Stúdentablaðið - 01.02.1988, Qupperneq 34
STÚDENTAR HAFA ORÐIÐ
Tuttngu þúsimd kroimr
tll hagsbóta fyrir stádenta
Nú í haust ákvað Stúdentaráð Háskóla íslands að verja 20.000
krónum af sameiginlegum fjármunum stúdenta til kaupa á hlutabréf-
um í nýrri útvarpsstöð, Útvarpi Rót hf. Miklar deilur urðu um þetta
mál og er því full ástæða til að rekja það nú, þegar hin nýja stöð hefur
hafið útsendingar.
Þegar hlutabréfakaupin komu til
afgreiðslu Stúdentaráðs, þá var því
haldið fram af fulltrúum Vöku að
hér væri stjórn SHÍ að misnota vald
sitt gróflega til að hyggla vinstrisinn-
uðu fyrirtæki. Benedikt Bogason
formaður Vöku sagði að þeir sem
stæðu að stöðinni væru dæmdir terr-
oristar, kommúnistar og menn sem
hefðu beitt sér gegn frjálsu útvarpi.
Málið var rætt á mörgum fundum
Stúdentaráðs og minnti málflutn-
ingur minnihlutans óneitanlega
nokkuð á ofsóknir og kommúnista-
veiðar í Bandaríkjunum á 6. ára-
tugnum. Sérstaklega voru árásirnar
grófar í garð þáverandi fram-
kvæmdastjóra SHÍ, Theódórs
Gríms Guðmundssonar og var
framkoma ýmissa stúdentaráðsliða
minnihlutans þeim til ævarandi van-
sæmdar. Er óskandi að í framtíðinni
megi ræða hagsmunamál stúdenta á
drengilegri hátt er gert var í þessu
máli.
En til hvers er útvarp Rót? í því
galdrafári og moldviðri sem þyrlað
var upp við hlutabréfakaupin
gleymdist sá ávinningur sem stúd-
entar hafa af því að eiga aðgang að
útvarpi Rót.
í fyrsta lagi standa allar náms-
mannahreyfingarnar að stöðinni og
ætla sér að nýta hana í hagsmuna-
baráttu sinni. Stúdentaráð, Banda-
lag ísl. sérskólanema og Samband
Runólfur Ágústsson.
ísl. námsmanna erlendis halda úti
sameiginlegum þætti vikulega:
Námsmannaútvarpinu. Tilgangur
þess er að koma upplýsingum frá
samtökunum til félagsmanna sinna
milliliðalaust og að vera vettvangur
hagsmunabaráttunnar.
í öðru lagi á námsmannaútvarpið
að koma til skila upplýsingum um
uppákomur og atburði innan
Háskólans.
í þriðja lagi geta deildarfélög nýtt
sér útvarpið til þáttagerðar fyrir sín
sérmál og hefur þegar komið fram
áhugi hjá mörgum þeirra í því sam-
bandi. Fljótlega má því vænta sér-
þátta þeirra.
í fjórða lagi gefur Útvarp Rót
þann möguleika að nemar í fjöl-
miðlafræði geti hugsanlega nýtt sér
það í námi sínu.
í fímmta lagi veitir Útvarp Rót
ómetanlega reynslu sem kemur til
góða þegar og ef af Háskólaútvarpi
verður.
Þannig er ljóst að fyrir þessar
20.000 krónur hafa stúdentar fengið
mikið fyrir lítið. Allt tal um eyðslu
og sóun í þessu sambandi er hin arg-
asta rökleysa.
Útvarp Rót er hlutafélag og eig-
endur þess, einstaklingar og félaga-
samtök, skipta hundruðum.
Útvarpið er „grasrótarútvarp“, þ.e.
ætlað til þess að allir sem áhuga hafa
34 STÚDENTABLAÐIÐ