Spegillinn - 01.03.1968, Síða 23

Spegillinn - 01.03.1968, Síða 23
SPEGILLINN 23 Mikið askoti var það annars gott hjá strákunum í LÍÚ að stræka bara á að senda koppana á síld, fyrr en þeir væru búnir að fá styrk- ina sína. Nú eru allir búnir að fá verkfallsrétt nema ráðherrarnir: Sjómenn stræka á útgerðina og út- gerðin á ríkisstjórnina og Svein Ben. Auðvitað vita menn að Sveinn getur ekki rekið verksmiðjurnar fyrir vasapeningang sína og hann verður líka að fá sína styrki. En skítt með það, hann hefur þó altént góða menn með sér, bæði í rík- isstjórninni og bönkunum. Ég veit að Jónas Haralz stendur með okkur sjómönnunum, þó hann verði stundum að látast vera með hinum. Efnahagsformúlurnar eru okkur bara óhagstæðar í ár. — Svo er ekki að furða þótt menn séu tregir í splæsið; þegar þeir standa í því að reikna út formúluna fyrir stöðugleika þjóðarskútunnar. i— Það er erfitt reikningsdæmi í landi offitunnar. Nú er Eggert búinn að múra upp I þennan 220 miljón króna leka, sem var á bátaflotanum síðasta árið og karlarnir mega pilla sig austur. Það var svo sem tími til kominn, að senda lýðinn út í ball- arhaf áður en þeir skandalísera Kokkurinn meira — eins og þeir gerðu á bykkjumótinu á Þingvöllum. — Sumir menn mega bara ekki koma suður fyrir Svalbarða, án þess að gera eitthvert breik. Annars er ég að spæla egg í strákana áður en við komum inn til Klakksvíkur í Færeyjum. Þeir segja að þar sé einn á hverjar fjórar. Ég sé ekki neina glóru í því fyrir sjómenn að vera að kvarta þótt þeir sjái ekki land mánuðum sam- an. Nú er komin fljótandi söltun- arstöð á miðin og lífið á þeirri stöð gefur ekkert eftir braggalífinu í landi. — Þeir skjótast bara á spítt- bátunum á milli strákarnir í róleg- heitunum um miðjan daginn og sippa sér þar um borð til þeirra akureyrsku. — Náttúrlega fyndist mér að Sjávarútvegsmálaráðu- neytið ætti að sjá til þess að senda almenninlegt birgðaskip á miðin, sem og þeir eru að tala um og þar ætti að vera bar um borð, fyrst að þetta er utan landhelgi ætti að mega hafa hann opinn. Á Seyðis- firði loka þeir hvort eð er ríkinu um leið og sézt í fyrsta siglutoppinn inn fjörðinn. Svo veitir ríkisstjórn- inni ekki af aurum í kassann til þess að dekka íslendinga og hafið. Þetta ætti Eggert að athuga. Nú er Jakob kominn á miðin til þess að spá í hana og ég hef ekki trú á öðru en hún lyfti sér, bölvuð. — Jakob töfrar hana upp úr djúp- inu, eins og flautuleikari lokkar slöngu, enda er hann' alinn fyrir austan og lokkaði síldina þangað um leið og hann óx úr grasi. Það gat ekki verið löglegt að þeir fóru að veiða fisk fyrir nórðan. Mér finnst alveg rétt hjá ráðurieyt- inu að stoppa þetta af með reglu- gerð, og reka þá í land, ekki sízt Þingeyingana. — Jón Jónsson er búinn að horfast í augu við þorsk- inn fyrir norðan fast og lengi (í sjö daga og sjö nætur) og finnst hann ekkert árennilegur. Þar með punkt- ur og basta. Það er eins og ég segi. Það kunna engir að veiða i iandhelgi nema Vestmannaeying- ar. Ég ætla að steikja læri í strák- ana á meðan þeir eru að gera klárt, hafði með mér fáeina dilka af kala- svæðinu .... I hafi — 7. 7. Kokksi. I

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.