Stúdentablaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 5
Lánasjóóur
c
3
THEODOR GUÐMUNDSSON:
Eftir að nýr meirihluti Félags
vinstrimanna og Félags umbóta-
sinna tók við stj órnartaumunum í
Stúdentaráði, var gerð sú breyting
á starfsmannahaldi að fulltrúi
ráðsins í stjórn Lánasjóðs
íslenskra námsmanna gegnir nú
starfi framkvæmdastjóra ráðsins
ásamt formanni. Þessi ráðstöfun
var gerð í ljósi þess að undanfarin
ár hafa Lánasjóösfulltrúar átt
erfitt með að samræma svo
viðamikið starf sem embættið er
námi í Háskólanum. Auk þess er
það vilji meirihlutans að bæta
þjónustu Stúdentaráðs, en
þjónustan vegna lánasjóðsins er
stúdentum tvímælalaust einna
mikilvægust.
Stúdentar geta nú leitað til full-
trúans á skrifstofu Stúdentaráðs
alla daga og óskað eftir hvers kyns
upplýsingum og aðstoð vegna
samskipta sinna við sjóðinn.
Breyttar úthlutnnarreglur
En starf Lánasjóðsfulltrúans
felst ekki einungis í málarekstri og
aðstoð við einstaka stúdenta,
heldur einnig á allsheijar stefnu-
mörkun vegs starfsemi sjóðsins.
Árlega fer fram endurskoðun á
úthlutunarreglum sjóðsins, en þær
reglur hafa einna mest áhrif á
hversu mikil og víðtæk útlán eru.
Sem dæmi um helstu breytingar
sem gerðar voru fyrir þetta skólaár
má nefna að:
1. tekjur námsmanns umfram
framfærslu í leyfi koma nú 50% til
lækkunar á láni til námsmanns á
námstíma. Áður var skerðingar-
hlutfallið 65% af umframtekjum.
2. framfærsla námsmanns í for-
eldrahúsum hækkar úr 60% í 70%
af grunnframfærslu.
3. tekjur maka námsmanns allt
að tvöfaldri framfærslu náms-
manns í leiguhúsnæði hafa ekki
áhrif á lán til námsmanns, en
tekjur maka umfram það koma að
fullu til lækkunar.
4. framfærsla námsmanns í
hjónabandi hækkar um 25% fyrir
FRÁ
LÁNASJÓÐS-
FULLTRÚANUM
hvert bam. í fyrri úthlutunar-
reglum hækkaði framfærsla um
20% vegna fyrsta bams og 15%
vegna hvers bams umfram eitt.
5. framfærsla einstæðs foreldris
hækkar um 50% fyrir hvert bam. í
fyrri reglum hækkaði framfærslan
um 50% vegna fyrsta bams, 30%
vegna annars bams og 20% vegna
hvers bams umfram tvö. Hins
vegar teljast nú mæðralaun og
Framhald
ábls. 14
MIKILVÆG ATRIÐISEM ÞÚ VERÐUR AÐ VITA
FYRSTA ÁRS NEMAR
Fyrsta árs nemar fá lán vegna fyrsta misseris að loknu misserinu, hafi þeir skilað eðlilegum námsárangri.
GILDISTÍMI UMSÓKNAR
Ekki er veitt aðstoð fyrir þann tíma námsársins sem liðinn er þegar útfylltri umsókn er skilað. Þetta gildir fyrir alla
námsmenn.
Af gefnu tilcfni eru fyrsta árs nemar sérstaklega hvattir til að skila inn umsóknum í upphafi skólaárs, ætli þeir að
sækja um lán á annað borð.
UPPLÝSINGASKYLDA NÁMSMANNS
Skili námsmaður, sem fengið hefur lán á skólaárinu, ekki umbeðnum upplýsingum til sjóðsins, leiðir það til þess
að veitt aðstoð árinu verður gjaldfelld.
AFGREIÐSLA LÍN
Almenn afgreiðsla er opin þriðjudaga og miðvikudaga frá 9.15-16.00 og fimmtudaga frá 8.00-
18.00. Símatímar ráðgjafa eru kl. 9.15-12.30 alla daga. Viðtalstímar ráðgjafa eru kl. 12.00-15.30.
Mánudaga og fimmtudaga fyrir námsmenn á íslandi. Þriðjudaga fyrir Danmörku og Svíþjóð.
Miðvikudaga fyrir Bandaríkin, Kanada og S-Ameríku. Föstudaga fyrir önnur lönd.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Laugavegi 77,101 Reykjavík, s. 2 50 11
Stúdentablaöið
5