Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Side 19

Fálkinn - 01.02.1961, Side 19
— Hefurðu komið til útlanda? — Já, ég hef einu sinni komið til Norðurlandanna. Það var nógu gaman í þeirri ferð, en ætti að verða helmingi ævintýralegra að fara alla leið til Mið- jarðarhafsins. — Ertu fædd og uppalin hér í Þykkvabæ? — Já, fædd hér og uppalin og kann alveg prýðilega við mig. Ég ætla að búa hér að minnsta kosti fyrst um sinn. Ykkur finnst náttúrlega, eins og flestum, ljótt hérna, en það er ekki að marka á veturna og allra sízt í svona veðri. Þið ættuð að vera hér á sumrin. Við þáðum indælis kaffi og kökur hjá þeim hjónum. Yfir borðum var rætt um dýrtíðina og hvað það kostaði nú á dögum að stofna heimili. Þau hjónin töldu, að þeirra nýja heimili liefði kostað ekki minna en fjörutíu þúsund krónur, og hefur þó öllu verið í hóf stillt. Þetta minnti okkur á, að eitt dagblaðanna reiknaði út að nýtt heimili með öllum þeim tækjum og út- búnaði, sem með þarf, kostaði 80 þús- und krónur. Og nú eru orðin nokkur ár síðan! Þannig leið dagurinn, og fyrr en varði var tekið að dimma ískyggilega. Við kvöddum ungu hjónin og óskuðum Gísl- ínu góðrar ferðar og vonuðum, að hún hefði einhverja ánægju af að reisa frá Þykkvabænum til Miðjarðarhafsins. til Miðjarðarhafsins ratm FÁLKANS Frá Þykkvabænum til Miðjarðarhafs Ung stúlka, María Hjálmarsdóttir, dró úr öllum þeim fjölda lausna, sem barst við fyrstu verðlaunagetraun Fálkans. Myndin hér til vinstri sýnir, er hún dró eina lausn úr bunkanum, en eigandi hennar reyndist vera Gíslína Sigurbjartsdóttir í Þykkvabæ. Gíslína er útlærð ljósmóðir, útskrifaðist héðan úr Reykjavík 1957.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.