Fálkinn - 17.01.1941, Qupperneq 1
16 síður
Reykjavík, föstudaginn 17. janúar 1941.
XIV.
50 aura
Við Landmannahelli.
Síðan bílfært varð í Landmanriahelli fyrir nokkrum áhim hefir verið gestkvæmara þar en fyrrum, er varla komu þangað
aðrir en leitarmenn Landmanna og Skaftfellinga í rekstrarferðum á haustin. Nú er þar áfangastaður þeirra, sem ætla
sjer fjallabaksveg áfram, gangandi eða ríðandi, eða eru að koma að austan. Sumir ætla sjer ekki lengra en á Loðmund,
sem stendur kippkorn fyrir ofan Landmannahelli. Hellirinn sjálfnr er fremur tilkomulítill, opinn skúti með afhelli inn úr
og gista menn þar ekki nema út úr neyð, því að þarna er einnig gott sæluhús. Húsið sjest á myndinni, en til vinstri er
Helliskvtsl og Sáta i baksýn. Ljósmynd: Signe Ehrngren.