Fálkinn - 01.02.1961, Qupperneq 34
Illa brotna bein -
Framh. af bls. 21.
leitað, virðist hún eingar sakir hafa ját-
að á sig né 'heldur sætt refsíngu. Verð-
ur því að líta á hlutdeild hennar sem
grun manna og orðróm einn, þótt ekki
verði hjá komizt að álíta að hún hafi
verið í vitorði með Birni, svo ekki sé
meira sagt.
Þetta vor dæmdi sýslumaður Björn
til dauða og var dómurinn staðfestur
af lögmanni, Jóni Jónssyni Svalberð-
íngs, Magnússonar. (Hann var bróðir
Staðarhóls-Páls, Magnúsar í Ögri, Sig-
urðar á Reynistað o. fl.). Þjóðsögur telja
og konu Bjarnar dæmda til dauða um
leið en aftökunni hafi verið frestað
vegna þúnga hennar, en það eru stað-
lausir stafir einsog drepið hefur verið
á. Þær vita heldur ekkert um Boch
sýslumann, og er því líkast að Guðmund-
ur Ormsson gegni hlutverki sýslumanns
unz lögmaður kemur til, samkvæmt
þeim.
Axlar-Björn, frægasti morðíngi á ís-
landi, var nú færður til aftöku á Laug-
arbrekkuþíngi, og hefur sú athöfn orðið
ærið ræmd um dagana.
Björn varð harðmannlega við dauða
sínum.
Ólafur hét frændi Bjarnar, er sagt er
að hafi innt af höndum böðulshlutverk-
ið. Fyrst voru útlimir Bjarnar brotnir
með sleggjum. Er í frásögur fært að
hann viknaði ekki, en mælti glottandi:
Illa brotna bein á huldu, Ólafur
frændi.
Síðan var Björn afhöfðaður og hlut-
aður og hlutirnir festir upp á steingur.
Hann dó iðrunarlaust. — Enn bæta
sagnir við, að hann hafi verið klipinn
9 klip með glóandi taungum, og einhver
kvalaþorsti hefur valdið því, að aftak-
an hefur verið ýkt enn meira á síð-
ari tímum.
Mælt er, að kona Bjarnar væri við-
stödd, er hann var limaður, og þetta
haft eftir henni: Smásaxast á limina
hans Björns míns. Sumir segja og, að
hún hafi bætt við: Þessi mun hefna
— og klappaði á líf sér um leið. Slíkar
og þvílíkar urðu sagnir manna varð-
andi ummæli þessara illræmdu hjóna,
og eru þó ekki allar tilfærðar hér.
Axlar-Björn var dysjaður við túnið
á Laugarbrekku, þar sem heitir Laugar-
holt. Dysin er úr grjóti og grasi vaxin
neðan og heitir enn í dag Axlar-Bjarn-
ardys.
Lýsíngin á aftökuaðferðinni hefur
verið vefengd og mun hún ekki vera
í samræmi við lagasetníngar um refs-
íngar á þessum tíma hér á landi; má
a.m.k. búast við að hún sé orðum auk-
in. Móti því mælir þó hitt, hve heim-
ildin er gömul: Björn á Skarðsá hefur
aftöku Bjarnar með þessum hætti í
annál sínum, þ.e.a.s. fyrri utan tánga-
klipin, en hann var 22ja ára þegar
Axlar-Björn var líflátinn, og var þá á
34 f’álkinn
Reynistað hjá Sigurði, bróður Jóns lög-
manns, er staðfesti dóminn yfir Birni.
Þórdís Ólafsdóttir, kona Bjarnar, mun
hafa verið í umsjá sýslumanns, án þess
þó að vera í varðhaldi, og leið nú fram
til alþíngis þetta sumar. Þá er skráður
svohljóðandi alþíngisdómur:
„Anno 1596 dómur af allri lögrett-
unni um konu Manndrápa-Björns.
Beiddist Kastian Boch dóms og ráða
um þá konu Þórdísi Ólafsdóttur, er átt
hafði Björn Pétursson, vegna þeirra fá-
heyrðu morða, sem sami Björn hafði
meðkennzt. Dæmdist af allri lögrétt-
unni: í fyrstu hafði þessi maður Björn
réttaður verið eftir lögmáli. Virtist þeim
réttast, að Kastian nefndi til 12 menn
skynsama og ráðvanda, hálfpart konur
og karla, það fyrsta hann kemur heim
í sveit, hverir að sverja skyldu, hvort
þeim líklegra þætti, að hún sökuð eður
saklaus yrði af áður sögðum morðum,
og gangi síðan eftir dómi góðra manna,
og svo rétt tekin til fanga“.
Samt hafa eingin úrslit orðið á mál-
um Þórdísar samkvæmt þessu alþíngis-
áliti, því að sumarið eftir, 1597, kemur
Kastían Boch enn með þau til þíngs;
er honum þar enn dæmt að leita eftir
„hvort hún væri nokkuð sökuð í þess-
um málum eður ei enn af nýju, og ef
svo er, að nokkuð bevísist, að hún hafi
sig í þeim vandræðum vafið . .. ., þá
dæmum vér henni refsíng og straff
eftir því prófi. En bevísist ekki upp á
hana öðruvísi en nú hefur fram fyrir
oss komið, þá kunnum vér 'henni ekki
refsíng að dæma“.
Eftir þetta getur málsins ekki í Al-
þíngisbókum, og Þórdís hverfur úr sög-
unni, svo við vitum ekki um örlög henn-
ar. Víst er, að hún hefur ekki verið
tekin af lífi og hefur líklega aldrei
sannazt á hana sök.
En áður er þess getið, að hún var
með barni, er Björn var tekinn af. Er
hún varð léttari fæddi hún sveinbarn;
var sveinninn hinn fríðasti sýnum og
glóbjartur á hár; hann var skírður
Sveinn, og ekki örvænt að hann komi
við sögu síðar.
(Hér hefur að mestu, einkum fram-
an til, verið lögð til grundvallar frá-
saga Gísla Konráðssonar af Axlar-Birni,
enda mun hún heillegust. Þjóðsögur
Jóns Árnasonar segja frá Birni með
svipuðum hætti, og er missagnanna get-
ið hér í flestum tilfellum. Innsta kjarna
Axlar-Bjarnarsögu er að finna í annál-
um Bjarnar á Skarðsá, Fitja-annál, Set-
bergsannál, Árbókum Espólíns og Al-
þingisbókum, en utan um hann tvinn-
ast síðan óspart reyfarasagnir á borð
við draumsögurnar og orðtök Axlar-
hjóna. Hér hefur saga Bjarnar hins veg-
ar verið leiðrétt samkvæmt því sem
gögn leyfa (t. d. varðandi Þórdísi o.
fl.), en því tjaldað sem til er þar sem
hvorki verður stutt né hrakið).
★
Þá var allt...
Framh. af bls. 7.
um af þessum gömlu, góðu draugum?
— Jú, Írafells-Móra. Það held ég að
hann hafi komið hingað, helvítis strák-
urinn. Ég man alltaf eftir því, þegar
folaldið drapst hjá honum séra Ólafi
Finnssyni. Það var komið fram á vetur
og verið að moka út fjósið. Folaldið,
sem var kópalið, var úti að leika sér,
en var síðan látið inn. Skömmu síðar
kemur séra Ólafur inn í fjósið, og þá
liggur folaldið þar steindautt. Það þurfti
ekki að leita orsakanna að því, mikil
ósköp!
— Segðu okkur að lokum, hvað þér
er efst í huga, þegar þú lítur yfir far-
inn veg.
— Ja, ég er nú búinn að gleyma
hörmungunum og vosbúðinni og kann
ekki að meta lífsþægindin, eins og Þau
eru nú. Ekki óska ég neinum þess, að
erfiðir tímar komi aftur. Lífsskilyrðin
og lífsviðhorfið hefur gjörbreytzt og
ekkert við það að athuga. En mann-
dómurinn má ekki hverfa. Án 'hans er
voðinn vís ....
Barbara Hutton -
Frh. af bls. 15
skorin upp á sjúkrahúsinu í Bern. Á
næstu árum var hún alls skorin upp
sjö sinnum. Læknunum kom ekki sam-
an um hvað að henni gengi og sumir
töldu jafnvel, að allir uppskurðir hefðu
verið óþarfir! En prinsinn varð leiður
á þessum veikindum hennar, skildi við
hana og fékk hálfa milljón fyrir ómakið.
Til endurgjalds lýsti Barbara því opin-
berlega yfir, að hann væri ekki aðeins
leiðinlegasti heldur einnig dónalegasti
maður, sem hún hefði fyrir hitt.
Barbara Hutton gifti sig tvisvar sinn-
um til viðbótar. Eiginmaður nr. fimm
var fjárhættuspilari, sem hafði stórtap-
að og þurfti að bæta sér upp tjónið.
Hjónaband þeirra stóð í 73 daga. í
sjötta skiptið giftist hún barón að nafni
von Cramm. Þetta var vænsti maður,
en hann gat ekki sætt sig við hið rót-
lausa líf, sem Barbara hafði vanizt. Þau
skildu, en hann vildi ekki fá grænan
eyri. Von Cramm er sá af eiginmönn-
um Barböru, sem hún talar bezt um ...
Það er ekki að undra, þótt menn
brosi að rótlausa lífi Barböru Hutton,
eilífum giftingum hennar og ævintýrum.
En ævisaga hennar, sem hér að framan
hefur verið rakin mjög stuttlega, er þó
athyglisverð um margt. Hún sýnir okk-
ur, svo að ekki verður dregið í efa, að
hamingjan er ekki fólgin í milljónum
dollara, Hún er sem betur fer annað og
meira, — hafin yfir það, sem mölur og
ryð fá grandað.