Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Qupperneq 15

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Qupperneq 15
eyri á allt sitt undir því að draga fólk að sér og má ekki verða þröngsnið- inn hreppsskóli. Þá bara deyr hann. Þess vegna má húsnæðisekla ekki verða til þess að skólinn nái ekki að vaxa eðlilega. Við höfum af þessu miklar áhyggjur. Skólayfirvöld eru áhyggjufull. Og raunar eiga fleiri hlut í slíkum áhyggjum, nefnilega yfirvöld og nemendur Menntaskól- ans og Verkmenntaskólans. Vel er hugsanlegt að eitthvert samstarf geti orðið á milli þessara þriggja skóla. Húsnæði til félagsstarfs - Húsnæðisleysið kemur einnig fram í aðstöðuleysi fyrir félagsstarf ÞEMA: AKUREYRI nemenda. Við höfum þó ekkert stórfelldar áhyggjur af því á meðan stúdenta vantar stað að búa á. Það er mikilvægara. En hitt kemur líka - seinna. Sama gildur um t.d. þörfina fyrir háskólabókasafn með lestrar- aðstöðu, sem við þurfum reyndar strax að fara að huga að. Útibú fráLána- sjóði námsmaima - Annað aðalhagsmunamálið snýr að Lánasjóði. Mér finnst að það sé kominn tími til að Lánasjóður fari að hyggja að þeim umbjóðendum sínum sem ganga í skóla utan Reykjavíkur. Það er ekkert sjálfgef- ið að svona sjóður starfi aðeins á ein- um stað. Það gæti orðið hluti þess að draga úr samþjöppuninni á einn blett á landinu ef sett yrði á stofn hér á Akureyri útibú frá Lánasjóði námsmanna. Annað sem varðar Lánasjóð er að nú er komin upp sú staða að nokkur hópur lánþega sjóðsins á ekki tök að hafa áhrif á gjörðir hans með þátttöku í samtökum sem skipa full- trúa í stjórn sjóðsins. Við í Háskólanum á Akureyri eigum hvorki rétt á aðild í SHÍ, SÍNE, eða BÍSN. Þetta þarf að færa til betri vegar. Við höfum mikinn áhuga á samstarfi við SHÍ um þau mál sem snerta LÍN, svo og ýmis önnur mál. G.Sœm. Pakkanámið lienlar mci* ve1 segir Helga Lára Helgadóttir, nemandi í hjúkrunarfræði - Ég hefði ekki farið í skóla í vetur, ef Háskólinn á Akureyri hefði ekki tekið til starfa. Ég var óákveðin en langaði í háskólanám. Það hafði þó ekki hvarflað að mér að fara til Reykjavíkur til að læra hjúkrun. En svo þegar þessar tvær brautir fóru af stað leist mér vel á hjúkrunina. Og ég sé ekki eftir því. Þetta segir Helga Lára Helgadóttir, hjúkrunarnemi í Háskóla Akureyrar, fædd og uppalin á Akureyri. Betri fjárliagnr - Það skiptir heilmiklu máli að geta verið áfram heima hjá foreldr- unum, en samt komist í háskóla- nám. Ég er hrædd um að námslán dygðu skammt til að búa ein suður í Reykjavík og borga leigu, mat og allt annað. Þó að ég fái lægri náms- lán af því ég bý í foreldrahúsum, kemur þetta betur út svona, auk þess sem það er skemmtilegra. Pakkanám - Mér líður alveg ágætlega í þessu námi. Mér líkar vel við „pakkanám- ið“ - þ.e. að þjappa hverri grein sam- an og læra hana á stuttum tíma. Ég get þá einbeitt mér betur að henni og komist betur inn í hana. Námsgrein- unum er einnig raðað í mjög rökrétt samhengi, þar sem eitt dýpkar eða tekur við af öðru. Þetta form hefur einnig gert okkur fært að ljúka haustprófunum fyrir jól og eiga jólin þar með sjálfar. - Annar kostur við námið hér er að í svona litlum hópi er miklu auð- veldara um vik að aðlaga námið hópnum. Ef okkur finnst t.d. að prófadagsetningarnar þrengi að okkur, látum við bara vita. Og þá er allt gert til að fara að óskum okkar. Vegna fámennis erum við líka í betri tengslum við kennara, yfirstjórn skólans og einnig hver við aðra. Kennara- tilbreyting - Við höfum verið heppnar með kennara í haust. Sumir þeirra eru héðan, en aðrir hafa komið að sunn- an eða jafnvel frá útlöndum til að kenna okkur í stuttan tíma og fara síðan heim. Einn slíkur kom í dag, - og hann er sá fimmti sem við fáum „aðsendan“. Þetta er ágætis tilbreyt- ing. En með því er ég alls ekki að finna að þeim kennurum sem eru héðan, síður en svo. Sjúkrahúslækn- arnir sem hafa kennt okkur eru hver öðrum fróðlegri. Aðstaðan - Jú, auðvitað eru líka gallar. Það er t.d. erfitt að vera í þessum fyrsta hópi, meðan allt er ómótað og aðstaðan er í rauninni ekki orðin til. En það var ekkert hægt að bíða lengur. Þörfin fyrir hjúkrunarfræð- inga hér er orðin svo mikil að þessi kennsla mátti til að fara í gang. Og það var tiltölulega auðvelt að koma henni í gang, af því hve mikið er hér af menntuðu fólki á sviði heilbrigð- isvísinda. - Ég er staðráðin í að vera hér í 4 ár og ljúka þessu námi hér við skólann. Annars á námið að vera þannig skipulagt að hægt sé t.d. að fara suður í H.í. í miðju námi, eða koma hingað að sunnan. Áfram gakkS - Mér finnst að það eigi að fjölga námsgreinum við skólann og leggja áherslu á greinar sem ekki er hægt að læra fyrir sunnan. Það er af nógu að taka. STÚDEMTABLAÐIÐ 15

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.