Spegillinn - 01.03.1968, Qupperneq 21
SPEGILLINN
21
Orðsending til spáþega frá Álfi:
Þessi himintunglaspádómur er
ekki eins ítarlegur og hinír fyrri,
þótt óhætt sé að treysta honum.
Það stafar af því að vísdómur þessi
var iðkaður við vægast sagt ömur-
legar aðstæður. Þeir er báru gæfu
til að ígrunda spána fyrir síðastlið-
inn mánuð munu sjá að þessi spá-
dómur nálgast afrek með tilliti til
þess að ég sjálfur (Álfur) er fædd-
ur undir nautsmerkinu og lifi al-
gerlega eftir vizku minni sjálfur.
Með ógnþrunginni virðingu,
Álfur.
*
HRÚTURINN:
Þú skalt ekki skammast þín fyrir
að hafa gengið í Keflavíkurgöng-
unni. Þú getur bætt fyrir það með
því að safna liði og ganga í önd-
verða átt í næstu göngu. Losaðu
þig sem fyrst við rauðu málning-
una.
NAUTIÐ:
Vertu hnarreistur og haltu þig
við rembinginn. Hafðu engar á-
hyggjur, sifjaspell eru ekki svo
slæm svo framarlega sem verkn-
aðurinn kjaftar ekki frá sér sjálfur.
#
TVÍBURARNIR:
Svik og undirferli þarfnast ó-
venju mikiilar aðgæzlu þennan
mánuð. Ógæfa annarra gæti snúizt
fyrir fullt og allt þér í hag. Lestu
Basil fursta undir svefn.
STEINGEITIN:
Þú ert á skakkri hillu í lífinu. Þú
hefur enga hæfileika til að vera
þjófur. Það sannaðist bezt á því
að þú skyldir láta nappa þig.
Mundu að stuldur er beztur með
forsjá.
*
VATNSBERINN:
Fyrst skaltu snúa þér að trúmál-
um, síðan prestinum og loks söfn-
uðinum. Fylltu síðan allan hópinn.
Kastaðu þér þar næst í höfnina og
þínir nánustu munu verða þér
þakklátir.
*
FISKARNIR:
Mjög góður mánuður framund-
an. Fylliri, hórdómur og hverskyns
slark er efst á baugi. Sláttu-
mennska og smáprettir gefast með
ágætum. Ástæðulaust að óttast
nokkuð sem heitir vinna.
KRABBINN:
„Varastu þegar vits færð gætt,
vonds til brúka hendur", sagði
skáldið. Hefðir þú athugað þetta í
tíma sætirðu ekki inni núna.
*
LJÓNIÐ:
Haltu stillingu þinni því að þeir
sem eru að blanda sér i málefni
þér viðkomandi eru of heimskir
til að komast að hinu sanna. Það
er hættulaust að ganga I hreinum
nærfötum.
*
MEYJAN:
Sumir hirða rósirnar meðan aðr-
ir halda eftir þyrnunum. Maki ná-
granna þíns neitar ekki ástleitni
þinni vegna skírlífis, heldur er sam-
keppnin of hörð fyrir þig. Þú skilur
þetta ef þú lítur í spegil.
*
VOGIN
Þú skalt vinna sem mest einn,
en ef þú neyðist til samvinnu við
aðra, ættir þú að leyna starfsað-
ferðum þínum. Láttu ekki vinstri
hendina vita hverju sú hægri stel-
ur.
SPORÐDREKINN:
Taktu drjúgan þátt í kirkjusókn
og velferðarmálum þennan mán-
uð. Það gæti villt á þér heimildir.
Kynntu þér hugarfar þinna nánustu
og féflettu þá eftir því.
BOGMAÐURINN:
Taktu fjölskyldu þína með ef þú
ferð eitthvað á kreik — og týntíu
henni. Bjóddu síðan viðhaldi þínu
heim og þér mun vel farnast.