Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Side 22

Fálkinn - 01.02.1961, Side 22
Hér birtist allur sannleikurinn um Fjörefni fæðunnar Allir eru á eitt sáttir um, að þeir, sem vilja leggja rækt við heilsu sína, þurfi að gera eitthvað til þess að afla sér fjörefnaríkrar fæðu, þegar liða tek- ur á veturinn. Fjörefnin eru, sem kunnugt er, stór hópur efna, sem við af hverju einstöku þurfum aðeins örlítið magn af, oft að- eins brot úr mg á dag. En þau geta þó 'haft úrslitaáhrif á allt líf okkar, mætti því nefna þau „smurolíu" líkam- ans; vanti þau, stendur allt fast. Allt fram til síðustu aldamóta og jafn- vel lengur, voru þau lítt kunn, en nú eykst þekking á þeim og tilgangi þeirra dag frá degi og fleiri og fleiri líta dagsins ljós. Fái líkaminn að staðaldri of lítið af einhverju fjörefni, koma fram fyrr eða síðar ýmis hörgulsjúkdómseinkenni, sem læknast aðeins með viðeigandi fjör- efni. Sumir þessir sjúkdómar hafa verið kunnir frá aldaöðli, eins og beinkröm og skyrbjúgur. Fjörefni finnast fyrst og fremst í jurt- um. Er því jurtafæða mjög fjörefnaauð- ug, ekki svo að skilja, að dýrafæða sé algjörlega fjörefnasnauð, má t. d. nefna feitan fisk, nautakjöt og egg. í dag eru um 40 fjörefni þekkt, sem eru okkur nauðsynleg, en sé þess gætt, að fæðan innihaldi nægilegt magn af A, B, C og D fjörefni, auk kalks, járns og eggjahvítu, getum við verið örugg um að fá nóg af hinum. Við finnum til svengdar, þegar við þurfum á að halda orkugefandi nær- ingarefnum. Því er öðruvísi varið, sé t. d. skortur á B-fjörvi, þá verðum við lystarlaus, sem ekki bætir úr skák. Nú er hægt að kaupa fjörefnapillur í öllum lyfjabúðum, og því margir, sem grípa til þess að nota þær og halda að með því sé séð fyrir öllu. Er þó mun betra að fá fjörefni í sínu rétta umhverfi; þeim fylgja ætíð ýms oft lítt kunn efni, sem við getum ekki verið án, en sem ekki eru í pillunum, auk þess sem þær eru oftast rándýrar. A-fjörefni. Sem betur fer er a-fjörefni í mörg- um þeim fæðutegundum, sem við neyt- um daglega. Við fáum a-fjörefni bæði frá kjötverzluninni, fisksalanum og úr mjólkurbúðinni. Einnig í mörgu því, sem við kaupum hjá grænmetissalanum. í þeirri fæðu, sem við neytum úr dýraríkinu, þ. e. a. s. kjöti, fiski, mjólk- urafurðum og eggjum, er A-fjörefnið í tengslum við fitu. Nýmjólk, rjómi, smjör, og feitur ostur eru A-fjörefna- auðugust. f eggjum er A-fjörefnið í eggjarauðunni, en það er úr feitum fisk- tegundum, einkum þó síld, svo og úr lifur og hrognum, sem við fáum mest og ódýrasta A-fjörefnið. Allir vita, að fisklifur er auðug af D-fjörefni, en hún er einnig góður A- fjörefnisgjafi, og hið sama má segja um nauta-, svína- og kálfalifur, hvað A-fjör- efni snertir. í grænmeti er A-fjörefnið í sambandi við hinn sterka, rauðgula lit, einkum í gulrótum, svo og í öðru litarsterku grænmeti, eins og grænkáli, spínati, salati, blaðlauk og steinselju. Það er að vísu ekki A-fjörefnið sjálft, heldur litar- efnið karotin, sem líkami okkar breytir svo í A-fjörefnið. Á sumrin, þegar kýr og hænsni fá ný- gresi, eru mjólkurafurðir og egg A-fjör- efnisríkari en á veturna. En hvaða áhif hefur það, ef fæðan er of A-fjörefnissnauð? Slímhúðir lík- amans veikjast, en af því leiðir, að við höfum minni mótstöðu gagnvart ýmsum smitandi sjúkdómum. Komizt A-fjörefnisskorturinn á hátt stig, fer að bera á náttblindu, og hjá börnum dreg- ur úr vexti. A-fjörefni þolir vel venjulega suðu, gerilsneyðingu og niðursuðu, en fer að nokkru leyti forgörðum við steikingu. 22 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.