Stúdentablaðið - 01.09.1987, Síða 26
Framhöld
/öru í þessum sex verslunum.
Þetta eru allar KRON-verslanlr á
Reykjavíkursvæöinu, en auk
Deirra rekur KRON Kaupstað í
Vljóddinni, en þar er ekki hægt að
íoma við afsláttarkjörum sem
oessum. Hins vegar vil ég benda
ilveg sérstaklega á að Stór-
narkaður KRON við Skemmuveg í
Sópavogi er ein alódýrasta versl-
anin á þessu svæði öllu. Hann
oefur komið vel út í verðkönn-
jnum.
Einsdæmi
- Félagsmenn í KRON fá al-
nennt ekki svona afslátt. Að vísu
nöfum við útdeilt afsláttarkortum
:il félagsmanna með ákveðnu
xiillibili og félagsmenn í Félagi
;ldri borgara njóta 5% afsláttar í
/erslunum KRON. En það er eins-
iæmi að svo stórum hópi fólks sé
ooðið að ganga í félagið gegn 5%
ifslætti. Ef þetta gengur vel og
itaða KRON helst góð eða jafnvel
oatnar höfum við mikinn hug á því
ið halda þessum afslætti til
stúdenta áfram.
Félagsstaxf í KRON
- Á íslandi starfa 38 sjálfstæð
rtaupfélög. Hvert og eitt hefur sína
stjórn og félagsuppbyggingu.
KRON skiptist í nokkrar
félagsdeildir hér á höfuðborg-
arsvæðinu. Þar eru kosnir menn til
að sitja aðalfund félagsins.
Aðalfundurinn kýs síðan stjóm
KRON, sem ræður til sín kaup-
félagsstjóra. Hann sér um dagleg-
an rekstur, en það er stjómin sem
kippir í spottana, þegar við á. Við
leggjum mikla áherslu á að virkja
ungt fólk í þessum félögum. Ef það
kærir sig um getur það haft mót-
andi áhrif. Kaupfélögin 38 mynda
síðan Samband íslenskra sam-
vinnufélaga. Stjómsýslan þar er
svipuö og í kaupfélögunum, -
deildir, aðalfundir, stjórn og
starfsmenn.
Alla stúdenta í Fram-
sóknarflokklnn?!
- Þaö er alls ekki rétt að kaup-
félögin séu angi af Framsóknar-
flokknum, né að Framsóknarílokk-
urinn sé angi af samvinnuhreyf-
ingunni. Við lifum viö blandað
hagkerfi, þar sem fá að blómstra
hlið við hlið ríkisrekstur,
samvinnurekstur og einkarekstur.
Það fer vel á þessu. Hvað varðar
pólitíkina þá er fyrst að nefna að
öllum er heimilt að ganga í þessi
félög. Allir þeir sem áhuga hafa á
að starfa af alhug í þeim ero
velkomnir. Hins vegar er sagan dá-
lítið samtvinnuð milli samvinnu-
hreyfingarinnar og Framsóknar-
flokksins. Þó hafa alla tíð verið ti
samvinnfélög á vegum aöila sem
ekki hefur reynst unnt að stimpls
framsóknarstimpli. Sláturfélag
Suðurlands er samvinnufélag.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna ei
samvinnufélag. Leigubílastöðin
Hreyfill er samvinnufélag. Það ei
til fullt af byggingarsamvinnu-
félögum. Og svona mætti leng:
telja. Úti um allt land er talað um
“kratakaupfélög”, “íhaldsmanna-
kaupfélög” og “kommakaupfélög”
Og KRON hefur reyndar heldui
ekki verið stimplað Framsóknar-
flokknum. Þetta rekstrarform
getur því hentað öllum og
samvinnuhreyfingin á sér vini og
félagsmenn úr öllum flokkum.
Samvinnufélög eru sterk
Bandaríkjunum. Þar eru bændui
að mestu leyti í 7 samvinnu-
félögum um margskonar rekstur,
Samvinnufélög eru sterk
Sovétríkjunum, Kína, Evrópu og
um allan heim blómstrai
samvinnustarf. - GSæm.
Theodór -írh. af bls. 5
meðlagsgreiðslur til tekna.
Nýtt tölvukerfi
Almenn þjónusta Lánasjóðs er
einnig sífellt til umræðu í
stjóminni. Nú stendur fyrir dyrum
að sjóðurinn kaupi eigið tölvu-
kerfi, sem yfirtaki alla þá starfsemi
sem SKÝRR sjá nú um fyrir
sjóðinn, svo sem reikniforrit o.fl.
Ætla má að þjónusta sjóðsins
batni verulega við þessa breytingu.
Framfærslukönnun felld
Mál málanna er síðan framfærsl-
an, en hún er sífellt til umræðu í
stjóminni. Nú fyrir skömmu lögðu
fulltrúar námsmanna til að í vetur
yrði gerð könnun meðal náms-
manna sjálfra á raunverulegum
framfærslukostnaði þeirra, sem
lánsupphæð yrði miöuð við.
Skemmst er frá því að segja að
fulltrúar ríkisstj 'ómarinnar felldu
tillögu námsmanna á þeim
forsendum að lánsupphæðir væm
ekki úr takti við almenn
neysluútgjöld. Stúdentar vita hins
vegar betur, þegar þeir borga 15-
20 þúsund krónur í húsaleigu og fá
svipaða upphæö í lán. Óvíst er í
hvaða farvegi þessi umræða
endar.
Brýnt er að námsmenn fylgist vel
með þróun þessara mála. Vel
upplýstir em námsmenn best til
þess fallnir að fá vissum
málefnum framgengt. Framfærsl-
an snýst ekki bara um að
stúdentar geti lifað af lánunum,
heldur er lág framfærsla farin að
hafa áhrif á fjölda nemenda, en
hann fer minnkandi. Þeir hópar
sem þyngsta framfærslu hafa
hverfa frá námi eða treysta sér
ekki í nám. Átökin um
framfærsluna snúast því einnig og
ekki síst um jafnrétti og mennta-
stefnu.
Theodór Guömundsson, fúlltrúl SIIÍ í stjóm Lánasjóðs
íslenskra námsmanna er sagnfraeðlneml á 1. árl. Hann er
21 árs, varð stúdent 1986 frá Menntaskólanum á Akureyrl.
Hann tók vlö sætl fúlltrúa í Lánssjóösstjóm um mlðjan
apríl, eftlr Stúdcntaráöskosntngar. Theodór var fjórðl
maöur á llsta vlnstrl manna í þcssum kosnlngum. Hann
starfar nú á skrlfstofú Stúdentaráös í fúllu starfí sem
málsvari stúdenta í lánamálum. Theodór mun skrlfa fasta
plstla í Stúdentablaölö um málefnl Lánasjóðs.
Leiðari- frh. af bls. 3
sínum til stúdenta. Tilkynningataflan
verður alltaf á fyrstu hægri síðu fyrlr
aftan þemasíðurnar. Þá hef ég hugsað
mér að hafa “ÞJónustullsta stúdenta*
aftarlega í hverju blaði, þ.e.
upptalningu á fyrirtækjum í ýmsum
greinum sem annað hvort veita
stúdentum afslátt frá verði eða bjóða
stúdentum góöa þjónustu á einhvem
annan hátt. Síðast en ekki síst vil ég
nefna að “Fréttir" munu taka meira
rúm í blaðinu en e.t.v. hefur verið áður.
Hvað þann þátt varðar vantar mig
14
Stúdentablaðiö