Stúdentablaðið - 01.02.1988, Page 6
STÚDENTAPÓLITÍK lRSIH
Ilvcr verða helstu
stefiunmál nýs félags?
Þegar þetta Stúdentablað fór í
prentun var ekki búið að ganga frá
stefnuskrá fyrir nýja félagið. Við
uröum því að láta okkur nægja að
Brcytir öllum
forscudum
Við spyrjum Runólf Ágúsfs-
son, nýráðinn framkvæmda-
stjóra Stúdentaráðs og einn af
forystumönnum vinstri manna í
Stúdentaráði, hvernig honum
lítist á sameininguna?
— Breiðfylking félagshyggjufólks
í kosningunum í vor breytir öllum
forsendum í stúdentapólitíkinni.
Hún sameinar námsmenn um bar-
áttumál sín. Vökumenn hafa því
miður ekki sýnt að þeir hafi burði til
þess að starfa að málefnum stúdenta
á faglegum grunni, heldur eru þeir
með reglubundin pólitísk upphlaup.
Þeir hafa sífellt verið að reyna að
reka fleyg í samstöðu stúdenta, t.d.
í Rótar-málinu og fleiri góðum
málum. Peir hafa metið öll okkar
hagsmunamál út frá sínum pólitísku
forsendum og ekki komið fram á
þann hátt að það hafi verið málefn-
um stúdenta til framdráttar.
„pumpa“ þá sem að félaginu standa
til að komast að stefnunni í öllum
helstu meginmálum. Það skal því
tekið fram að það er á ábyrgð
blaðsins, ef eitthvað er orðað miður
en vert væri. I kosningablaði verður
farið nánar í stefnuna og hún sett
fram af félaginu sjálfu.
* Hagsmunamálin
- Lánamálin
Félagið er stofnað um hagsmuna-
baráttu stúdenta og mun bjóða fram
bæði til Stúdentaráðs og Háskóla-
ráðs. Umbótasinnar og vinstri menn
bjóða ekki fram.
Lánamálin ber hæst allra hags-
munamála. Byggt er á þeim grund-
velli að hér skuli ríkja jafnrétti til
náms, og Lánasjóður skuli því vera
félagslegur framfærslusjóður sem
láni í samræmi við framfærsluþörf.
* Félagsstofnun
Félagsstofnun ber að reka með
félagsleg sjónarmið og hagsmuni
stúdenta að leiðarljósi, en án halla-
reksturs í heild.
Byggingarsjóð stúdenta verður að
efla verulega.
* Menntamál
Stúdentar fái aukin áhrif á rekstur
og námskeiðaframboð Háskólans.
Barist verður gegn fjöldatak-
mörkunum og gegn öllum skerðing-
um á sjálfstæði Háskólans.
* Baráttuaðferðir
Velja þarf baráttuaðferðir með
tilliti til þess hverju á að ná fram.
Sterkasta vopn námsmanna er
fjöldinn, og því þarf að tryggja
fjöldavirkni.
Upplýsingastreymi þarf að vera
öflugt. Því er áframhaldandi upp-
bygging námsmannaútvarpsins í
Útvarpi Rót mikilvæg, auk þess sem
námsmenn þurfa að láta í sér heyra
sem víðast á opinberum vettvangi.
Breyta þarf þeirri ímynd sem náms-
menn hafa meðal almennings.
Xn liæUmti vtö að
skemmta skrattamu
Ómar Geirsson er formaöur
Stúdentaráðs og einn af forystu-
mönnum umhótasinna í Stúd-
entaráði. Hvernig lýst honum á
sameininguna?
- Hún er rökrétt framhald af því
sem verið hefur að gerast í stúdenta-
baráttunni í vetur. Að starfa áfram í
tveimur fylkingum væri bara að
skemmta skrattanum. Nú eru uppi
áform hjá stjórnvöldum um stór-
hertar endurgreiðslur og vexti á
námslán. Þaöskiptir miklu málifyrir
stúdenta að til sé í Háskólanum stú-
dentapólitískt afl sem getur snúist
gegn slíkum áformum af þrótti.
6 STÚDENTABLAÐIÐ