Fálkinn - 30.04.1938, Blaðsíða 13
F Á L K 1 N N
13
Setjið þið saman!
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
1. Enskur rithöfundur.
2. Norskf leikritaskáld.
3. Norskt söguskáld.
4. Kýrnafn.
5. —aros, flugmaður.
(i. Þáttur.
7. Jörð.
8. Sljarna.
9. Liðamót.
10. Eplatrje.
11. Bær í Al'ganislan.
12. Land í Afríku.
13. Hafnarbær i Ameríku.
14. Á i Bandaríkjunum.
15. Grænlandstrfiboði.
16. RæktaS land.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
Samstöfurnar eru alls 37 og á að
búa til úr þeim 16 orð, er svari til
skýringarorðanna. Fremstu stafirnL
taldir ofan frá og niður og öftustu
stafirnir, taldir neðan frá og upp
eiga að mynda:
Nöfn tveggja enskra skálda.
a—a—ah—ak—ap—at—all—e—e
e d—e g—e t—e i k—ha r—h n j e—i—i
—i—i—ic—ib—kand—li—lin—
mac—mold—o—op—pot----rið—
sir—sa—sen—ur—us—vann—wells.
Strykið yfir hverja samstöfu um
leið og þjer notið hana í orð og
skrifið orðið á listnnn til vinstri.
Nota má ð sem d, i sem í, a sem á.
o sem ó, u sem ú — og öfugt.
NÝR ARABÍU-LAWRENCE.
Þessi rnaður er enskur majór og
heitir John Bagot Glubb en hefir
fengið nafnið „Arabíu Lawrence nr.
2“ fyrir það hve miklum völdum
hann hefir náð í Arabíu. Er hann
einskonar ókrýndur konungur 60.000
Araba í Transjordaníu og lifir með
þeim í eyðimörkinni og hefir sam-
rýmst háttum þeirra. Er liann í vin-
fengi bæði við stjórn Araba og
Transjordaníu og hefir nýlega sætt
þá í alvarlegri misklíð sem varð
milli þeirra útaf landamæradeilu.
KEISARAEFNI ?
Kung Teh-Cheng heitir þessi kín-
verski unglingur og getur hann rakið
ætt sína lil liins mikla trúarhöfunds
Kinverja, Iíonfúsiusar. Kung Teh-
Cheng átti heima í Norður-Kína en
kom nýlega landflótta til Hankovv.
Japanar vilja gjarnan ná í luuin og
gera hann að keisara í Kína, er þeir
hafa lagt landið undir sig, svo að
það er ekki ómögulegt, að þessi 17
ára unglingur eigi eftir að verða
frægur maður, ef hann tekur að sjer
leppmenskuna fyrir Japana.
■— Fer elíki maharadjainn ofan að borða ?
spurði hún.
Nei, ungfrú. Maturinn handa honuni
er framreiddur í íbúðinni hans.
Hann liefir máske sjerstakt matar-
æði?
— Nei, en hann hefir kvenmann hjá
•'jer.
Kontma sína? Er liún úr hans landi?
Nei, ungfrú. Það er ensk dama. Þau
komu að vísu ekki saman, en herbergið
hennar liggur að svefnherberginu hans og
þau borða saman.
— Meira efni, hugsaði Nora með sjer.
XVII. Galloway tekur við.
Ashdown fulltrúi sat í skrifstofu sinni
á Scotland Yard og góndi deyfðarlega út
tim gluggann. Hann var nýbúinn að gefa
tveimur mönnum áminningu, sem aðstoð-
uðu hann í „Uglu“-málinu, fyrir að hafa
vanrækt það sem hann hafði lagt fyrir þá.
En hann átti bágt með að gefa áminningar.
Hann var rjettlátur maður og var ekki van-
ur að skeyta skapi sínu á öðrum, þó eitt-
hvað gengi honum á móti.
Galloway samverkamaður hans hafði
hringt i innanhússímann og sagðist ætla
að koma upp til hans.. Auðvitað var það
viðvíkjandi „Uglu“-málinu. Galloway var
altaf á hælunum til að spyrja hann frjetta
þó að hann vissi mætavel, að Ashdown
vrði einskis vísari.
Venjulega hafði Ashdown hepnast vel
með mál þau sem honum voru falin til
rannsókna og oft var það bersýnilegt, að
árangur hans var ekki æfingunni einni að
þakka. En slíkt er venjulega lalið sjálf-
sagt og lögregluskipulaginu þakkað þegar
vel gengur. En þegar illa gengur er skipu-
laginu ekki kent um. Þá er það einstakling-
urinn sem hlut á að máli, er á sökina.
— Forstjórinn er afar óánægður með að
hvorki skuli ganga nje reka í „Uglu“-mál-
inu, sagði Galloway er hann hafði sest.
Hafið þjer engar nýjar frjettir?
— Hafa nýjir þjófnaðir verið framdir,
kanske?
— Nei, það vona jeg ekki. Þjer búisl
þó varla við að hann steli í hverri viku?
Ashdown gramdist tónninn sem sam-
verkamaður hans talaði í. Galloway var að
vísu dálítið eldri, en þrátt fyrir það hafði
hann engan rjett til að tala við hann eins
og undirmann sinn.
— í hvaða erindum komið þjer? spurði
hann.
— Forstjórinn hefir beðið mig að leggja
fyrir yður nokkrar spurningar. Þessir golf-
vinir yðar hafið þjer sjeð þá upp á sið-
kastið.
— Nei.
— Þjer hafið haft gætur á þeim. Varð
nokkur árangur af því?
— Jeg hafði sett Jones og Peters til þess,
en þeir hafa brugðist mjer.
Þeir ættu skilið að fá á baukinn. Hvað
er að segja af Jim Longshaw?
—- Ashdown dró við sig svarið. Hann
langaði til að segja, að liann kynni betur
við að gefa forstjóranum skýrsluna sjálfur.
Og hefði hann haft eitthvað jákvætt að
skýra frá þá. .. .
Hann hefir verið fjarverandi siðan
hann gifti sig. En það er von á honum
eftir fáa daga.
— Og það sem fanst eftir þjófnaðinn
hjá Volter?
— Leifarnar af reykbombunni voru það
merkilegasta. Efnarannsóknin sýnir, að hún
v .r heimagerð.
—t Hún hlýtur að hafa verið búin til af
inanni, sem eitthvað kann í efnafræði. Hvað
er að segja um vini vðar í því sambandi?
Gus Hallam liefir fengist eitthvað við
efnafræði eins og svo margt annað. Að
öðru leyti er jeg jafnnær um þetta.
— Hvað hefir Gus Hallam hafst að upp
á síðkastið?
— Hann liefir verið á hjólum kringum
Fay Wheeler. Jeg hefi haft gát á honum
en ekki getað sjeð neitt grunsamlegt.
— Og þessi Val Derring ?
— Peters hefir mist af honum. Derring
var hjer í borginni nokkra daga og slóraði
eins og hann er vanur, en svo hvarf hann.
llann hafði skilið eftir þau boð heima hjá
sjer, að láta póstinn sinn biða, hann ætlaði
í bílferðalag. Hann sagðist mundi síma um
hvenær hann kæmi aftur.
— Fór liann einn?
— Sennilega.
— Það væri vert að athuga dálítið nánar
hvaða kvenfólk hann umgengst. El' nýr
þjófnaður verður framinn og liann er þar
viðstaddur þá lítur það grunsamlega út.
Og sá þriðji, sá sem hafði kvenmann í
íbúðinni hjá sjer?
— Jones átti að hafa gát á Humphrey
Proctor. En hann misti af sporum hans.
Það síðasta sem við vitum um hann er að
hann lenti i rifrildi við þessa frú Harrier
eitt kvöld þegar hann var hjá henni. Hún
kom ein úl með liandkoffort og tók sjer
bifreið. Jones hafði skipun um að gæta að
Proctor, svo að hann elti ekki hana, en
skrifaði bílnúmer hennar hjá sjer. Dáginn
eftir yfirheyrði hann bilstjórann og fjekk
að vita að hann hefði farið með konuna
á járnbrautarstöðina í Paddington. Bílstjór-
inn heldur að hún hafi tekið sjer annan
bíl þar, líldega til þess að villa Proctor, ef
ske kynni að hann veitti henni eftirför.
Og maðurinn veit ekkerl. frekar um
þessa konu?
Nei, ekki að svo stöddu.