Fálkinn


Fálkinn - 13.11.1937, Qupperneq 10

Fálkinn - 13.11.1937, Qupperneq 10
10 FÁLKINN Nr. 466. Adamson og erfifjandi hans. S k r í 11 u r. — Tveimur tímnm :of seinn í mifí- dagsmatinnl — Já, en J'jaff var ekió' yfir mig, góða. — En það þarf ekki að taka tvo tima! — Afsakið, nágranni góður, eu þjer vilduð víst ekki gera svo vel að lána mjer sláttuvjelina yðar seinni partinn l dag. Prófessorinn: — Hundurinn hlýi- ur að vera veikur. Jeg er búinn að fara fram hjá 11 luktarstólpum án þess að hann hafi stansað. í tugthúsinu: Jeg er bara að reyna að koma mjer fyrir eins ng jeg vœri heima hjá mjer. —- Það er ekki svo að skilja að mjer líki vel hjerna. Jeg liangi hjerna bara vcgna þess, að þá hefi jeg von um að fá eftirlaun. — Af hverju ertu aS gráta, Dengsi minn? — Jeg klemdi á mjer stóru tána í rottiigildrunni. — Æ, nltaf ert þú með nefið ofan í öllu. Hjónin ætluðu að hafa stórt sam- kvæmi og frúin var talsvert óró og hrædd um að ekki væri alt i lagi. Hún var óvön að hafa samkvæm'i, en nú átti hún von á mörgum tign- um gestum. Stúlku hafði hún fengið sjer til aðstoðar, en var ekki viss um hve fær hún var og fór nú fram i eldhúsið til þess að iíta yfir allan viðbúnaðinn. — Nú vantar ekkert nema kampa- vinið, sagði frúin, — annars er vist alt til. — Það er þarna — jeg helli því i krystalsflöskurnar líka! Tollarinn við hóp af ærslafullum stúdentum: — Hafið þið nokkrar tolivörur meðferðis? — Ekki nema nokkrar tungur. — Má jeg fá að sjá þær? Stúdentarnir reka ailir út úr sjer tunguna. — Tungurnar eru tollfrjálsar þeg- ar þær eru fastar í skepnunum. I Ameríku var inaður settur í fangelsi af þvi að hann átti þrjór konur. — Var það talið refsing — eða fri’ í SAMKVÆMI: — Nú tókst illa til fyrir mjer, fröken. Jeg sagði við þennan kjánalega karl þarna hinu- megin við borðið, að konan sem sæti hjá honum væri eins og óupp- lýst morð. Og svo var þetta konan hans. — Og hvað sagði pabbi við því? Þú lifir og hrærist i þessaii knattspyrnu. Jeg er viss um, að þu manst ekki einu sinni giftingardag- inn okkar. — JÚ, það var daginn sem Skot- arnir unnu landsliðið með 11 móti einu. - Jeg deili aldrei við heimskt fólk. — Það skil jeg vel. Þjer eruð vit- anlega altaf sammála því. — Voruð þjer á dansleiknum i gær? — Nei. Það var leiðinlegt. - Þá var gott að jeg var þar ekki. Jeg sá tviburana lians Friðriks í gær. Drengurinn er áins og ljós- mynd af föður sínum. — Já, og telpan eins og talmynd af henni móður sinni. Jónas litli hefir verið i l'yrsta reikningstímanum í skólanum og segir frá þegar hann keinur heim: — Ef jeg hefi tvö epli og fæ tvö i viðbót, þá á jeg fjögur epli. — Já, segir móðir hans — en ef þú átt þrjá banana og færð þrjá í viðbót, hvað áttu þá marga banana? — Við erum ekki komnir að banönunum ennþá, svaraði Jónas. Góða frú, viljið jijer gefa mjer eina krónu, svo að jeg komist til pabba og mömmu? — Já. Iljerna er krónan, barnið gott, en livar eru foreldrar þinir? þau eru á bíó. Hann: — Segið þjer mjer, ung- frú Eva, gætuð þjer hugsað yður áð giftast fábjána, þó að hann vœri ríkur? Ilún: Ja—ó. En þessi spurn- ing kemur svo óvænt! Lina á að gæta að fina sunnu- riagskjólnum, sem hangir til þerris við ofninn. Eftir dálitla stund kall- ar hún til móður sinnar: —• A jeg að snúa kjólnum við, mamma. Hann er orðinn brúnn á þeirri hliðinni sem snýr að ofnin- um.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.