Fálkinn - 30.04.1938, Blaðsíða 5
FÁLKINW
5
sitt þing og sjerstakan „lands-
höfðingja“. Yfir 94% af þjóð-
inni játar kaþólska trú.
Scliuschnigg til þess að segja
af sjer 11. marz:
— Jeg talaði tímunum sam-
an við hinn fláráða kanslara,
en það var ómögulegt að kom-
ast að samningum við hann.
Stundum sagðist hann mundi
vikja, hina stundina þóttist
hann ætla að sitja. Hann hafði
útvarpsstöð fyrir sjálfan sig i
höllinni og gat sent þaðan til-
kynningar á hylgjulengd Wien-
ai. Stöðin var við hliðina á
skrifstofu hans og þegar hann
var ekki að tala við mig sat
hann við útvarpið til þess að
róa sig. En ókyrðin fór vax-
andi úti á götunni. Hinsvegar
hafði S. A.-hgrnum verið gert
aðvart og hann fór að safnast
saman á Ballhausplatz.
Jeg fór nú i síðasta sinn inn
Eftir innlimunina hefir sú
saga komist á kreik, að borg-
arastyrjöld liafi verið í aðsígi
í Austurríki þegar Hitler tók í
I, umana. Aðstaða Scliuschniggs
kanslara fór dagversnandi og
sagan segir, að hann hafi verið
að því kominn að kalla Otto
af Habsburg lieim og gera hann
að keisara. Hvort sem þetta er
satt eða ekki þá er svo mikið
víst, að liin nýja stjórn í Austur-
riki hefir gefið út skipun um,
að Otto verði tekinn fastur ef
hann kemur 'til Austurrikis eða
Þýskalands. Og hver sá maður,
sem óskar ])ess að verða tekinn
til keisara í Austurriki er
stimplaður sem Iandráðamaður.
Ilinir fornu meðhaldsmenn
hans eiga ekki sjö dagana sæla
i Austurríki núna og margir
þeirra hafa flúið land.
En það er ekki sjeð livað
Schusclmigg hefði unnið við að
kalla Otto heim, því að það
er vitað, að mikill meirihluti
Austurríkismanna var á móti
endurreisn keisaradæmisins.
Það má telja víst, að ef það
hefði verið endurreist hefði
borgarastvrjöld óðar hafist í
Þýskalandi. Og svo mikið er
víst, að nú, eftir á, virðist
Schusclinigg eiga sjer formæl-
endur fáa. Stjórn hans er talin
hin versta glapræðisstjórn og
hann var talinn skósveinn páf-
ans, er liafi beitt þjóðina taum-
lausu ofheldi, sem hafi tekið
svo í lmúkana, að jafnvel
kommúnistar verða nú fegnir
að greiða atkvæði með innlim-
un Austurríkis í Þýskaland.
Seiss-Inquart, hinn nýi kansl-
ari Hitlers hefir sagt frá því
sem gerðist, er hann neyddi
fííkisfiilltrúi Hitlers i Austurríki dr, Seyss-Inquai't <með gleraugu) og
Michael Skubl rikisritari og lögreglustjóri i Austurríki.
Mynd þessi er tekin meðan Hitler var í Wien eftir innlimunina og sýnir hermannasveit þýskra og aust-
nrriskra manna heilsa foringjanum Til vinstri við Hitler sjest von fíock hershöfðingi, hæstráðandi þýska
hersins í Austurriki.
lil hans og sagði: „Herra kansl-
ari. Þjer verðið að fara frá!“
Hann reyndi að tala í sig kjark
en jeg hrýndi fyrir honum að
alt væri að enda í óreiðu og
átaldi hann fyrir loforðasvik-
in (vanefndir á því, sem liann
hafði lofað Hitler skömmu áð-
ur). Hann skildi loks, að hann
var ekki framar löglegur kansl-
ari. Og svo mæíti hann „Jeg
fer þegar í stað“.
Svo ók liann til Miklas for-
seta og f jekk lausn. En á meðan
bað jeg Hitler að senda her-
sveitir og láta þær fara inn
yfir landamærin, því að Schusc-
hnigg hafði útdeilt vopnum til
sinna manna og gat stafað
hætta af því. Svo kom Scliusc-
hnigg aftur og talaði í útvarpið
og sagðist víkja fyrir ofurefl-
inu. — —
Síðan innlimunina
sitja um 3300 menn og konur
í haldi i Austurríki, þaraf 1400
i Wien. Schuschnigg er ekki í
fangelsi en undir gæslu. Hann
býr enn í húsi sínu í Belvedere
við Wien ásamt föður sínum.
Hann liefir ekki gift sig enn,
eins og sagt hefir verið i blöð-
unum. Frjettin hefir komist á
kreik af því að unnusta lians,
greifynja Czernin hefir fengið
leyfi til að búa í sama húsinu.
llúsið er undir umsjá S. A.-her-
manna og' enginn fær að koma
ir n nema hann hafi skriflegl
inngönguleyfi. En enginn fær
inngönguleyfið.
Miklas forseti er frjáls maður
og fær að fara þar sem hon-
um sýnist. Það er talið að hann
sje nazisti í hjarta sínu og
synir lians eru yfirlýstir naz-
istar. Sumir ráðherrarnir úr
stjórn Schuschniggs er í fang-
elsi en aðrir ekki.
Það hefir gengið fljótt að
, nazifizera“ Austurriki, að
minsta kosti á yfirborðinu. Alls-
staðar blaktir þórshamarinn og
allur fjöldinn er með Hitler-
nælur í jakkahorninu. Búðar-
gluggarnir eru fullir af allskon-
ar glingri og myndum af Hitler
og fólk er farið að læra að
segja „Heil Hitler“ í staðinn
fyrir góðan daginn og vertu
sæll. En þetta er vitanlega eklci
gert með sömu nákvæmninni
og hjá Prússanum.
Margir eiga um sárt að binda,
ekki síst Gyðingarnir. Gyðing-
ar hafa altaf verið í Austur-
ríki og eftir að Hitler náði
völdum í Þýskalandi flýðu þeir
hópum saman þaðan og til
Austurríkis. Nú eru þessir menn
orðnir landlausir á ný. Fyrstu
dagana eftir innlimunina var
straumur af flóttamönnum yfir
öll landamæri, ekki síst til
Tjekkóslóvakíu. En flestum var
visað til baka — þeir voru
reknir inn í hættuna sem þeir
voru að flýja frá. Fjöldi fólks
hefir svift sig iífi. En fjöld-
inn hrósar liappi. Og Ilitler
brosir i kampinn.
Þinghúsið i Wien.