Fálkinn - 25.10.1940, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
7
Breskir sjóliðar fægja og hreinsa byssur herskipanna
á hverjum morgni.
Gígur eftir sprengju, sem þýsk flugvjel varpaði niður í
Eire. Hún varð þrem stúlkum að'bana. Eire er hlutlaust.
Eins og menn muna fjellu nýlega sprengjur á Bucking-
ham höll, konungsbústaðihn í London. Vakti það mikla
gremju í London, því að Bretar eru konungshollir mjög.
Hjer sjást konungshjónin vera að skoða skemmdirnar
á höllinni.
Lundúnabúar eru farnir að venjast loftárásunum. Þetta
fólk virðist rólegt, !enda þótt það sje á leið í loftvarna-
byrgi eftir aðvörun um árás.
T. h.: Breskir hermenn afvopna þýskan flugmann. Vjel
hans var skotin niður á suðurströnd Englands.