Stúdentablaðið - 01.02.1988, Side 23
Hteodór Grímur OuðmuiHksoii cr látinn
Theodór Grímur Guðmundsson, annar af framkvæmdastjórum
Stúdentaráðs og fulltrúi þess í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna
lést 2. janúar s.l.
Theodór var aðeins 21 árs gamall og hóf sagnfræðinám í Háskóla
íslands haustið 1986. Eftir síðustu Stúdentaráðskosningar hóf hann
störf á skrifstofu SHÍ og í stjórn LÍN. Á stuttum tíma tókst honum að
þoka mörgum málum áleiðis, þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Theodór skrifaði fastar greinar í Stúdentahlaðið í haust og var auk
þess drjúgur heimildarmaður blaðsins um ýmsa þætti lánamála.
Einnig þar er því skarð fyrir skildi við brotthvarf Theodórs.
Það er ekki í anda Theodórs að dvelja lengi við þá sorg sem ótíma-
bært andlát vekur óhjákvæmilega, heldur skal hafist handa á ný.
Stúdentablaðið leyfir sér að tala fyrir munn allra stúdenta, þegar það
þakkar Theodóri góða viðkynningu, einarðan málflutning og sam-
viskusemi og elju í þrotlausu starfi í þágu allra stúdenta. Minning
hans lifir.
I*iii*1‘iiiii »ð sinna i*áðuiiii>ai*iiiáliii
viðtal við Jón Tryggva Héðinsson, formann Félags Iæknanema
- Markmið eða starfssvið félagsins er þríþætt. í fyrsta lagi snýr starf-
semi þess að ýmiskonar félagsmálum, samskiptum við erlend félög
læknanema, skipulagningu á ýmis konar uppákomum, fþróttastarf-
semi og fleira.
í öðru lagi Iætur félagið sig verulega varða kennslumál, beitir sé
fyrir úrbótum á aðstöðu læknanema og vinnur ýmis konar starfsemi
varðandi fræðin. í því felst að lialda fræðslufundi, ásamt rekstri
„Fræðabúrsins“ en í því má finna safn gamalla prófa og glósur frá
eldri nemum, auk einhverra tímarita.
Loks er það svo þriðji þáttur starfseminnnar sem er e.t.v. það svið
þar sem Félag læknanema sker sig frá öðrum félögum í Háskólanum,
en það snýr að ráðningarmálum. Félagið raðar nemendum á 4. og 5.
ári í læknisfræði niður á stöður, þegar að sumarstarfi keniur. Við
höfðum svipað verkefni hvað varöar nema í hjúkrunarfræði og
sjúkraþjálfun, en þar sem skortur á stöðum þar er ekki lengur eins
mikill og var, gerist þess ekki lengur þörf að við röðum niður á stöð-
urnar.
Á þessa leið lýsti formaður Félags læknanema starfsemi félagsins,
þegar blaðamaður Stúdentablaðsins kom að máli við hann fyrir
nokkru. Við biðjuni liann að segja okkur nánar frá daglegri starfsemi
félagsins.
Dagleg síaríscmi
- Viö höldum félagsfundi aö meö-
altali einu sinni í mánuði og eru þar
allar helstu ákvarðanir félagsins
teknar. Auk þess fara þar oft fram
fjörugar og gagnmerkar umræður.
Dagleg starfsemi fer svo að miklu
leyti fram í félagsheimilinu okkar að
Suöurgötu 26 b. Par fundar stjórn
félagsins og hinar ýmsu nefndir,
ágæt vinnuaðstaða er þar, bæði ljós-
riti og ritvél auk þess sem félagið á
einar þrjár tölvur. Það er upplagt
fyrir félagsmenn að vinna í þeim
verkefni og skýrslur, auk þess sem
þær eru mjög mikilvægar fyrir starf-
semi félagsins.
Af nefndum félagsins má nefna
kennslumálanefnd, fræðslunefnd,
fulltrúaráð, rannsóknarnefnd og
hópslysanefnd, en hver þessarra
nefnda starfar aö sínum málaflokki.
Auk þess eiga læknanemar sæti í
deildarráði læknadeildar, náms-
nefndum sem í eru tveir nemar og
tveir kennarar og loks þá eigum
við þrjá fulltrúa í kennslunefnd, en
hennar hlutverk er að hafa námsefni
læknanema í sífelldri cndurskoöun.
Útgáfustarf
Af útgáfustarfseminni má fyrst
nefna blaðið „Læknanemann".
Auk þcss er gcfið út reglulega
fréttabréf sem fjallar um það helsta
i starfsemi félagsins. Loks má nefna
„Pestina" sem er símaskrá félags-
ins.
STÚDENTABLAÐID 23