Stúdentablaðið - 01.02.1988, Qupperneq 12
ÞEMA: AKUREYRI
liu tímu var liaiui
jafiuvel fieinmismál
Viðtal við Ingvar Gíslason,
fyrrverandi menntamálaráðherra
A engan mun hallað þótt Ingvars Gíslasonar, fyrrverandi þing-
manns og menntamálaráðherra og núverandi ritstjóra, sé sérstaklega
getið vegna þáttar hans í að gera drauminn um norðlenskan háskóla
að veruleika. Stúdentablaðinu lék forvitni á að heyra hann rifja upp
gang málsins. Hann varð góðfúslega við beiðni okkar um viðtal.
rpphaf málsius
- Eg var nýr og ungur þingmaður á
árunum upp úr 1960. Að sjálfsögðu
var þá ýmislegt að brjótast í manni.
Ég velti mjög snemma fyrir mér
skólamálum og þróun þeirra og ekki
síður almennum nienningarmálum.
Á þessum tímum var einnig mjög
mikið rætt um jafnvægi í byggð
landsins og hvernig landsbyggðin
héldi sínu, atvinnulífið yrði eflt og
reynt að koma stöðugleika þar á.
Á þeim árurn fóru sjómenn og
verkafólk fyrir norðan og á Aust-
fjörðum í mikum mæli til Vest-
mannaeyja og Suðurnesja til að
stunda sjóróðra. Það var eitt af bar-
áttumálum á þessum árum að reyna
að breyta þessu þannig að við gætum
líka stundað útgerð að norðan.
Svo blandaðist inn í þetta líka, að
mér fannst, að það yrði að efla ýmis
konar þjónustustörf. Það yrði að
finna út hvaða opnberar stofnanir
gætu verið úti á landsbyggðinni. Ég
kynnti mér hvernig þessi mál voru í
Noregi, en þar voru ýmsir merkileg-
ir hlutir að gerast í landsbyggðar-
Kveðja til
nemenda
Háskólans á
Akureyri frá
formanni Stúd-
entaráðs
Þegar fréttir bárust fyrst af stofnun háskóla á Akureyri setti ugg aö
ýmsum. íslendingum hættir til neikvæöni og að draga fram galla og
meinbugi, áöur en litið er til kosta og jákvæöra þátta.
Mér er efst í huga að samgleðjast Akureyringum, Norðlendingum
og ykkur, nemendum í Háskólanum á Akureyri, vegna þessa mark-
verða skrefs. Auðvitað hafið þið getu til að koma upp fullboölegum
háskóla, sem sinni jafnt kennslu sem rannsóknum, fræðum og menn-
ingu sem þörfum atvinnulífs. Auðvitað eiga háskólastofnanir ekki að
einskorðast við Reykjavík og næstu bæi. Okkur sem ættuð erum ann-
ars staðar af landinu finnst stundum nóg um og fögnum því allri til-
hneigingu til dreifingar.
Og nú er Háskólinn á Akureyri kominn af stað, orðinn að tilraun
sem tekst. Það er orðið of seint að nöldra. Vissulega vantar fé til H.Í.,
en að sjálfsögðu getum við reynt að ráða bót á því án þess að það þurfi
að koma niður á framlögum til Háskólans á Akureyri. Það vantar fé
til að bjarga húsnæðismálum ykkar. Areiöanlega verður því bjargað
án þess að okkar aðstaða skaðist.
Ég hef svo sem fátt að segja til viðbótar, annað en að ég vona að við
getum liaft sem best samstarf í framtíðinni. Við munum leita til ykkar
með ýmis mál og vonum að þið verðið ekki rög við að leita til okkar
í málefnum þar sem við höfum meiri reynslu. Segir ekki einhvers
staðar að sælla sé að gefa en þiggja?
Ómar Geirsson
formaður Stúdentaráðs
12 STÚDCnTABLAÐIÐ