Stúdentablaðið - 01.02.1988, Page 4
iilíft
STÚDENTAPÓLITÍK I lífÍfH
Yinstrí iiiciin oí>
umbótasiimar
sameinast í eitt ielag
Sameiginlegt framboð til Stúdentaráðs og
Háskólaráðs er fyrsta verkefnið
Þau tíðindi hafa nú gerst í stúdentapólitíkinni að stofnað hefur verið
nýtt pólitískt félag, sem ætlað er að spanna allt sviðið vinstra megin
við Vöku. Þessu nýja félagi er ætlað að koma í stað Félags vinstri
manna og Félags umbótasinna, enda stofnað af forystumönnum
beggja félaganna. Félögin tvö munu þó starfa áfram, m.a. vegna þess
að þau eiga fulltrúa í Stúdentaráði.
Hópar starfa að
stefuumótiui
Hugmyndin að þessari samein-
ingu hefur verið að gerjast meðal
forystumanna vinstri manna og
umbótasinna síðustu vikurnar, en
ákvarðanir eru aðeins nokkurra
daga gamlar, þegar þetta blað kem-
ur út. Hópar hafa starfað að stefnu-
mótun og skipulagningu starfsins
fyrir hið nýja félag.
Andstæður skerpast
Ljóst er að þessi félagsstofnun
verður til að hleypa nýju lífi í stúd-
entapólitíkina og skerpa anstæður.
Vinstri menn og umbótasinnar
munu sjálfsagt reikna með því að
fylgi við þá aukist við þessa atburði.
Vaka mun vafalaust hins vegar einn-
ig eflast. Félagsmönnum hennar
mun þykja að að sér sótt með stofn-
un þessa félags og munu því herðast
og eflast í baráttunni. Það er því
engan veginn útséð um áhrif samein-
ingarinnar á fylgi pólitísku fylking-
anna í Stúdentaráði. Hins vegar get-
ur hún orðið til að efla áhuga hins
almenna stúdents og stórauka kosn-
Frá einum af undirbúningsfundunum þar sem
ingaþátttöku. Atburðir á svið lána-
mála og annarra hagsmunamála síð-
ustu vikurnar og horfurnar í þeim
efnum gefa einnig tilefni til stórauk-
innar þátttöku almennra stúdenta í
hagsmunabaráttunni.
Hér á eftir verður birtur útdráttur
úr stefnu hins nýja félags. Forystu-
mönnum Vöku var boðið að skýra sín
sjónarmið í viðtali eða fá birta yfirlýs-
ingu. Það boð var ekki þegið.
stofnun nýs félags er rædd.
4 STÚDEMTABLAÐIÐ