Spegillinn - 01.03.1968, Page 9

Spegillinn - 01.03.1968, Page 9
SPEGILLINN 9 VERÐUR „SMÁRAKVARTETT- ÍNN" ALLSRÁÐANDI í ÍSLENZK- UM ÞJÓÐ- OG STJÓRNMÁLUM, ER STUNDIR LÍÐA FRAM? Vieima i sófanum. En eftir þetta er mér illmögulegt að greina fram- vinduna i samhengi, bara glimt hér og þar, en afleiðingarnar verða geigvænlegar. Ég er ekki viss um hver verður forsætisráðherra, en glöggt má sjá að Ragnar verður menntamálaráðherra. Og svo byrj- ar ballið. Hraðfrystihúsin verða þjóðnýtt. Bílar verða skammtaðir svo hámarkið verði tveir á fjöl- skyldu. Utanríkisverzlunin verður sett undir SÍS. Rósinkrans verður bannað að filma Njálu en skipað að gera ballett úr Tómasi Jóns- syni metsölubók, með Gunnari Benediktssyni í aðalhlutv. Varnar- liðinu verður sagt upp. Hallgríms- kirkja gerð að skýli fyrir úti- gangshross að vetrinum, en bóka- markaði að sumrinu. Benedikt Gröndal verður alls ekki utanríkis- málaráðherra, gott ef hann kemst í útvarpsráð. (Guð hjálpi þjóð minni). Sjónvarpið verður sett undir Bandalag ísl. listamanna enda verða listamannalaun færð til samræmis við laun lækna. Reynt verður að tjasla upp á hina gömlu úreltu atvinnuvegi útveg og iandbúnað, enda sé ég ekki betur en Lúðvík verði 16. ráðherrann og verður eftir það kallaður Lúðvík sextándi. Kennarar verða settir í sama launaflokk og þýðendur sjónvarpsins. Áiagning apóteka verður takmörkuð Tekið verður upp ægistrangt verðlagseftirlit á öllum vörum nema smjörlíki. LÍÚ verður svift verkfallsrétti og rík- isstarfsmönnum verður fenginn hann í staðinn. Bönkum verður fækkað um helming og restin verður sett undir eftirlit Al- þýðusambandsins. Straumsvík verður tekin eignarnámi og rek- in fyrir Sinfóníuhljómsveitina. Stærð einbýlishúsa verður tak- mörkuð við 460 fermetra .... Þannig rekur hver hörmungin aðra þar til sjálfur forsetinn biður um hjálp Natós, enda verður það orðið miklu meira menningarfélag en það er nú og verða þá lands- menn allshugar fegnir að við skyldum þó bera gæfu til þess að vera enn limur þess. Og mun þá vonum fyrr kjarn- fóður úr kali spretta.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.