Stúdentablaðið - 01.02.1988, Qupperneq 41
FRÉTTIR *£
Frá setningu tölvuskólans. Þorvarður Elíasson skólastjóri í ræöustól.
Tölvuskóli Verdunarskólans
settur í íyr^lu s»úm
Þorvarður Elíasson,
skólastjóri Verzlunar-
skóla íslands setti
föstudaginn 15. janúar s.l.
í fyrsta skipti tölvuháskóla
Verzlunarskólans.
Skólinn getur tekið á móti
56 nemendum inn á
hverja önn, en nemendur
eru teknir inn tvisvar á ári,
í janúar og september.
104 umsóknir um
skólavist bárust, þannig
að vísa þurfti nokkrum
hluta umsækjenda frá.
Skólavistin tekur þrjár
annir og þá útskrifast
nemendur sem kerfis-
fræðingar.
í setningarræðu sinni
sagði Þorvarður meðal
annars að hann teldi það
rétta ákvörðun hjá
skólanefnd Verzlunar-
skólans að taka mið af
akademískum kröfum við
stofnun tölvuháskólas,
þrátt fyrir að fyrirsjáanlegt
hefði verið að það leiddi
til áreksturs við einstaka
háskólamenn. Það tryggði
það að skólinn einangrað-
ist ekki og samkeppni á
þessu svið væri til góðs.
Birgir ísleifur
Gunnarsson, menntamála-
ráðherra sagði í ávarpi að
það væri fagnaðarefni að
tölvuháskólinn væri
tekinn til starfa, sem tæki
ntið af þörfum atvinnu- og
viðskiptalífsins. Þörfin
væribrýn, þar sem tölvur
hefðu breytt ntiklu í
þjóðfélaginu á undanförn-
um árum og tímamót
væru nú að verða í
tölvuvæðingu grunn- og
framhaldsskóla. Hann
sagði að fjölbreytni í
kennslu á háskólastígi
væri sífellt að aukast, þó
að Háskóli íslands yrði
áfram höfuðvígi
rannsókna og vísinda.
Þessir nýju sérgreindu
háskólar einbeittu sér
einkum að þörfum
atvinnu- og viðskiptalífs
og myndu gegna auknu
hlutverki í framtíðinni.
50 herbergi, með baði,
beinum síma, útvarpi, lit-
sjónvarpi «g video, niini-
bar og herbergisþjónustu.
Hótelið hefur nýiega verið stækkað
og endurnýjað og allur aðbúnaður
rétt eins og best gerist.
Njótið góðra veiga og veit-
inga í notalegu umhverfi.
Glæsilegir veitingasalir,
bar og kaffitería.
HOTEL KEA
AKUREYRI
Hafnarstræti 87-89, 600 Akureyri, Pósthólf 283 Sími: (961-22200, Telex: 2195 kea is
STÚDENTABLAÐIÐ 41