Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Síða 21

Stúdentablaðið - 01.02.1988, Síða 21
KYNNING: ORATOR ■■■■ 30-40 injög viridr iclagai* Það er óhætt að segja að Orator, félag laganema sé eitt þeira deild- arfélaga hér við skólann sem er hvað virkast. Að minnsta kosti skilst okkur af ýmsum stúdentum í lagadeild að þar sé nóg hægt að hafa fyr- ir stafni við félagslíf deildarinnar. Til að kanna réttmæti og trúverð- ugleika slíkra fullyrðinga fór Stúdentablaðið í vettvangskönnun í Lögberg og spjallaði um stund við Frans Jezorski, en hann vermir formannssæti þessa félags. Franz var hinn viljugasti að segja okkur frá starfscmi félagsins. - Af föstum uppákomum má nefna framsögunámskeið og ræðu- keppni, en Orator var upphaflega stofnað sem mælskufélag. Þá var farið í allnokkrar vísindaferðir út fyrir höfuðborgina og semínar var haldið í orlofshúsi í Brekkuskógi í lok janúar, þar sem umræðuefnið var dómstólar og fjölmiðlar. Tveir fræðafundir hafa verið haldnir, þá um ákveðin málefni sem snerta fræðin, og hefur verið gífurlega góð mæting á þá fundi, nú síðast um 130 manns sem mættu. Þá má nefna að við héldum jólaball 18. des. í sam- vinnu við viðskiptafræðinema og hjúkrunarfræðinema. Auk þess stöndum við í víðtækum erlendum samskiptum við laganema frá Norðurlöndum. Einnig höfum við samskipti við bæði ísraelska og bandaríska laganema. Árlega tök- um við á móti 20 manns og álíka hópur fer út frá okkur. Árshátíð 16. febrúar - Loks má nefna árshátíðina sem er án nokkurs vafa stærsti atburður ársins í félaginu. Hún er alltaf haldin 16. febrúar ár hvert, á afmæli Hæsta- réttar. Nú sem endranær er sérstök nefnd sem sér um árshátíðina, og er hún skipuð 7 ákaflega myndarlegum lagastúdínum á2. ári, semhafaunn- ið mjög vel að undirbúningi hátíðar- innar. Hátíðardagskrá okkar laganema hefst strax að morgni þess ló.febrú- ar með málflutningi og hátíðarer- indi. Þá verður boðið upp á veitingar og eitthvað fleira verður til gamans gert þangað til menn mæta prúðbún- ir á sjálfa árshátíðina sem haldin er á Hótel íslandi. Þar verður boðið upp á vandaða dagskrá við allra hæfi. Sérstakur heiðursgestur kvöldsins verður Þorsteinn Pálsson, forsætis- ráðherra. Tölnivcr Orator rekur tölvuver. Við spurð- um Franz, hvernig það væri tilkom- ið. - Við tókum þetta tölvuver í notk- un í nóvember síðastliðin. Við sótt- um um fé til tækjakaupanefndar háskólans og fengum fimm tölvur. Síðan höfum við haldið fjögur stutt námskeið til að kenna mönnum á tölvurnar. Þetta hefur gefist mjög vel og eru tölvurnar töluvert notað- ar. Útgáfustarfeemi - Af útgáfustarfsemi má nefna Úlfljót sem er fræðirit og kemur út fjórum sinnum á ári. Síðan er það Grímur Geitskór sem er fréttabréf og eins konar spéspegill, m.a. mikið notaður við að gera grín af formanni Orators hverju sinni. Auk þess hef- ur Orator staðið fyrir bókaútgáfu og núna í október gáfum við til dæmis út bókina Samningarétt eftir dr. Pál Sigurðsson, prófessor. Gód aðstaða og jákvætt hugarfar Að lokum spurðum við Franz, hvernig félag sem byggir allt sitt á sjálfboðavinnu færi að því að halda uppi svo viðamikilli starfsemi. - Ég held að skipulag námsins eigi verulegan þátt í því. Við erum alltaf í heils árs námskeiðum nema á fyrsta ári og félagstarfsemin því ekki slitin í sundur á miðjum vetri með prófum. Eins má benda á það að við erum hér öll í sama húsi, en ekki dreifð út um allan bæ eins og margar námsgreinar. Þá má nefna mjög góða félagsaðstöðu hér í húsinu, það er gert ráð fyrir nemendum í þessu húsi. í Lagadeildríkiralmenntmjög jákvætt hugarfar í garð Orators. Starfseminni væri ómögulegt að halda gangandi, ef ekki kæmi til fjöldi fólks sem er tilbúið að leggja töluvert á sig til að halda uppi öflugu félagsstarfi. Þannig eru ekki færri en 30-40 laganemar sem eru mjög virkir í félaginu á hverju ári. Ég vil að lokum koma á framfæri þakklæti til allra þeirra er lagt hafa hönd á plóg nú í vetur - án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. Árshátíðarnefnd Orators, f.v.: Björg Thorarensen, Kristbjörg Stephensen, Sigríður Arnarsdóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Helga Jónsdóttir (fremst), Linda Bentsdóttir og Margrét Gunnarsdóttír. STÚDErtTABLAÐlÐ 21

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.