Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 17.04.1980, Side 15

Stúdentablaðið - 17.04.1980, Side 15
Stúdentablaðið 15 Námsmenn skiptast i tvær andstæOar fylkingar i þessum málum. Annars vegar þeir sem réttlæta húsaleiguhækkanir og aörar kjaraskeröingar og bera þar meö glaöir kreppu kapitalsins. Hins vegar þeir sem vilja berjast fyrir bættum kjörum. Nýmæli hjá F élagsstof nun oröiö aö langvinnu lögfræöingastappi. Aögeröin varö aö vera áhrifarikari og þvi var stungiö upp á algerri stöövun húsa- leigugreiöslu. 29. janúar s.l. var alsherjaratkvæöagreiösla á stúdenta- göröunum i Bergen og var kosningaþátt- taka 82%. 71.5% voru hlynntir algerri stöövun húsaleigugreiöslna. Þetta hlaut aö kalla á mótaögeröir, því ljóst var aö SIB yröi fjárhagslega lamaö á 2 til 3 mánuöum. Meira hik viröist hafa veriö á námsmönnum i Tromsö,Þrándheimi og Osloogdró slikt vissulega úr áhrifamætti aðgeröanna. Einu staöirnir, sem virtust reyna aö fylgja aögeröunum i Bergen voru stúdentagaröarnir Kringsjo og Sogn I Oslo, en þátttaka þar var heldur dræm. Andsvar SIB. Þaö var fljótlega ljóst aö viöureign námsmanna viö fulltfúa rikisvaldsins I stjórnum samskipnaöanna yröi höröust í Bergen. Undir yfirlýsingum um fyrir- sjáanlegt gjaldþrot stofnuninnar, sendi stjórn SIB út uppsagnarbréf til hinna 200 starfsmanna sinna og hóf undirbúning aö uppsögn rafmagns, hita og vatns til stúdentagaröanna. Þegar hér var komiö var erfitt fyrir ráöherra og ráöuneyti aö láta eins og þeim kæmi þessi mál ekki viö. Mikil ókyrrö var aö myndast I stéttarfélögum þeim sem starfsfólk SIB tilheyrir, vegna ógnunar viö atvinnuöryggi, námsmenn höföu náö aö kynna sín mál nokkuö vel I fjölmiölum og tókst óvenju vel aö halda sinum málflutningi gangandi i pressunni. Þaö er heldur ekki neitt smámál í Noregi ef rafmagn og hiti eru tekin af 1500 ibúöum, þar sem búa margar fjölskyldur meö ungabörn. Fyrirspurnir komu til menntamálaráðherrans i Stórþinginu 6. febr. um hvaö ríkisvaldiö hyggðist gera I málum námsmanna. Svör voru eins og vænta mátti óljós og loöin vilyröi fyrir aö kannski yröi reynt aö endurnýja kaupmátt námsmanna frá 1978, en auövitaö var þaö látiö fylgja aö náms- menn yröu aö axla byröar efnahagserfiö- leikanna eins og aörir. En aögeröir af hálfu stjórnvalda komu ekki til fyrr en eftir aö nokkuö meiri harka haföi hlaupiö i deiluna. Ásökunum frá starfsfdlki SIB um aö stúdentarnir væru ábyrgir fyrir ógnunum viö atvinnu- öryggi þeirra, meö aögeröum sinum var visaö á bug. Mesta ógnunin viö atvinnu- öryggi starfsfólksins var minnkaöur kaupmáttur námsmanna og fækkun þeirra svöruöu námsmennirnir. Stúdent samskipnaden gat tekiö afstööu meö námsmönnunum meö þvi aö hætta aö greiða söluskatt og önnur opinber gjöld sögöu fulltrúar námsmanna enn fremur. Auövitaö kom ekki sliks til stuðnings frá fulltrúum rikisvaldsins i stjórn SIB. 20.-21. febrúar geröi stjórn SIB svo alvöru úr ógnunum sínum um aö loka fyrir rafmagn, hita og vatn á stúdenta- göröunum i Bergen. Svar ibúanna var aö fjölmenna meö börn sin inn á skrifstofur SIB og setjast þar upp. Viö þessa atburöi var máliö komiö I slika sjálfheldur aö stjórnvöld voru neydd til aö gripa inni. Dómsúrskuröur I fógeta- rétti i Bergen dæmdi SIB til aö opna strax aftur fyrir rafmagn, hita og vatn og 27. febr. höföu veriö knúnar út þaö skýrar yfirlýsingar frá stjórnvöldum um aö kjör námsnnámsmanna yröu bætt fyrir vorið unnt var aö aflýsa húsaleiguaögeröunum. Tilaö fylgja kröfum sinum enn betur úr hlaöi var siöan boöaö til baráttufunda, mótmælagangna og eins dags námsverk- falls þann 12. mars s.l. Hvert verður framhaldið? Þaö er auövitaö allt of snemmt aö hrósa sigri I kjarabaráttu norskra náms- manna. Þaö sem hefur náöst meö öllu amstrinu eru misáreiöanlegar yfirlýs- ingar, sameiginleg nefnd námsmanna og rikisvaldsins og sæmilega góö kynning á málstaö námsmannanna. Þaö mikil- vægasta sem náöst hefur er þó aö sýrit hefur veriö fram aö meö nógu mikilli hörku og sæmilega almennri samstööu geta námsmenn skapaö þann þjóöfélags- lega óróa, sem nægir til aö rlkisvaldiö neyöist til aö ræöa viö þá, og skoöa kröfur þeirra. Þaö er ekki ástæöa til mikilla sigur- hátlöa hjá norskum námsmönnum eftir áfangasigrana i febr. og mars. Af þessum atburöum má þó draga ályktanir um mikilvægi aögeröa og aö menn láti hart mæta höröu i komandi átökum kjara- baráttunnar. Rvlk. 23/3 1980 G. Mýrdal. Upp úr áramótum tók við ný stjórn i Félagsstofnun stú- denta. Stjórnin er skipuð fimm mönnum, einum frá Háskóla- ráði, einum frá menntamála- ráðuneyti og þremur fulltrú- um stúdenta. Háskólaráð til- nefndi Stefán Svavarsson sem aðalfulltrúa og Pétur Maack til vara, menntamálaráðu- neytið tilnefndi Jón H. Karls- son sem aðalfulltrúa og Gunn- laug Sigmundsson til vara. Aðalfulltrúar stúdenta, þeir Pétur Þorsteinsson og Þor- steinn Bergsson héldu áfram, en þeir voru lika i fráfarandi stjórn. Hins vegar var kosinn nýr stjórnarformaður sem er Ragnar Árnason og varamað- ur fyrir hann er Gisli Pálsson. Stúdentablaðið ræddi við Gisla um þau mál sem efst eru á baugi hjá stjórninni þessa dagana. Stbl. GIsli, nú tók stjórnin viö eftir aö aö- stæður höföu breyst varöandi rekstur Félagsstofnunar. t hverju felst þessi breyting? G. Rekstur stofnunarinnar haföi batnaö mjög á síöasta ári frá árunum þar á und- an. Mötuneytiö gekk betur sökum meiri notkunar stúdenta á þvi eftir tilkomu mánaöarkortanna, Stúdentakjallarinn var farinn að skilc nokkrum hagnaöi eftir þær breytingar sem geröar voru á rekstr- arformi hans á siöastliönu ári er var fariö aöselja þar létt vin og bjóöa uppá lifandi múslk ákveöin kvöld. Auk þessa stóöu aörar deildir stofnunarinnar einnig betur en þær höföu gert næstu ár á undan. Hins vegar felst höfuðbreytingin I viö- urkenningu hins opinbera á nauösyn þess aö þaö taki aukinn þátt i rekstrinum. Þessi viöurkenning kemur fram I áliti nefndar sem skipuö var af Ragnari Arn- alds þáverandi menntamálaráöherra á siöasta ári. I kjölfar þessa álits breyttust viðhorf allmjög. Niöurstööur álitsins tryggja Félagsstofnun aukið framlag frá riki á hverju ári og nokkurnvegin verður vitaö hvert framlagiö veröur fyrirfram, en þaö hefur einmitt veriö óvissuþáttur sem hefur valdiö erfiöleikum viö verö- ákvaröanir hingaö til, aö vita ekki endan- lega upphæö rikisstyrks þegar verölagn- ing er ákveöin og fjárhagsáætlun gerö. Meö þvi lita menn bjartari augum til framtiöarinnar og sjá möguleika fara aö opnast til uppbyggingar I staö þess aö berjast viö aö halda rekstrinum gangandi viö erfiöar aöstæöur. I nefndarálitinu kemur m.a. fram viöurkenning á aö rík- inu beri að standa undir ákveönum hluta af sameiginlegum rekstri stofnunarinnar og taki á sig stóran hluta af orkunotkun I Félagsheimilinu. Þetta veldur þvi' sem sagt aö viö vonumst til aö reksturinn komist i góöar horfur og bjartara útlit framundan. Stbl. Nú hafa garðarnir löngum veriö um- talsefni og ástand þeirra veriö slæmt, eru þau mál eitthvaö i deiglunni hjá ykkur? G.Jú, þaöhefurveriölögöáherslaá lausn þessa vanda. Stjórnin hefur skipaö viö- geröanefnd sem á aö sjá um þessar viö- geröir og er stefnt i aö hefja framkvæmd- ir strax nú I sumar. Viöræður hafa átt sér staö milli Félagsstofnunar annars vegar og Landsbankans og Búnaðarbankans hins vegar um fjármögnun framvkæmd- anna. Þessi mál komust einnig á hreyf- ingu i kjölfar nefndarálitsins em ég minntist á áöan. Þar er tekiö fram, aö Fé- lagsstofnun hafi tekiö viö Stúdentagörð- unum i mjög slæmu ástandi og sé þaö henni um megn aö kosta þær viögeröir sem nauösynlegar eru, enda hljóðar laus- leg kostnaöaráætlun upp á rúmlega hálf- an milljarö króna. Þvi er þar lagt til aö stofnunin fái lán hjá rlkisbönkum til framkvæmdanna, en þetta lán greiðist siöan niöur meö árlegum fjárveitingum á fjárlögum til stofnunarinnar. Nú er búiö aö tryggja a.m.k. 150 milljónir til fram- kvæmdanna I ár og veröur þeim variö til áframhaldandi viögeröa á Gamla Garöi., Stbl. Nú þótti fremur illa aö framkvæmd- um staöiö i fyrra viö viögeröir I kjallara JGamla Garös. Veröur stjórnun fram- kvæmdanna breytt frá þvl sem þó var? G. Já, einmitt i ljósi þeirrar slæmu reynslu sem varö af viögeröum i fyrra tók Félagsstofnun alla yfirstjórn þeirra beint i sinar hendur, en áöur var hún i höndum Innkaupastofnunar rikisins. Skipuö var sérstök viögeröanefnd til aö annast viö- geröirnar aö öllu leyti. Henni var sett erindisbréf og hefur hún nú þegar hafiö störf og vinnur sem stendur aö könnun á viögeröarþörf Gamla Garös. Stbl. t fyrra þótti Garöbúum töluvert ónæöi af framkvæmdum svo aö lækka varö leiguna, hvernig veröur reynt aö komx I veg fyrir aö sllkt ónæöi endurtaki sig? G.I fyrra drógust framkvæmdir mjög á langinn og var mikiö um múrbrot og loft- pressuvinnu á Garöinum. Núna veröa viögeröirhávaöaminni og reynt veröur aö tryggja sem minnstónæöi af þeim. Reynt veröur aö vinna sem mest fyrir sumar- timann svo aö truflun ætti aö verða mun minni fyrir Garöbúa. Stbl. Siöustu árin hefur þaö veriö stefna meirihluta stjórnarinnar aö halda veröi sem mest niöri á seldri vöru og þjónustu, miöa viö greiöslugetu stúdenta eins og þaö hefur veriö oröaö. Veröur þetta áframstefna núverandi stjórnar? G. Já hlutverk Félagsstofnunar er þess eölis, aö hún hlýtur aö miöa verölagningu sina viö létta pyngju stúdenta, enda er þaö beinlinis bundiö i lögum stofnunar- innar. Hins vegar er sjálfsagt aö stokka upp reksturinn og hugmyndir um hann ööru hvoru og velta nýjum hugmyndum fyrirsér. Einmitt i þessum tilgangi hefur verið ákveöiöaö gera könnun á viöhorfum stúdenta og hugmyndum þeirra um ný- breytni i störfúm, rekstri og skipulagi stofnunarinnar. Stúdentar fá send eyöu- blöömeö þessu blaöi og eru þeir hvattir til aðláta skoöanir slnar i ljós og koma þeim til skila. Þaö er einmitt mikilvægt aö skoöanir og tillögur, sem stúdentar kunna aöhafa, komi nú fram, þar sem ætlunin er aö endurskoða ýmsa þætti rekstrarins og bæta nýjum viö, ef þörf þykir á slfku. Könnunin getur einnig skoöast sem til- raun til aö koma á beinna sambandi viö stúdenta og virkara lýöræöi. Stbl. Nú hafa fjármál og þó sérstaklega bókhaldsmál Félagsstofnunar veriö nokk- uö til umfjöllunar á stúdentafundum, er nokkuð nýtt aö frétta af þeim málum? G.Það er gamalt mál og hefur verið mik- ið til umræöu hjá nýju stjóminni eftir aö ég kom þar inn. Ljóst er aö áhersla veröur lögö á aö kanna öll bókhaldsmál stofnun- arinnar og endurskipuleggja þau. því er nú unniö af fullum krafti aö ganga frá endurskoöun fyrri ára og koma málum þannig fyrir, aö stööugt sé hægt aö fylgj- ast meö afkomu einstakra stofnana á þægilegri máta en nú er. Stbl. Þú minntist áöan á hugmyndir um fjölgun þjónustufyrirtækja Félagsstofn- unar. Hvaöa hugmyndir eru uppi I þeim efnum? G. Þaö er ljóst, aö nauösyn er á aö bæta mjög þá þjónustu sem er til staöar. Bók- salan er til dæmis I allt of þröngu húsnæöi og takmarkar þaö mjög starfsemi henn- ar. Háskólafjölritun er einnig í mjög óhentugu húsnæöi á annarri hæö félags- heimilisins sem bæöi er oröiö of lítiö og einnig þarf aö bera þangaö upp alla hluti, papplr o.fl. Raunverulega þyrftu báöar þessar deildir aöfá nýtt húsnæöi til afnota nú þegar. Einnig er framboö Félagsstofn- unar á leiguhúsnæöi fyrir stúdenta allt of lltiö, þó ekki sé hægt aö sjá fram á úrbæt- ur á þvi i náinni framtið. Sama er lika aö segja um barnaheimilismálin, þau þyrfti aö bæta, þvi þaö er ekki einungis aö nauö- syn er á aö fjölga bamaehimilisplássum, heldur er þaö húsnæöi sem Félagsstofnun á og notar til þessarar starfsemi bæöi gamalt, litiö og lélegt oröiö. Hitt er lika augljóst, aö þörf er á aö fjölga þjónustufyrirtækjum og útvikka þjónustusviö stofnunarinnar viö stúdenta. I þvi sambandi hefur aöallega veriö rætt um nauösyn á úrbötum I ferðamálum stú- denta og er nú komin á samvinna viö SIDS i Kaupmannahöfn um þau mál og veröa nokkrar flugferöir i sumar til Kaup- mannahafnar sem SHl selur miöa I. Einn- ighafamennveltfyrir sérþeirri hugmynd aö stofna feröaskrifstofu, sem gæfi óneit- anlega mikla möguleika. En til aö gera þaö þarf mikinn undirbúning og einnig aö leggja fram tryggingu sem Félagsstofnun hefur ekki fjármagn til sem stendur. Fleiri fyrirtæki hafa einnig veriö nefnd, svo sem þvottahús til aö einfalda mönnum þvott á flikum sinum. Nýlenduvöruversl- un hefur komiö til tals og mundi þá ekki sist þjóna Ibúum Stúdentagaröanna, en einnig öörum þeim sem eiga leiö um svæöiö aö sjálfsögöu.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.