Spegillinn - 01.01.1954, Síða 17
SPEGILLINN
11
Kl. 20.30. Kvöldvaka. a) Útvarpshljómsveitin leikur alþýðu-
lög, „Stóð ég úti í tungsljósi“, „Allir krakkar“, „Máninn
hátt á himni skín“. o.fl. b)Erindi: Kaupstaðarferð fyrir
50 árum (þulur flytur). c) Upplestur, sögukafli eftir Hug-
rúnu (Höfundur les). d) Kvæðalög, (Átthagafélag Stranda-
manna kveður). Létt lög leikin milli atriða. Dagskrárlok
kl. 23.00.
Fimmtudagur. Sama dagskrá og á þriðjudag.
Föstudagur Kl. 9. Morgunútvarp: Fúga í a-dúr eftir
Strauss. Kl. 12.15. Tónleikar af hljómplötum; kl. 12.30
tímamerki. Kl. 12.40 dánarfregnir og jarðarfarir. Kl. 12.50.
Tónleikar af plötum til kl. 13.05. Kl. 15.30. Miðdegis-
útvarp: Fúga (má vera sú sama og í morgun). Svíta í h-
moll eftir Bach; aría úr Rigoletto. Kl. 19.25. Veðurfregnir.
Kl. 19.40. Tilkynningar. Kl. 19.58. Hlé í tvær mínútur.
(Þulur andar að sér). Kl. 20.00. Sama og aðra daga. Kl.
20.30. Dagskrá kvenfélagasambands Islands. a) Ávarp (Sigr.
J. Magnússon) b) Upplestur: Smásaga eftir Guðlaugu
Benediktsdóttur (Sigurlaug Árnadóttir les). c) Kvenrétt-
indalög, sungin og leikin (plötur). Kl. 21.35. Frá útlönd-
um (Þórarinn Tímaritstjóri; erindið þarf ekki nánari skyr-
ingar). Kl. 22.00. Orðsending frá Félagsmálaráðuneytinu
til Guðmundar I. Kl. 22.10. Ymis konar tónlist (plötur).
Kl. 22.30. Létt lög af plötum. Kl. 22.45. Symfóniskir tón-
leikar (plötur) til kl. 23.10. Dagskrárlok kl. 23.15.
Laugardagur: Kl. 12.55. Óskalög sjúklinga (Ingibjörg
Þorbergs og e.t.v. Smárakvartettinn). Heiðraðir hlustendur
mega ekki misskilja þetta. Óskalög sjúklinga er sem sé
sérstakur þáttur einu sinni í viku. Fúgurnar, Svíturnar og
synfónisku tónleikarnir, sem leikið er öðru hvoru alla,
daga, eru hins vegar ekki óskalög sjúklinga, nema þá út-
varpsráðs. Kannski útvarpsráð sé líka hálflasið og-þyrfti
að taka inn höfuðverkjarskammt og leggja sig? — Kl. 19.25
til 20.20 sama og aðra daga^ Kl. 20.20. Samfelld dagskrá,
(fengin að láni frá Utvarp Keflavík, þar eð Þorsteinn Ö.
var ekki tilbúinn með leikrit). a) Ávarp (menntamálaráð-
herra). b) Upplestur, (stutt morðsaga), a) Frægir jazz-
söngvarar syngja. d) Hitt og þetta frá Hollywood; e) Loka-
orð (Varnarmálaráðherra). Kl. 22.50. Ýmis lög af plötum.
Kl. 22.05. Dans- og dægurlög; (fimm nýir, ísl. dægurlaga-
söngvarar koma fram). Kl. 24.00. Dagskrárlok. —
Þá er komin „dagskrá næstu viku“, og geta nú lieiðraðir
hlustendur strax farið að lilakka til að skrúfa frá viðtækinu
sínu. Þess skal getið, að vel mætti breyta til um einstaka
dagskrárliði öðru livoru, til að auka fjölbreytnina. T. d.
mætti fresta upplestri Sigfúsar E. einstöku sinnum, en
Ásmundur frá Skúfstöðum læsi þá kvæði eftir Einar Ben
í staðinn.--Eitt vildum vér svo að síðustu ráðleggja hlust-
endum mjög eindregið. Og það er að reyna að láta hug-
ann aldrei hvarfla til afnotagjaldsins, meðan þeir hlusta
á útvarpið sitt. Slíkt gæti hæglega oi'ðið til þess, að þeir
færu að reikna út, livort það borgaði sig að eiga útvarp. En
slíkar gruflanir valda oft truflunum og jafnvel smávægileg-
um bilunum í sálarlífi manna. HeiSraSur lilustandi.