Stúdentablaðið - 01.02.1988, Síða 20
LÁNAMÁL
Lögbrot Lánasjóðsius
Fyrstu viðbrögð menntamálaráðherra við áliti Lagastofnunar
H.Í., sem greint var frá í síðasta tbl. Stúdentablaðsins, eru nú komin
fram. í lagaáiitinu er þeirri túlkun lýst að það sé ólöglegt að líta á
meðlög sem tekjur foreldra, eins og Lánasjóður gerir nú.
Akvæðid fellur
brott 19881989
Strax og ráðherra barst þetta álit,
ritaði hann stjórn Lánasjóðs bréf,
þar sem hann mæltist fastlega til þess
að þetta ákvæði yrði fellt brott úr
úthlutunarreglum sjóðsins vegna
skólaársins 1988-1989, en undirbún-
ingur þeirra er nú þegar hafinn.
Ráðherra hefur hins vegar ekki
gert neinar ráðstafanir til að bæta
fyrir þau mistök sem orðið hafa.
Námsmenn lögðu fram á fundi
sjóðsstjórnar 28. jan. sl. tillögu um
að hin ólöglega regla verði þegar
felld brott og útreikningur fyrir yfir-
standandi skólaár verði leiðréttur.
Þessari kröfu verður fylgt eftir, óháð
úrslitum í stjórn Lánasjóðs. Reglan
um að fengið meðlag skuli bætt beint
við tekjur einstæðs foreldris var sett
í úthlutunarreglur í fyrra og hefur
því gilt frá því í haust. Ekki ætti að
þurfa málshöfðun til að ná fram leið-
réttingu á þessu, þar sem lokúthlut-
un vegna yfirstandandi skólaárs hef-
ur enn ekki farið fram. Verður því
varla trúað að menntamálaráðherra
heimili lokaúthlutun skv. reglum
sem honum vitanlega eru ólöglegar.
Meðlag í frain-
færslumati til 1987
Óljósara kann að vera um túlkun
á þeirri reglu sem gilti áður en tekju-
reglan var tekin upp í haust. Þá var
framfærslustuðull lœkkaður um 0.1,
ef barn var meðlagsskylt. Verður
ekki annað séð en að skv. þessari
reglu sé á svipaðan hátt verið að
blanda meðlagi vegna barns við
framfærsluþörf og tekjur
námsmannns, og þar með láta feng-
ið meðlag hafa áhrif á upphæð hugs-
anlegs námsláns. Þeir sérfræðingar
um mál af þessu tagi sem blaðið hef-
ur haft samband við, eru ekki á einu
máli um þetta. T.d. álítur Sigurjón
Valdimarsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðsins að fram-
færslutillit sé allt annars eðlis en
tekjufrádráttarreglan og á það verði
að líta allt öðrum augum.
Sjálfsagt þarf að fara betur í
saumana á þessari eldri reglu LÍN
með tilliti til ólögmætis. Síðan þarf
að berjast fyrir að fá það bætt, ef í
ljós kemur að reglan hafi stangast á
við lög. Námsmenn munu hvergi
gefa eftir og ekki hika við að leggja
málið fyrir dómastóla, ef það virðist
álitlegur kostur. Einnig geta þeir
notað þessi mistök ríkisvaldsins til
að knýja fram réttmætar breytingar
á úthlutunarreglum, reglugerð og
jafnvel lögum um námslán og náms-
styrki.
Ardísbætt
hvers vci»na?
Árdís Þórðardóttir, stórkaup-
maður, hefur nú verið leyst frá störf-
um sem formaður stjórnar Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna. Hún
var skipuð af Ragnhildi Helgadótt-
ur. í menntamálaráðherratíð Sverr-
is Hermannssonar tók hún dyggan
þátt í aðför hans að kjörum náms-
fólks og árásum á starfsfólk Lána-
sjóðsins, en þeim lyktaði með
dæmalausum brottrekstri Sigurjóns
Valdimarssonar, framkvæmda-
stjóra, frá sjóðnum.
Á tiltölulega skömmum tíma
tókst Árdísi að skapa sér óvinsældir
meðal námsmanna og ýmissa ann-
arra. Það hlýtur því að hafa verið
fremur óþægilegt fyrir nýjan menn-
tamálaráðherra Sjálfstæðisflokks-
ins, Birgi ísleif Gunnarsson, að taka
við yfirstjórn sjóðsins með Árdísi
við stýrið, einkum þar sem Birgir
hneigist að allt öðrum aðferðum og
skoðanaáherslum en forveri hans í
ráðherrastóli. Tvisvar síðan Birgir
tók við embætti hefur hann þurft að
setja bréflega ofan í við Árdísi, fyrst
vegna andstöðu hennar við að gerð
verði ný framfærslukönnun, síðan
vegna ólöglegrar meðferðar á tekj-
um einstæðra foreldra hjá sjóðnum í
vetur. Þar að auki hafa fúlltrúar
námsmanna í sjóðsstjórn einu sinni
gengið á fund Birgis til að kvarta
undan aðferðum Árdísar við með-
ferð mála.
Ekki verður reynt hér að giska á
hvort Birgir hafi óskað eftir afsögn
Árdísar, en hitt er ljóst að varla hef-
ur hann tekið afsögninni með mikl-
um trega.
Enn minni er tregi námsmanna.
Sem fulltrúi menntamálaráðherra
í stjórn sjóðsins hefur tekið sæti Sig-
ríður Arnbjarnardóttir, kennari. Er
hún boðin velkomin til starfa með
von um að hún reynist námsmönn-
um betur en sú er á undan henni sat.
(Innan sviga: Þeirri spurningu er
jafnframt beint til Sjálfstæðismanns-
ins Steingríms Ara Arasonar, hvort
honum finnist ekki kominn tími til
þess að segja af sér sem fulltrúi
fjármálaráðherra og gefa Jóni dek-
urbarnavini Baldvin kost á að skipa
fulltrúa sinn í stjórnina.)
20 STÚDEBTABLAÐIÐ