Spegillinn - 01.01.1954, Blaðsíða 16
!□
BPEGILLINN
GiLs leitar aö
plötur. Svíta í ffmoll opus 30, eftlr Debussy, (eða einhvern
annan); plötur. Ymis lög, leikin af Fílharmónikuhljóm-
sveitinni í V-Berlín. (Venjulega er þessi hljómsveit aðeins
kennd við Berlín, en af hlutleysisástæðum þótti oss réttara
að staðsetja hana í vesturendanum); plötur. — Kl. 11.
Messa í Hallgrímskirkju; sr. Jakob Sjeikspír Jónsson prédik-
ar; (það er ekki af plötum). Kl. 12.15 Hádegisútvarp.
Tónleikar af hljómplötum; fréttir, tilkynningar; tónleikar
af hljómplötum. Kl. 13. Ávarp frá einhverri góðgerða-
stofnun (Vetrarhjálpinni, Mæðrastyrksnefnd eða Slysavarn-
arfélaginu). Kl. 15.30 Miðdegisútvarp. Létt lög, sungin
og leikin; plötur. KI. 19.30 Barnatími; Baldur Pálmason
annast tímann. (Þorsteinn. Ö er að æfa leikrit) Börn úr
11-ára bekk A í Melaskólanum flytja samfellda dagskrá
um lífið í skólanum. Telpnakór Borgarness syngur (plöt-
ur); Baldur Pálmason les stutta sögu eftir Hugrúnu, (eða
sögukafla eftir Ármann Kr.). Kl. 19.25 Veðurfregnir.
(Norðvestan kaldi eða stinningskaldi, þykkt loft, gæti ringt,
ef í það færi). Kl. 19.40. Tilkynningar. Kl. 19.58. Hlé
í 2 mínútur (meðan þulur er að anda að sér). Kl. 20.00.
Klukkusláttur. (Hún slær átta högg). Breskar endursagnir,
kallaðar fréttir, þulur flytur. (í skýrslu mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna er talið, að um 5 milljón
manna séu í fangabúðum hjá Rússum. 2500 manns flýðu í
síðasta mánuði frá A.-Berlín til V.-Berlínar. McCarthy sendi
Eisenhover og Sjörshill nýjársskeyti og þakkaði fyrir gott
samstarf á Jiðna árinu. Breskir hermenn skutu 200 kommún-
ista á Malakkaskaga; Frakkar brytja niður fólk í Indó
Kína og Tunis. John Foster Dulles hefur nýlega látið svo
ummælt, að Bandaríkin gætu liafið kjarnorkustyrjöld, hve-
nær sem verkast vildi: Syngmann Rhee boðar áframhaldandi
styrjöld í Kóreu). Lesendur eru beðnir að athuga, að það
sem stendur innan sviganna, eru leiðbeiningar vorar, um
efnisvalið. Kl. 20.25. Upplestur: Sigfús Elíasson les frum-
ort ljóð. Kl. 20.40. Tónleikar, lög úr óperum (plötur).
Kl. 21. Orgeltónleikar í Ðómkirkjunni; Páll ísólfsson leikur
á orgelið; Kl. 21.25. Skemmtiþáttur; leikþættir, dægurlög,
gamanvísnasöngur með gitarundirleik. (Sýnishorn: „Ef
þú bara vissir, hvað ég elska þig heitt, þá mundir þú verða
svo hissa, að þú segðir ekki neitt; ég syng þér öll mín
ástarljóð, og sendi þér mitt lijartablóð, elsku litla lijartans
ástin mín. — Vitanlega meinar höfundurinn ekki, að hann
ætli að skera sig og senda elskunni sinni blóðið í pottflösku
með skrúfuðum tappa, heldur ber að skilja þetta táknrænt
(sýmbólskt). Rúmsins vegna getum vér ekki birt sýnishorn
af leikþætti, en bezt væri, að hann fjallaði um hjón, sem
rífast svo hátt, að lieiðraðir hlustendur neyðast til að halda
fyrir eyrun). Kl. 22.00. Fiðlusónata í as-dúr eftir Liszt;
(plötur). Kl. 22.15. Klassisk hljómlist; hljómsveit ríkis-
óperunnar í V.-Berlín leikur (plötur). Kl. 22.40. Dans-
og dægurlög; söngvarar: Clausen, Morthens, Ingibjörg Þor-
bergs og Smárakvartettinn. (Vér vitum ekki, hvort kvart-
ettinn heitir eftir þrílaufasmára, og Ingibjörg sé þá fjórða
laufið, eða hvort hann heitir eftir fjögralaufa smára, og
Ingibjörg tákni þá annaðhvort rótina eða stilkinn). Kl.
23.30. Danslög af plötum til kl. 24.00. Dagskrárlok.
Mánudagur. Kl. 9. Morgunútvarp: sama og í gær. Kl.
12.15. Hádegisútvarp: Sama og í gær. Kl. 15.30. Miðdegis-
útvarp: Sama og í gær. kl. 19.25. Veðurfregnir: Sama og
í gær. Kl. 19.40. Tilkynningar. Kl. 20.00. Sama og í gær.
Kl. 20.10 hlé í 5 mínútur vegna smávegis bilunar (nýtt
atriði). Kl. 20.30. IJtvarpssagan Dalalíf, eftir Guðrúnu frá
Lundi, H. H. fejálfur les. (Þessi saga ætti að endast í ca.
4 til 5 ár, en þá verður Tengdadóttirin væntanlega komin
öll og má þá taka liana næst og svo koll af kolli. Þannig
væri útvarpssöguvandamálið leyst næsta aldarfjórðung).
Kl. 21.00. Klassisk tónlist; (plötur). Kl. 21.20. Erindi:
Um hrakninga Jóns pósts á Trékyllisheiði árið 1862. (Erinda
flytjendur skulu varast að ræða atriði úr sjálfstæðisbarátt-
unni, vegna hlutleysisins, og einnig forðast að minnast á
aðbúnað hreppsómaga fyrir og eftir aldamótin síðustu; það
mundi forráðamönnum menningarstofnunarinnar e. t. v.
þykja full nærri sér höggvið). Kl. 21.45. Tónleikar (plöt-
ur). KI. 22.00. Búnaðarþáttur (Gísli Kristjánsson talar við
sjálfan sig). Kl. 22.20. Frægir söngvarar (plötur). Kl.
22.55. Guð vors lands og dagskrárlok. (Hér er gert ráð fyrir
að hlustendur fari snemma í liáttinn).
Þriðjudagur. Sama dagskrá og í gær, nema hvað synfón-
iskir tónleikar koma í stað útvarpssögunnar og létt lög
af plötum í stað erindisins um hrakninga Jóns pósts á
Trékyllisheiði, anno 1862.
Miðvikudagur. KI. 9, — 12.15, — 19.25 og 19.40 sama
og í gær. Kl. 20.00 sama og á sunnud. Kl. 20.20. Frétta-
auki; Líf og starf Sameinuðu þjóðanna (Kr. Albertsson).