Stúdentablaðið - 01.02.1988, Síða 32
LÁNAMÁLÍ3
Framfærslukönnun -trh.
2.6. Ferðir innanb. 2-3 þús □ II
(7,69% af fram- 3-6 þús □ □
færslugrunni 6-9 þús □ □
LÍN) 9-12 þús □ □ 2.117
2.7. Húsbúnaður 1-2 þús □ II
(4,62% af fram- 2-4 þús □ [=□
færslugrunni 4-6 þús □ □
LÍN) 6-8 þús □ □ 1.272
2.8. Ymisl.annað 2-3 þús □ □
(9,23% af fram- 3-6 þús □ I I
færslugrunni 6-9 þús □ □
LÍN) 9-12 þús [=□ [=□ 2.541
ALLS - þús. - þús. 27.530
Framfærslnköniitm
Stúdeutabladsins
Kæri stúdent, bestu þakkir fyrir
að taka þátt í þessari athugun.
Þessi könnun er ekki vísindaleg
úttekt, heldur er tilgangur hennar
fyrst og fremst sá að afla upplýsinga
sem að gagni geta komið í baráttu
fulltrúa okkar á sviði lánamálabar-
áttunnar. Hluti þeirrar baráttu er að
reyna að koma því til leiðar að fag-
mannleg og vísindaleg athugun
verði gerð á framfærsluþörf og fram-
færslukostnaði námsfólks.
Annar tilgagnur er að stuðla að
því að stúdentar sjálfir fylgist sem
best með fjárhag sínum og geri raun-
hæfan samanburð á því sem þeir
þurfa sér til framfæris hver og einn, -
og því sem þeir fá frá Lánasjóði.
Við vonum að sem allra flestir gefi
sér stutta stund til að merkja við í
þessarri könnun, klippi blaðið út og
noti síðan næsta tækifæri til að senda
Stúdentablaðinu könnunarblaðið.
Það má gera með því að koma við á
skrifstofu SHÍ og Stúdentablaðsins,
með því að nota einhverja af þeim
sérstöku kössum sem settir verða
upp víðsvegar um Háskólann eða
með því að senda blaðið í pósti til
okkar.
Skilafrestur er til febrúarloka og
verða niðurstöður birtar í næsta tbl.
Stúdentablaðsins, ef tekst að vinna
svo hratt úr könnuninni.
Athugaðu þetta!
Viljirðu sjálf(ur) finna niður-
stöðurnar hvað þig sjálfa(n) varðar,
skaltu leggja saman tölurnar í báð-
um dálkum sem þú hefur krossað
við. Deildu síðan með þeirri marg-
felditölu (stuðli) sem við þig á.
Dæmi: Eigirðu maka og 2 börn og
búirðu í leiguhúsnæði, er margfeldi-
tala þín 3. Sértu með niðurstöðu-
töluna 80-90.000 kr. seturðu upp
dæmið: 85.000 : 3 = 28.333.
Sé útkoman úr dálki A lægri en
framfærslumat LÍN, samtals (kr.
27.530), ertu ótrúlega sparneyt-
in(n), færð gefins það sem aðrir
þurfa að kaupa, eða þú þarft að fara
aftur yfir tölurnar.
Sé útkoman nálægt framfærslu-
mati Lánasjóðs sýnir það bara að þú
eyðir ekki meira en þú aflar.
Sé talan hærri en framfærslumat
LÍN ertu líklegar til að taka öflugan
þátt í baráttunni fyrir hækkun fram-
færslumats Lánasjóðsins.
Sé útkoman úr dálki B lægri en
framfærslumat LÍN er sennilegt að
þú sért að gera grín að okkur. Sé
niðurstaðan nálægt framfærslumati
LÍN, gæti það merkt það sama, en
líklegra er þó að þú hafir ekkert eða
lítið verðskyn. Séu lokatölurnar úr
dálki B hins vegar hærri en fram-
færslumat Lánasjóðs, er þér óhætt
að mæta til leiks sem hluti þeirrar
fríðu fylkingar sem brátt mun banka
upp á dyr ráðamanna.
32 STÚDEMTABLAÐIÐ