Stúdentablaðið - 01.02.1988, Page 28
STÚDENTAR TEKNIR TALI
Dagur Gunnarsson, bók-
menntafræði:
1. Nei, ég er fyrsta árs
nemi og vinn með skólan-
um.
3. Nei, ekki persónulega,
en hann hlýtur að koma
mjög illa við stúdenta.
4. Já.
5. Já.
Svava Þórðardóttir, lyfja-
fræði:
1. Já.
2. Endar ná ekki saman.
3. Já, ég hef orðið vör við
hann.
4. Nei.
5. Ég hef ekki myndað
mér neina skoðun á því.
Hvað er útvarp Rót?
Jón Olafur Isberg, sagn-
fræði:
1. Ég man það ekki, ég er
ekki búinn að tékka á
þessu, ég man ekki hvort
ég er búinn að fá námslán
eða ekki.
3. Alveg hrikalega. Ég fer
alltaf út í Bleika pardusinn
og kaupi mér hamborgara.
Það er ódýrara að kaupa
sér hamborgara og fá einn
frían en að kaupa sér
Borgarnes-pizzu.
5. Nei!!. Mér finnst að
stúdentar eigi að nota
veðurfréttirnar í útvarp-
inu.
Námsmenn og staögreiðsla skatta:
Sérstök uámsmannaskattkort
Stúdentablaðinu lék forvitni á að komast að því hver væri sérstaða
námsmanna gagnvart staðgreiðslukerfinu, þar sem flestir námsmenn
afla tekna á fáeinum mánuðum ársins. Við höfðum því samband við
Skattstofuna í Reykjavík og fengum eftirfarandi upplýsingar:
IVáitismaiina-
skattkort
Launamaður, sem
stundar nám a.m.k. 6
mánuði á ári en er í laun-
uðu starfi yfir sumarmán-
uðina, getur sótt um að fá
námsmannaskattkort hjá
ríkisskattstjóra. Á náms-
mannaskattkorti er pers-
ónuafslætti þeirra, sem
liðnir eru af árinu og nám
hefur verið stundað á,
safnað upp og skipt á þá
mánuði sem námsmaður
hefur launatekjur á, þó
lengst í þrjá mánuði.
Námsmannaskattkort mun
þannig bera hærri mán-
aðarlegan persónuafslátt
en aðalskattkort.
Umsóknir
Ríkisskattstjóri mun í
apríl senda öllum skráðum
námsmönum við viður-
kennda framhaldsskóla
umsóknareyðublað um
Auglýsing um vorúthlutun
úr Stúdentaskiptasjóði
Samkvæmt reglugerð er það hlutverk sjóðsins að
styrkja deildarfélög og önnur félög stúdenta við HÍ til
samskipta við erlenda stúdenta.
Umsóknir þurfa að hafa borist skrifstofu SHÍ
Stúdentaheimilinu við Hringbraut fyrir 15. mars. Með
umsókn þarf að skila inn greinargerð um fyrirhuguð
stúdentaskipti á eyðublöð sem liggja frammi á skrifstofu
SHÍ.
Uthlutunarnefnd Stúdentaskiptasjóðs
námsmannaskattkort. Um-
sóknum ber að skila til
ríkisskattstjóra fyrir til-
tekinn tíma.
Sá sem uppfyllir skilyrði
til þess að fá námsmanna-
skattkort mun fá það
póstsent í maí.
Tvö kort á
siimrin
Námsmaður mun þann-
ig hafa tvö skattkort til
afnota fyrir mánuðina
júní, júlí og ágúst, það
skattkort sem hér hefur
verið fjallað um, ásamt
sínu reglulega skattkorti.
Hver verður skákmeistr
ari Háskóla íslands?
í tengslum við
fþróttamót Háskólans
sem Orator og íþróttafé-
lag stúdenta sjá um verður
háð vegleg skákkeppni
hinn 9. mars n.k. unt
nýjan og virðulegan titil,
„Skákmeistari Háskóla
fslands“. Keppnin fer
fram í tveim flokkum,
karlaflokki og kvenna-
flokki. Ekkert þátttöku-
gjald.
Við erlenda háskóla er
víða keppt um sambæri-
lega titla og þykja þeir
mjög eftirsóknarverðir.
Vonandi er að sama verði
upp á teningnum hér. Að
r- ft
/.
sögn formanns Orators
verður sennilega keppt
eftir Monrad-kerfi með 7
mínútum á mann í hverri
skák. Verðlaun verða
veglegur bikar.
28 STÚDEbTABLAÐIÐ