Stúdentablaðið - 01.02.1988, Page 30
LÁNAMÁL
IJjV-iVcttír
Þrátt fyrir „heitar“ umræöur um málefni Lánasjóðsins undir lok
síðasta árs hefur starfsemin gengið samkvæmt áætlun. í árslok var
búið að afgreiöa allar umsóknir lánshæfra háskólanema sem sóttu um
fyrir lok nóvember. I janúar verður reynt að Ijúka afgreiðslu ferða-
styrkja og lána til þeirra sem sóttu um í desember. Á sama tíma hefst
undirbúningur að lokaafgreiðslu sem áætlað er að geti hafíst í lok
mars. Fyrir lokaafgreiðslu verður lánið endurreiknað miðað við nýj-
ar tölur um framfærslukostnað, en hann hækkaði 1. desember s.l. og
mun hækka aftur 1. mars. 1. árs nemar fá ekki skuldabréf sent fyrr en
um miðjan mars, því ekki er gert ráð fyrir að upplýsingar um náms-
árangur berist frá Haskólanum fyrir febrúarlok.
Skilyrði fyrir afgreiðslu og
skilafrestur upplýsinga
Síðasti hluti námsláns á yfirstand-
andi skólaári verður greiddur út
þann 15. apríl n.k. Afgreiðsla loka-
láns er bundin því skilyrði að full-
nægjandi upplýsingar varðandi
endanlegar tekjur á árinu 1987 ber-
ist Lánasjóðnum á tilskildum tíma
til viðbótar þeim upplýsingum sem
eiga hafa borist nú þegar.
Háskólanemar hafa verið minntir
á skilyrði rir lokaafgreiðslu með
dreifibréfi sem þeim var sent í janú-
ar ásamt sérstöku eyðublaði varð-
andi upplýsingar um endanlegar
tekjur á árinu 1987. Þeir þurftu að
skila eyðublaðinu útfylltu og undir-
rituðu ásamt ljósriti af skattframtali
á íslandi árið 1988 fyfir 10. febrúar
n.k.
Þeir námsmenn glata rétti sínum á
námsláni á yfirstandandi ári sem
skila ekki fyrir lok námsársins þeim
upplýsingum sem þeir hafa verið
beðnir um.
Ferðastyrkir og ferðalán
Um afgreiðslu ferðastyrkja og
ferðalána gilda sérstakar reglur.
Þeir námsmenn sem eiga lögheimili
sem er lengra en 100 km frá náms-
stað eiga rétt á ferðastyrk. Að öllu
jöfnu er ferðastyrkur greiddur út
tvisvar á námsárinu. Fyrri hluti er
afgreiddur að hausti til greiðslu
kostnaðar vegna ferðar til námsstað-
ar. Seinni hlutinn er afgreiddur að
vori til greiðslu kostnaðar vegna
heimferðar í lok skólaárs. Frá þess-
arri meginreglu eru gerðar tvær
undantekningar:
Umsjón með
IJjV-i*rétlum
f.h. Uáuasjóðs:
Porður G.
Valclimarsson
Þorbjörn
Guðjónsson, ábm.
Annars vegar geta þeir sem sækja
eingöngu um ferðastyrk fengið
styrkinn óskiptan þegar þeir leiggja
inn beiðni um afgreiðslu ásamt upp-
lýsingum um staðfestan útlagðan
ferðakostnað og eðlilega námsfram-
vindu.
Hins vegar getur námsmaður sem
ekki fer heim að vori geymt rétt sinn
í eitt misseri og nýtt sér hann til
greiðslu kostnaðar vegna heimferð-
arum næstu jól. Þeirnámsmennsem
nýttu sér ekki rétt sinn síðastliðið
sumar geta núna eftir heimferð um
jólin fengið afgreiddan óskiptan
ferðastyrk þegar þeir leggja inn
beiðni um afgreiðslu ásamt staðfest-
ingu á útlögðum kostnaði.
Ferðastyrkur er ætlaður til greið-
slu ferðakostnaðar að fullu upp að
ákveðnu hámarki. Þegar slíkt
hámark er ákveðið er miðað við
upplýsingar frá Ferðaskrifstofu
stúdenta um kostnað vegna ferða
innanlands á íslandi.
Lán til bóka-, efnis- og
tækjakaupa
Við útreikning á námsláni er tekið
mið af áætluðum námskostnaði.
Einn liður hans er kostnaður vegna
bóka-, efnis- og tækjakaupa. Miðað
er við kostnaðartölur sem Lánasjóð-
urinn fær frá deildum Háskólans. í
haust við ári. Nú berast nýjar upp-
lýsingar sem lagðar verða til grund-
vallar við lokaútreikning.
Lán til greiðslu kostnaðar
vegna tvöfalds heimilis-
halds
Þeir námsmenn sem vegna sér-
stakra aðstæðna verða að halda tvö-
falt heimili vegna náms við Háskól-
ann geta sótt um aukalán til greiðslu
kostnaðar vegna tvöfalds heimils-
halds. Lánið má nema allt að 50.000
kr. Skilyrði fyrir lánveitingu er að
árstekjur maka séu ekki hærri en
tvöfaldur sá framfærslukostnaður
sem námsmanni er ætlaður við
útreikning námsláns.
Námsmenn á 1. misseri og
kröfur um námsfrmavindu
Afgreiðsla lána til 1. árs nema tek-
ur 2-3 vikur eftir að upplýsingar um
námsárangur á haustmisseri ásamt
öðrum nauðsynlegum gögnum hafa
borist og ljóst er að námsárangur
fullnægir kröfum Lánasjóðsins.
Ekki er ætlast til að háskólanemar
komi sjálfir upplýsingum um
námsárangur til sjóðsins. Lánasjóð-
urinn fær slíkar upplýsingar beint frá
Háskólanum. Þar sem þessar upp-
lýsingar berast sjóðnum varla fyrir
lok febrúar, er gert ráð fyrir að 1. árs
háskólanemar fái skuldabréf sín
send í fyrsta Iagi um miðjan mars.
í nóvember var öllurn 1. árs nem-
um sent bréf þar sem gerð er grein
fyrir þeim kröfurn sem Lánasjóður-
inn gerir til árangurs á fyrsta misseri
í námi við HÍ. Það er því óþarfi að
endurtaka upplýsingar þess efnis
hér.
íslensk nafnnúmer.
Lánasjóðurinn notar enn íslensk
nafnnúmer námsmanna sem lykil að
skráningu upplýsinga í tölvukerfi
sjóðsins. Námsmenn eru beðnir að
muna að skrá nafnnúmer sitt á öll
gögn sem þeir senda sjóðnum.
30 STÚDEbTABLAÐIÐ