Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1961, Page 7

Fálkinn - 15.02.1961, Page 7
FIRÐI stiórnmál til sín taka og er hinn merk- asti maður. Nú, við lærðum þarna af mesta kappi og flugum ýmsum gerðum flugvéla. Ég minnist þess, hve kalt var að fljúga í opnum flugvélum í 40 stiga frosti á Celsíus. Maður hafði húfu niður að aug- um og stór flugmannsgleraugu og trefil fyrir niðurandlitinu, því annars hefði andlitið kalið. Þarna æfðum við okkur í ýmsu, m. a. á því að lenda flugvél á skíðum. Vorið 1942 tók ég síðan at- vinnuflugmannspróf hjá Department of Transport. HJÁ KONUNGLEGA KANADÍSKA FLUGHERNUM. Að prófinu loknu réðumst við Sigurð- ur Ólafsson til R.C.A.F., Konunglega kanadíska flughersins. Við fórum til borgarinnar Regina í Sask. og byrjuð- um á því að fara á námskeið í sigl- ingafræði. Ennfremur lærðum við sprengjukast og fleira hernaðarlegs eðl- is — tókum próf seint um sumarið og fórum þegar að fljúga. Ég flaug ein- göngu með menn, sem verið var að þjálfa í siglingafræði og sprengjukasti. Tækin, sem við höfðum, voru þau nýj- ustu, sem þá voru í notkun og þetta var geysilega spennandi. Við höfðum ávallt 11 eld- og reyksprengjur með í hverri ferð. Æft var jafnt að nóttu sem degi, og voru venjulega farnar tvær ferðir á nóttu. Eina nóttina áttum við að hæfa skot- mark, sem var langt norður í skógun- um. Við lögðum upp, eitthvað þrjátíu flugvélar frá flugvellinum í Regina rétt um miðnætti og flugum í 10 þúsund feta hæð. Þetta var að hausti og mjög dimmt. Er við höfðum flogið nokkuð norður eftir, gerði þokuslæðing og slæmt skyggni. Við komum auga á ljós, sem vel gátu verið skotmarkið. Samt voru menn ekki vissir og við töluðum mikið um þetta bæði í flugvélunum og milli þeirra í talstöðvum. Nokkrir hættu að kasta sprengjunum, einir fimm held ég, en hinir renndu sér yfir og sprengj- urnar féllu hver af annarri. Okkur brá í brún, er við sáum dagblöðin morg- uninn eftir. Það sem flestir höfðu álit- ið skotmark, var upplýstur danspallur, sem fólk úr nágrenninu hafði komið upp. Er sprengjukastið hófst, flýði hver sem betur gat út í skóginn, en þar var hvergi öruggt skýli, því sprengjurnar féllu margar utan við pallinn. Fjöldi manns slasaðizt og einn beið bana samstundis. Þetta var mikil óheppni. Síðar kom í ljós, að danspallurinn var inni á bannsvæði og stutt frá skotmark- inu, en sorglegt var þetta, eigi að síður. Vorið 1943 auglýsti flugherinn eftir sjálfboðaliðum til að fara til Peerce í Alberta. Sá staður var langt frá nokk- urri borg og því ekki ráðlegt að láta fjölskyldumenn fara þangað. Við Sig- urður vorum lausir og liðugir og ekk- ert á móti því að kanna nýjar slóðir. Þarna var þjálfunarstöð fyrir áhafnir flughersins og m. a. æft á stuttum flug- brautum. Við flugum víða um, fórum langt norður eftir og stundum sáum við olíueldana í Turner Valley og not- uðum þá fyrir vita. Einu sinni á æfinga- flugi kviknaði í flugvélinni. Við vorum fimm um borð. Ég lenti vélinni á litl- um grasvelli við Pennhold, smábæ þarna í nágrenninu. Ekki vorum við fyrr lent- ir, en út snaraðist borðalagður officeri og hundskammaði mig fyrir að leyfa reykingar í flugvélinni. Það hafði nefni- lega dottið sígaretta niður í „botn“ á vélinni og kviknaði í dúknum. AFTUR TIL WINNIPEG. Eftir nokkurn tíma þarna vesturfrá, var ákveðið að leggja skólann niður. Við Sigurður fórum þá aftur til Winni- peg og byrjuðum að kenna við Air Ob- server School. Nokkru síðar barst okkur skeyti frá Flugfélagi íslands, þess efnis, að nú vantaði flugmann. Það varð að sam- Framh. á bls. 30. Rætt við Jóhannes Snorrason, flugstjóra FÁLKINN 7

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.