Fálkinn - 01.02.1961, Page 25
VINIR í STÁLLUNGA
í ríkinu Illinois í Bandaríkjunum er ungur, lamaður dreng-
ur, sem liggur í stállunga, en er engu síður í stöðugu sam-
bandi við 17 ára gamla stúlku í Þrándheimi. Anna heitir
hún og er einnig lömuð og verður stundum að liggja í stál-
lunga. Samt sem áður berast taréfin frá henni og Cliff þvert
yfir Atlantshafið, bréf, sem þau bæði hafa skrifað með því
að halda á blýanti með munninum.
Það er dálítið sögulegt, hvernig þau komust í samband
hvort við annað. Fyrir rúmu ári síðan skrifaði Arbeider-
Avisa í Þrándheimi um hina hraustu Önnu, sem ár eftir ár
hefur orðið að liggja lömuð á sjúkrahúsinu, en haldið léttri
lund þrátt fyrir erfiðleikana og verið sannur ljósgeisli á
sjúkrahúsinu. Anna getur aðeins hreyft höfuðið, litla fingur
annarrar handar og ristina á vinstri fót. Hún hefur samt
ekki gefizt upp í baráttunni við sjúkdóm sinn. Með munn-
inum skrifar hún bréf, eins og áður er sagt, og teiknar meira
að segja snotrustu teikningar!
Frásögn blaðsins í Þrándheimi barst um allt landið og
varð m. a. til þess, að kvennablað nokkurt skrifaði langa
grein um hana. Ungur maður í Narvik las þessa grein af til-
viljun. Hann hafði mikinn áhuga á útvarpsvirkjun og varði
öllum tómstundum sínum til slíks. Á hverju kvöldi stóð hann
í útvarpssambandi við menn um allan heim. Fyrir um ári
síðan fékk hann skyndilega samband við mann í Illinois. Sá
sem svaraði honum var enginn annar en Cliff, lamaði dreng-
urinn í stállunganu, sem áður er minnzt á. Cliff hefur látið
koma fyrir sendistöð við stállungað, og með þumalfingrinum,
sem er hið eina, sem hann getur hreyft fyrir utan höfuðið,
getur hann stjórnað tækinu.
Útvarpsvirkinn í Narvik sagði Cliff frá því, sem hann hafði
lesið um Önnu í kvennablaðinu.
— Spurðu hana, hvort hún vilji skrifast á við mig, sagði
Cliff.
Útvarpsvirkinn skrifaði Önnu strax daginn eftir og Anna
varð himinlifandi. Hvort hún vildi ekki skrifast á við Cliff!
Þau voru jú ofurseld sömu örlögum og áttu flest sameigin-
legt.
Dag nokkurn komu bréf og myndir frá hinum unga Am-
eríkumanni. Anna hóf þegar að læra ensku og hefur orðið
vel ágengt á örstuttum tíma. Bréfin berast mjög títt milli
þeirra yfir Atlantshafið. Cliff segir Önnu frá senditækinu
sínu, sem geri honum kleift að hafa stuttbylgjusamband um
allan heim. Enda þótt hann sé svo að segja fullkomlega lam-
aður, fylgist hann með öllu, sem gerist og með aðstoð sendi-
tækisins hefur hann eignazt vini út um allan heim.
Bréfaviðskiptin hafa haft mjög uppörvandi áhrif á Önnu.
Öðru hverju fær hún að fara af sjúkrahúsinu og heimsækja
foreldra sína og systkini, og þótt ótrúlegt megi virðast kemur
fyrir að hún fari í bíó. Léttlyndi hennar og lífsvilji hvetja
aðra til þess að hjálpa henni og fyrir skömmu er hún byrjuð
að læra frönsku.
Við getum mikið lært af Önnu og Cliff. Hreysti þeirra
sýnir okkur, sem heilbrigð erum, hversu óendanlega mikið
við höfum til þess að gleðjast yfir.
Efri myndin er af Önnu, þar sem hún er að skrifa
pennavini sínum hinum megin á hnettinum. Cliff
heitir hann (sjá neðri mynd) og er lofurseldur
sömu örlögum og hún.