Spegillinn - 01.03.1968, Síða 5

Spegillinn - 01.03.1968, Síða 5
5 SPEGILLINN OG RÉTTVÍSIN.... væl löggusírenunnar yfirgnæfir all- an hávaðann og það passar, þarna er löggan á eftir þeim. Þeir beygja fyrir næsta horn og ætla að hleypa löggunni framhjá, en löggan beygir líka, og jeppinn fretar og prumpar og sírenan vælir, og löggurnar steyta hnefa út um opna glugga gljákarsins. Erum við alltaf fyrir þeim, hugsa fimm ungir bifvélavirkjar, það er bezt að stoppa og hleypa þeim fram hjá. En ekki eru þeir fyrr stoppaðir á kantinum en löggu- skarinn æðir út úr gljákarinu og kemur æðandi að þeim. Kannski höfum við farið yfir hraðamörkin hugsa bifvélavirkjarnir. Foringi löggunnar öskrar: Af öllu Ijótu sem Fundinum hefur verið sýnt er þetta prump í ykkur dónalegast. Hvaða helvítis fundi, spyrja fimm ungir bifvélavirkjar. Nú, þeir bölva Fund- inum. Þetta skal koma fyrir Brúsa Mannló, segir foringinn. ÚT ÚR DRUSLUNNI syngur lögreglukór- inn og Guðmundur slæmir annarri hendinni inn í drusluna og kemur með tvo skítuga ásamt dyrakarm- inum. Síðan slæmir Guðmundur hinni hendinni, þeirri sem hann ætlar að vinna heimsmetið með og kemur út með þrjá skítuga. Þegar komið er inn í strórgripaflutninga- vagn lögreglunnar segja strákarn- ir í einum kór: Við höfum ekkert gert. Við höfum ekkert gert. Jájá, við þekkjum svona kommabrand- ara segir löggan, glottir af þvi dólgarnir eru á valdi hennar og strýkur þeim um vanga með kylf- unum (laust). Er ekki að orðlengja það að þegar inn kemur í Síðumúla er það á allra vitorði að nú hefur röskra-drengja-sveit tekizt að handsama hættulegustu menn dagsins. En þegar fimm ungir bif- vélavirkjar eru komnir bak við lás og slá fara þeir að gráta og segja: Hvað ætli Rasmus segi og við sem áttum að hafá bílinn kláran klukk- an 3. Og hvað ætii mamma segi ef ég kem ekki í kvöldmatinn, hún heldur náttúrlega að ég hafi lent íðí með þér. Fyrst hélt varðstjórinn að þeir væru að leika og var það vorkunnarmál því samkvæmt skýrslu njósnarlöggunnar höfðu ekki færri en 27 leikarar tekið þátt í Keflavíkurgöngunni daginn áður. En þá kemur Rasmus verkstjóri. Hann varð að sanna með ættartölu sinni og aðstoð stórstúkunnar að hann væri ekki sprauta, heldur einn gegn og góður borgari og þá er farið að rannsaka mál bifvéla- virkjanna. Sú rannsókn stóð sam- fleytt 17 stundir (þar af 9 yfirvinnu- stundir). Tókst loks að sanna með atfylgi vinnufélaga, ættingja og sóknarprests að þessir piltar hefðu aldrei verið við pólitík kenndir, hvað þá ofbeldisverk, og þegar þeir höfðu svarið við helga bók að þeir myndu í framtíðinni heldur ekki láta slíkt henda sig þá voru þeir sektaðir um 250 krónur fyrir of hraðan akstur í návist Háskól- ans, sem Rasmus borgaði skilvís- lega. Síðan var þeim sleppt laus- um. (Jeppinn hefur nú verið settur á safn lögreglunnar til minningar um djarflega og vel heppnaða aðgerð á N-degi, enda þótt vitlausir menn hafi verið í bílnum). — Um forsetakjörið? — Æ, fjárakornið ég segi, en forseta vorum, fána og fulltrúum Nato höfuð mitt hneigi sem hinir. Jú, — á þeim kosningadegi urðu þeir Gunnar og Bjarni allgóðir vinir. Fuglinn.

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.