Fálkinn


Fálkinn - 01.02.1961, Page 32

Fálkinn - 01.02.1961, Page 32
þjónustunni upplýsingar og þótti því ekkert skrítið þótt hann hefði verið skotinn með 7 mm skammbyssu af rúss- neskri gerð. Varla er liðið ár frá því, að Rússar fóru að veita vesturþýzkum tannlækni í Berlín nokkra athygli, þar eð lækn- ingastofa hans var miðstöð andkomm- únistiskra njósnara. SMERSH uppgötv- aði, að tannlæknirinn var sérlega hrif- inn af hollenzkum vindlum og einnig, að hann fengi oftlega senda kassa frá Amsterdam. Einn kassa þessara var opn- aður, vindlingarnir eitraðir með fljót- verkandi eitri og tæpum klukkutíma, eftir að tannlæknirinn hafði móttekið kassann, var hann liðið lík. Sjö morð, sem framin voru í Austur- ríki á árunum 1957—5, eru, samkvæmt skoðun austurrisku ríkisstjórnarinnar, verk SMERSH. Talið er, að 60 karl- menn og 10 konur séu í Vínarborg á vegum SMERSH og eru þau öll starfs- menn rússneska sendiráðsins. SMERSH misheppnast ekki oft, en þó skeði eftirminnilegur atburður í Ástr- alíu fyrir nokkrum árum. Rúss- neska Petrov-fjölskyldan hafði starfað lengi við sendiráðið — en í raun og „Þú getur hœtt að koma frá og með morgundeginum, Kristjana.“ 32 FÁLKINN veru voru Petrov-hjónin meðlimir N.K.V.D., rússnesku leyniþjónustunnar. Útsendarar SMERSH, sem að sjálfsögðu njósna einnig um meðlimi leyniþjónust- unnar, voru farnir að gruna hjónin og skipuðu fjölskyldunni að hafa sig heim til Sovétríkjanna. Petrov sjálfum tókst að flýja og leit- aði hælis hjá áströlskum yfirvöldum. Frú Petrov var hins vegar ekki eins heppin og var kyrrsett í sendiráðinu. Nokkrum dögum síðar var hún flutt til flugvallarins undir handleiðslu sjö hraustra SMERSH-manna og reyndu þeir að þvinga frúna til þess að fara upp í flugvél og fljúga til Moskva. Ástralska leynilögreglan var á staðnum og eftir nokkur handalögmál heppnaðist henni að frelsa frúna úr klóm landa hennar. Petrov-fjölskyldan afhjúpaði síðar vel- skipulagðan njósnahring, sem árum saman hafði starfað í Ástralíu. Eitt hlutverk SMERSH er að stofna kommúnista„sellur“ og neðanjarðar- hreyfingar í andkommúnistiskum lönd- um. Lítill vafi er talinn leika á því, að SMERSH hafi raunverulega staðið á bak við mótmælagöngurnar gegn Banda- ríkjamönnum í Japan í fyrra. — Eftir heimsstyrjöldina sendu Rússar gríðar marga diplómata, hernaðarsérfræðinga, verzlunarsérfræðinga, verzlunarfulltrúa, matreiðslumenn, bifreiðarstjóra og einkaritara til sendiráðsins í Tokyo og ræðismannsskrifstofa víðsvegar um landið. Meðal þessa starfsliðs leyndust 60 starfsmenn SMERSH. Skilyrðin fyrir hina rússnesku njósn- ara voru hin erfiðustu um þetta leyti. Rússarnir urðu að gæta sín bæði fyrir bandarísku leyniþjónustunni og þeirri japönsku. Nokkrum árum síðar heppn- aðist þeim þó að koma á fót mjög vel skipulögðum njósnahring, en þó sprakk ,,bomban“. Yuri Rastovorov ofursti, næstæðsti maður njósnahringsins, varð þreyttur á taugaáreynslunni og óskaði sér, eins og Stryguine, langra lífdaga og áhyggjulauss lífs. Auk þess var hann einn af eftirlætismönnum Levrenti Beria — og er hann var líflátinn, fannst Rastovorov framtíð sín í töluverðri haettu. Hann komst í samband við leyniþjónustu Bandaríkjanna og lofaði að afhjúpa njósnahring Rússa í Japan, ef hann fengi landvistarleyfi í Banda- ríkjunum, og nyti þar öryggis. 3 dögum síðar samþykkti Washington tilboðið, og Rastovorov hvarf eins og jörðin hefði gleypt hann. Félagar hans í SMERSH leituðu hans sem óðir menn um alla Tokyo — og leitinni var ekki hætt fyrr en fréttir bárust frá Washington þess efnis, að hinn fyrrverandi foringi njósna hringsins í Tokyo væri kominn þangað. Afleiðing uppljóstrana Rastovorovs var sú, að njósnahringurinn 1 Japan fór í mola og 'heilmörgum Rússum var vísað úr landi. Nú upp á síðkastið hefur SMERSH róið undir í Alsír, það sem þeir reyna að halda bardögum áfram og beita alls- konar undirferli til þess að æsa hverja höndina upp á móti annarri. Nýjasta tilboð de Gaulles hefur þó gert þeim sérlega erfitt fyrir. Franska leyniþjónustan upplýsir, að í París muni vera ca. 40 manns, sem starfa á vegum SMERSH. Einnig muni nokkrir starfandi í helztu hafnarborgum landsins. Frakkar hafa handtekið 11 slíka njósnara og vísað 22 úr landi frá 1953. Þótt einhverjir 'heltist úr lestinni, koma fljótt nýir í staðinn, og meðlimir SMERSH eru ekki eingöngu sendiráðs- starfsmenn, þeir eru einnig blaðamenn, verzlunarmenn, sumir leynast meðal flóttamanna, aðrir í röðum andkomm- únistiskra hreyfinga. Á Spáni eru þeir fjölmennir í hópi fyrrverandi nazista og SS-manna, en Spánn hefur ekki stjórnmálasamband við Sovétríkin, — Uppreisnin í Ungverjalandi gaf SMERSH prýðilegt tækifæri á að smygla sínum mönnum vestur fyrir járntjald án þess að nota sendiráðin. Þúsundir ungverskra flóttamanna kom- ust til Austurríkis — og meðal þeirra voru margir meðlimir SMERSH. Voru 10 þeirra afhjúpaðir í Austurríki, Þýzka- landi og Englandi. Þremur heppnaðist að komast til Bandaríkjanna áður en upp komst um þá. SMERSH hefur einnig geysimikil á- hrif í Sovétríkjunum sjálfum. Það var SMERSH, sem velti Beria úr sessi og lét lífláta hann ásamt mörgum af hans fylgifiskum. Flestir höfðu álitið Beria öruggan hvað sem á gengi. Um 200.000 manns voru í leynilögreglu hans og einn- ig hafði hann yfir að ráða um hálfri milljón hermanna. SMERSH gekk rösk- lega til verks og á nákvæmlega sama tíma alls staðar í Sovétríkjunum voru stuðningsmenn Beria handteknir og komu þeir engum vörnum við. Enginn gat aðvarað annan. Núverandi yfirmaður SMERSH er Grubozschikov ofursti, sem stýrir þess- ari stofnun með járnaga. Hin tvö höfuð- hlutverk stofnunarinnar eru rækt með dugnaði og ofstæki, sem á engan sinn líka á Vesturlöndum. Sovétríkin vinna hvern stórsigurinn á fætur öðrum í kalda stríðinu — nú nýlega frestun á (heímsókn Efisenhovers tfl Tokyo — þökk sé gagnnjósnurunum. SMERSH verður að deila heiðrinum af þessum vinningi svo og öðrum sigrum kalda stríðsins með rússnesku leynilögregl- unni. SMERSH er þó eitt um annað höf- uðhlutverk sitt: Stöðuga gæzlu sendi- manna leynilögreglunnar og diplómat- anna. Eins og áður er sagt, eru þeir ekki margir, sem sleppa undan SMERSH. Svo virðist sem nokkurra umbrota gæti í Sovétríkjunum og er þess ef til vill að vænta, að breytingar eigi sér stað í Kreml í náinni framtíð. Reyndar er þetta ágizkun, en tíminn sker úr um hvort þetta á við rök að styðjast. En verði einhverjar breytingar á æðstu stöðum, verður fróðlegt að vita, hvort SMERSH heldur valdastöðu sinni. ★

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.