Stúdentablaðið - 01.02.1988, Síða 3
Útgefandi:
Stúdentaráð Háskóla íslands
Ritstjóri:
Guðmundur Sæmundsson (ábm.),
Ráðgjafar- og útgáfuþjónustunni
Klapparstíg 26, 101 R.
S. 62 28 33
Útlit:
Pröstur Haraldsson
Ráðgjafar- og útgáfuþjónustunni
Klapparstíg 26, 101 R.
S. 62 25 19
í ritnefnd þessa tbl.:
Hjördís Harðardóttir,
Kristín Gestsdóttir,
Magni Þ. Pálsson,
Ronald Björn Guðnason,
Sigurjón Þorv. Árnason
og Sveinbjörg Sumarliðad.
Blaðnefnd SHÍ:
Óntar Geirsson,
Félagi Umbótasinna,
Runólfur Ágústsson,
Félagi vinstri manna,
Auglýsingasímar:
62 27 90 og 62 30 46
Önnur afgreiðsla:
Skrifstofa Stúdentaráðs
Stúdentaheimilinu
s. 2 78 60 - 62 10 80
Prentvinna:
Borgarprent
Suðurlandsbraut 10
Næsta blað kemur út
28. mars n.k.
Skilafrestur efnis og
tilkynninga 11. mars
Aukablað vegna kosninga
kemur út 7. mars.
Ritstjóri er til viðtals
í s. 62 28 33 alla daga
kl. 9-12.
DÁLKUR RITSTJÓRA
Aiidlili lyi*t á
málgagni stádenta
Eins og lesendur hafa tekið eftir hefur útliti blaðsins heldur betur
verið breytt, - til batnaðar að allra áliti, vonum við. Það sem hefur
gerst er þetta:
Við mótun blaðsins í haust var lögð áhersla á að bæta efnisval,
efnistök og umfjöllun um hagsmunamál stúdenta. Jafnframt var
ákveðið að fyrst um sinn skyldu farnar ódýrari leiðir við útlit og upp-
setningu. Var blaðið því sett og brotið í tölvu og útprentun í leysitölvu-
prentara látin duga sem fyrirmynd plötutöku og prentunar í stað
hefðbundinnar og dýrari vinnslu í prentsmiðju. Treyst var á að bætt
efni yki augiýsingartekjur blaðsins og treysti rekstrargrundvöll þess.
Þetta tókst. Blaðinu hefur nú verið skapaður fastur fjárhagslegur
grunnur. Tími er því kominn til að taka næsta skref. Það er fólgið í því
að bæta útlit blaðsins að miklum mun. Sérstakur útlitsteiknari hefur
nú verið ráðinn að blaðinu, og hefur hann hannað blaðinu nýtt útlit,
auk þess sem hann mun útlitsteikna það til vors. Litir verða notaðir í
auknum mæli og betri pappír. Síðast en ekki síst, - hefðbundnum
prentaðferðum verður beitt. Leturgæði úr setningartölvum eru enn
sem komið er meiri en úr leysitölvuprenturum.
Útlitsbreyting á borð við þá sem nú hefur orðið á Stúdentablaðinu
hlýtur að fylla þá sem standa að því nýjum sóknarhug og áhuga. Við
vonum að þess sjái merki í betra efni. Betra og fallegra blað í þágu
allra stúdenta.
Þetta skref í uppbyggingu blaðsins mun standa til vors. Að hausti
er hugmyndin að taka næsta skref. En hvert og hve stórt það skref
verður, ræðst af þeim árangri sem nú næst, þeim áhuga á uppbygg-
ingu sem þá verður fyrir hendi og því starfi sem unnið verður næstu
mánuði.- GSæm
Guðmundur Sæmundsson
ritstjóri
STÚDEPITABLAÐIÐ 3