
liefurðu nokkurn tíma heyrt talað um þetta Holstein- kúa-
kyn? Mamma las þetta líka og fór strax að hlæja, og sagði,
að hún tryði nú varla, að nokkurt kyn í heimi jafnaðist
á við Holsteinkynið að fitumagni, hvað sem öðrum gæð-
um liði. Pabbi hnussaði bara og vissi ekki hvað hann átti
að segja um þetta en ég sá á honum, að honum þótti þetta